Staða vinnustaða eins og hún birtist núna hér á síðunni er endanleg. Einnig er hægt að sjá stöðu efstu liða með því að smella á "Úrslit" hér fyrir ofan og velja „Úrslit 2014“. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfalla daga. Sjá nánar28. 05 2014
Í dag, miðvikudaginn 28. maí, kl. 12:00 veður lokað fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2014.
Eftir þann tíma verður ekki hægt að gera neinar breytingar á skráningu né skrá inn nýjar ferðir.
Staðfest úrslit verða birt á vefnum og send út á liðsstjóra eftir kl. 15:00 í dag.
Verðlaunaafhending fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum miðvikudaginn 4. júní kl. 12:10.Sjá nánar27. 05 2014
Á föstudaginn var dregið í Instagram - leiknum. Var það Anna Karen Jörgensdóttir hjá Janúar sem vann snertilaust kreditkort með 25.000 kr. inneign frá Valitor. Við drögum síðasta vinningshafann á morgun.Sjá nánar26. 05 2014
Á morgun, þriðjudaginn 27. maí er síðasti keppnisdagur í Hjólað í vinnuna 2014.
Lokað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 28. maí kl. 12:00. Eftir það verður ekki hægt að gera neinar breytingar á skráningum né skrá inn nýjar ferðir.
Verðlaunaafhending verður svo miðvikudaginn 4. júní kl. 12:10 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Sjá nánar26. 05 2014
Föstudaginn 23. maí voru dregnir út 10 liðsstjórar í liðsstjóraleik Hjólað í vinnuna. Þeir liðsstjórar sem voru dregnir út hljóta í verðlaun hraðamæla frá Reiðhjólaversluninni Erninum. Búið er að birta nöfn þeirra 10 sem voru dregnir út hér.Sjá nánar26. 05 2014
Kaffitjald verður á Höfn í Hornafirði á morgun, þriðjudaginn 27. maí. Tjaldið verður staðsettt á græna svæðinu við Sparisjóðinn frá 7:30 til 8:30.
Boðið verður uppá Kaffi frá Kaffitár og Egils Kristal frá Ölgerðinni. Sjá nánar23. 05 2014
Góð þátttaka er í Hjólað í vinnuna í ár. Nú hafa 562 vinnustaðir skráð 8780 (klukkan 10:50) liðsmenn til leiks og er það meira en í fyrra. Enn er hægt að skrá sig til leiks. Sjá nánar22. 05 2014
Kaffitjald verður á Höfn í Hornafirði mánudaginn 26. maí. Tjaldið verður staðsett á græna svæðinu við Sparisjóðinn frá 7:30 til 8:30.
Boðið verður uppá Kaffi frá Kaffitár og Egils Kristal frá Ölgerðinni. Sjá nánar22. 05 2014
Hreyfitorg er ný vefsíða sem er ætlað að veita góða yfirsýn yfir þá valkosti sem eru í boði á sviði hreyfingar á hverjum tíma, fyrir allan aldur, hvar sem er á landinu. Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig eða aðra, t.d. foreldrum og ýmsu fagfólki, að finna hreyfingu sem samræmist getu og.........Sjá nánar22. 05 2014
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur 16. Bláalónsþrautina laugardaginn 7.júní 2014. Mótið er haldið í samvinnu við Bláa lónið. Bláalónsþrautin er fyrir alla 16 ára og eldri. Nálgast má allar upplýsingar um keppnina á heimasíðu .......Sjá nánar21. 05 2014
Inn á vef Orkusetursins má finna nokkrar samgöngureiknivélar og ein þeirra er um göngu og hjól. Árið 2013 fóru þátttakendur Hjólað í vinnuna 570.131 km eða 425,79 hringir í kringum landið. Við það sparaðist um 102 tonn af útblæstri CO2, og 56.980 lítrar af eldsneyti sem gera 14 milljónir króna og brenndar voru um .........
Sjá nánar21. 05 2014
Fjölmörg hjólreiðarfélög eru starfandi á landinu og eru með öfluga starfsemi í gangi, Landssamtök hjólreiðamanna, Íslenski fjallahjólaklúbburinn, Hjólreiðanefnd ÍSÍ, Hjólreiðafélag Reykjavíkur, Hjólamenn, Hjólreiðafélagið Bjartur, Hjólreiðafélag hafnfirskra kvenna og Hjólafélagið Tindur. Við hvetjum ykkur til að........Sjá nánar20. 05 2014
Sendu okkur skemmtilegar myndir, myndbönd eða reynslusögur af þinni þátttöku í Hjólað í vinnuna. Við drögum næst út föstudaginn 23. maí. Vertu með í skemmtilegum leik. Notaðu #hjólaðívinnuna á........Sjá nánar20. 05 2014
Það styttist í að við drögum út einn heppinn þátttakanda í Hjólað í vinnuna sem fær glæsilegt hjól frá Hjólreiðaversluninni Erninum. Ert þú ekki örugglega búinn að skrá þig til leiks? Allir þeir sem skrá sig til leiks í Hjólað í vinnuna eiga möguleika á að....Sjá nánar19. 05 2014
Kæri þáttakandi í Hjólað í vinnuna! Þeir hjá Saga Traffic eru að leita eftir þátttakendum sem eiga iPhone eða Android síma, búa á höfuðborgarsvæðinu og langar að stuðla að bættu hjólastígakerfi?
