Hjólað í vinnuna formlega hafið

08. maí 2019

Hjólað í vinnuna var sett í sautjánda sinn í morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þátttakendum var boðið að hjóla við og þiggja ljúffengt bakkelsi.

Flutt voru stutt og hressileg hvatningarávörp: 

• Hafsteinn Pálsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ
• Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra
• Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
• Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
• Gyða Sól lagði línurnar

Að ávörpunum loknum hjóluðu gestir og þátttakendur átakið formlega af stað. . 


Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta annan virkan ferðamáta til og frá vinnu. Keppt er um fjölda þátttökudaga en lið geta jafnframt skráð sig í kílómetrakeppnina þar sem keppt er um heildarfjölda kílómetra. Landsmenn hafa tekið átakinu gríðarlega vel frá upphafi og verkefnið skapað alla jafna góða stemningu á vinnustöðum landsins. Allar upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á www.hjoladivinnuna.is

 

Áhugasamir geta skoðað myndir af viðburðinum á myndasíðu ÍSÍ