Vel heppnuð opnunarhátíð

07. maí 2014Hjólað í vinnuna rúllaði formlega af stað í morgun frá Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum. Hafsteinn Pálsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, velferðarráðherra (heilbrigðisráðherra), Leifur Bárðarson, frá Embætti landlæknis og Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur ávörpuðu gesti og hjóluðu verkefnið síðan af stað. DR. Bæk var á staðnum með smurolíubrúsann á lofti að lagfæra hjól. 

Hér má nágast myndir frá opnunarhátíðinni.