Saga Traffic eru að vinna að rannsóknarverkefni fyrir Vegagerðina þar sem snjallsímaforrit er notað til að kanna leiðarval og ferðavenjur ..........Sjá nánar15. 05 2014
Kaffitjald verður á Akeureyri á morgun við Hof frá kl.16:30. Hjólaðu við og fáður þér rjúkandi heitt kaffi frá Kaffitár og Kristal frá Ölgerðinni. Íþróttabandalag Akureyrar tekur vel á móti þér.
Ekki gleyma að taka mynd á Instagram og merkja hana með #hjoladivinnuna. Einnig er hægt að senda mynd og reynslusögu í gegnum heimasíðuna okkar.Sjá nánar14. 05 2014
Mega hjólreiðamenn hjóla á gangstéttum?
Samkvæmt umferðarlögum er heimilt að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum. Þegar nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hættu skal hjólreiðamaður gefa hljóðmerki, nota bjölluna. Sums staðar er notkun .........Sjá nánar14. 05 2014
Landssamtök hjólreiðarmanna hafa gefið út leiðbeiningar FYRIR HJÓLANDI Á STÍGUM OG GANGSTÉTTUM MEÐ BLANDAÐRI UMFERÐ og LEIÐBEININGAR FYRIR HJÓLANDI Á GÖTUM MEÐ 50 KM HRAÐA EÐA MINNA. Mikilvægt er að ...........Sjá nánar13. 05 2014
Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér kaffi á þremur stöðum í Reykjavík, í Kópavogi og í Hafnarfirði miðvikudaginn 14. maí frá kl: 6:45 - 9:00. Kaffitár bíður upp á kaffi og Ölgerðin upp á kristal. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum og öðrum hjólreiðasamtökum verða á staðnum og kynna sína starfsemi. Einnig verða viðgerðarmenn frá Reiðhjólaversluninni Erninum á staðnum og aðstoða við ..........Sjá nánar13. 05 2014
Kílómetrakeppni Hjólað í vinnuna er keppni sem lið geta skráð sig í óháð vinnustöðum. Keppt er um annars vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði og hins vegar um heildarfjölda kílómetra. Athugið að einungis lið með........Sjá nánar12. 05 2014
Almenningsíþróttadeild Víkings stendur fyrir hjólreiðanámskeiði 8.-15. maí. Æfingar eru á fimmtudögum kl. 18:00 og er mæting við Víkingsheimilið. Boðið er upp á einstaklingsmiðaðar og fjölbreyttar æfingar fyrir byrjendur sem og lengrakomna. Sjá nánar09. 05 2014
Við hvetjum ykkur til að senda okkur línu um það sem er að gerast á þínum vinnustað í tengslum við Hjólað í vinnuna á hjoladivinnuna@isi.is eða pósta því á ........Sjá nánar09. 05 2014
Ef þið ætlið að eyða ykkur úr liði þá vinsamlegast hafið samband við liðsstjórann ykkar eða sendið fyrirspurn á hjoladivinnuna@isi.is.Sjá nánar08. 05 2014
Við hvetjum ykkur til að fara inn á síðu Hjólað í vinnuna á Facebook og skoða allar myndirnar og innleggin. Við erum líka að ........Sjá nánar07. 05 2014
Sendu okkur skemmtilegar myndir, myndbönd eða reynslusögur af þinni þátttöku í Hjólað í vinnuna. Hægt er að senda inn myndir í gegnum Instagram með #hjólaðívinnuna, á Facebook síðu Hjólað í vinnuna og í gegnum vef Hjólað í vinnuna. Einnig má senda inn ..........Sjá nánar07. 05 2014
Hjólað í vinnuna rúllaði formlega af stað í morgun frá Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum. Hafsteinn Pálsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, velferðarráðherra (heilbrigðisráðherra), Leifur Bárðarson, frá Embætti landlæknis og Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur ávörpuðu gesti og hjóluðu ...........Sjá nánar06. 05 2014
Ýmislegt efni og gagnlegar upplýsingar eru að finna hér inn á vefnum. Í upphafi keppni er gott að kynna sér vel reglur Hjólað í vinnuna sem eru að finna hér fyrir ofan undir...........Sjá nánar06. 05 2014
Messa undir yfirskriftinni: "Hjólað til messu" verður í Digraneskirkju sunnudaginn 11. maí kl. 11:00. Sungin verða lög og sálmar sem hæfa tilefninu og beðið verður fyrir öryggi hjólreiðamanna. Prestur er sr. Magnús Björn Björnsson, organisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir og Drengjakór.........Sjá nánar06. 05 2014
Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna er á morgun, miðvikudaginn 7. maí, kl. 8:30 - 9:00 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal. Þátttakendur sem eiga þess kost er boðið að hjóla við, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg ...........Sjá nánar05. 05 2014
Allir sem skrá sig til leiks í Hjólað í vinnuna eiga möguleika á að vera dregnir út í skráningarleik ÍSÍ og Rásar 2. Dregið er úr skráðum einstaklingum alla virka daga í Popplandi á Rás 2. Glæsilegir vinningar eru í boði frá Erninum. Þann 27. maí verður síðan dregið út glæsilegt........Sjá nánar