Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2019 fór fram í hádeginu í dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal að viðstöddum húsfylli.
Sjá nánar29. 05 2019
Björn Jakob Tryggvason hjá Arion banka var svo heppinn að vera dreginn út í myndaleik Hjólað í vinnuna. Hann sendi þessa skemmtilegu mynd í gegnum heimasíðu Hjólað í vinnuna og fær glæsilegan hjálm frá Nutcase á Íslandi í vinningSjá nánar20. 05 2019
Þegar þetta er skrifað eru þátttakendur Hjólað í vinnuna komnir upp í 6071 sem er fjölgun um tæplega 1800 manns frá því árið 2018, og er mesta þátttaka frá því árið 2015 þegar 6824 voru skráðir til leiks. Sjá nánar16. 05 2019
Hjólað í vinnuna hefur farið vel af stað og eru þátttakendur orðnir hátt í 6000 þetta árið.
Vert er að minna þátttakendur á að það er skemmtilegur myndaleikur í gangi þar sem hægt er að vinna glæsilegan hjálm frá Nutcase.
Hægt er að senda inn myndir í gegnum Instagram með #hjoladivinnuna, á Facebook síðu Hjólað í vinnuna og í gegnum vef Hjólað í vinnuna. Einnig má senda inn myndbönd eða reynslusögur í gegnum vef Hjólað í vinnuna.
Sjá nánar13. 05 2019
Hjólað í vinnuna fer fram dagana 8. - 28. maí. Yfir 5000 þátttakendur eru skráðir til leiks og enn er hægt að skrá sig og alla hreyfingu aftur í tímann.Sjá nánar08. 05 2019
Hjólað í vinnuna var sett í sautjánda sinn í morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þátttakendum var boðið að hjóla við og þiggja ljúffengt bakkelsi.
Sjá nánar07. 05 2019
Hjólað í vinnuna hefst á morgun með formlegum hætti í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum kl. 08:30. Allir eru velkomnir að hjóla við, þiggja bakkelsi og hlýða á hressileg ávörp.Sjá nánar03. 05 2019
Miðvikudaginn 8. maí hefst Hjólað í vinnuna. Allir eru velkomnir að koma á setningarhátíð Hjólað í vinnuna sem fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum kl 8:30, þiggja bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg ávörpSjá nánar02. 05 2019
Skráning í Hjólað í vinnuna 2019 er í fullum gangi. Af gefnu tilefni viljum við benda á að vinnustaðir innan sveitarfélaga geta ekki haft sömu kennitölu og sveitarfélagið (skólar, skrifstofur, leikskólar).
Sjá nánar29. 04 2019
Líkt og síðustu ár þá fer Hjólað í vinnuna fram í byrjun maí-mánaðar og stendur yfir í 3 öflugar hjólavikur á vordögum. Þetta árið er Hjólað í vinnuna tímasett dagana 8. - 28. maí 2019 og keppendur geta því merkt við þá dagsetningu í dagatalinu núna.Sjá nánar