Myndaleikur

16. maí 2019

Hjólað í vinnuna hefur farið vel af stað og eru þátttakendur orðnir hátt í 6000 þetta árið.

Vert er að minna þátttakendur á að það er skemmtilegur myndaleikur í gangi þar sem hægt er að vinna glæsilegan hjálm frá Nutcase.
Hægt er að senda inn myndir í gegnum Instagram með #hjoladivinnuna, á Facebook síðu Hjólað í vinnuna og í gegnum vef Hjólað í vinnuna. Einnig má senda inn myndbönd eða reynslusögur í gegnum vef Hjólað í vinnuna.

Tveir heppnir myndasmiðir verða dregnir út á Rás 2 ásamt því að besta myndin verður sérstaklega verðlaunuð.

Til gamans látum við fylgja mynd sem Hafrannsóknastofnun sendi inn af hópnum sínum fyrir utan vinnustaðinn.