Kílómetrakeppnin er liðakeppni sem öll lið geta skráð sig í óháð vinnustað.
Lágmarksfjöldi í liði í
þessari keppni er 3 og hámarksfjöldi 10. Liðið birtist ekki undir "Staða í kílómetrakeppni" fyrr en
búið er að skrá 3 liðsmenn í liðið. Hægt er að skrá liðið í keppnina strax og það er skráð í Hjólað í
vinnuna með því að haka í reitinn Tekur þátt í kílómetrakeppninni. Einnig er hægt að skrá liðið til
leiks eftir á, en það er gert undir liðsstjórnunarsíðunni með því að haka í viðeigandi reit.
Í kílómetrakeppninni er keppt um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall
kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liðinu.
Vegna rafmagnshjóla (þessi grein á aðeins við í kílómetrakeppninni):
Við viljum benda þeim sem eru á rafmagnshjólum að hafa eftirfarandi viðmið í huga við
skráningu á kílómetrum.
• Ef mótorinn er notaður þarf að margfalda fjölda kílómetra sem farnir eru með 0,75
• Ef mótorinn er ekki notaður má skrá 100%
Dæmi: Lið með 8 liðsmönnum ákveður að skrá sig til leiks í kílómetrakeppnina. Um leið og
liðsstjórinn hefur hakað við kílómetrakeppnina og skráð liðsmennina til leiks birtis liðið undir
„Staðan” – “kílómetrakeppni“. Þar undir birtast liðin og fyrir aftan sá vinnustaður sem liðið
tilheyrir og svo fjöldi liðsmanna í liðinu. Undir Heildarvegalengd birtist heildarfjöldi kílómetra
sem liðið hefur hjólað og undir Hlutfall KM birtist hlutfall kílómetra á hvern liðsmann, en það er
reiknað út sem:
Hlutfall KM = Samtals KM / fjöldi liðsmanna
Veitt eru verðlaun til þriggja efstu liðanna fyrir annars vegar heildarvegalengd og hins vegar hlutfall KM. Með því að smella á Heilarvegalengd eða Hlutfall KM má raða liðunum upp í röð eftir árangri.
The Kilometre Competition is a team competition that any team can enter, regardless of workplace.
The minimum number of participants per team is 3, and the maximum is 10. A team will not appear under “Kilometre Competition Standings” until at least 3 members have been registered. Teams can sign up for the competition as soon as they are registered in Hjólað í vinnuna by checking the box “Participate in the kilometre competition.” Teams may also join the competition later by checking the corresponding box on the team management page.
In the Kilometre Competition, teams compete for total kilometres, and average kilometres per team member.
Regarding e‑bikes (applies only to the Kilometre Competition). Participants using e‑bikes should follow these guidelines when logging kilometres:
• If the motor is used, multiply the distance by 0.75.
• If the motor is not used, the full distance (100%) may be logged.
Example: A team with 8 members decides to enter the Kilometre Competition.
Once the team leader checks the kilometre competition box and registers the team members, the team appears under “Standings – Kilometre Competition.” There, teams are listed along with their workplace and number of team members.Under Total Distance, the total kilometres cycled by the team are shown. Under KM Ratio, the average kilometres per team member appear, calculated as:
KM Ratio = Total KM / number of team members.
Awards are presented to the top three teams for bot total distance, and kilometre ratio (average KM per team member), making a total of six prizes. Teams can be sorted by clicking on either Total Distance or KM Ratio.