Opnað hefur verið fyrir skráningu
18. apríl 2024Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2024.
Keppnin hefst 8. maí nk. og stendur yfir til 28. maí. Liðsmenn og liðsstjórar geta því hafið skráningar á sér og sínum liðum núna!
Hægt er að skrá sig allan tímann á meðan verkefnið stendur yfir.
Hjólað í vinnuna snýst fyrst og fremst um virkan ferðamáta og hreyfingu, fá sem flesta til að vera með en það skiptir þá ekki máli hver kílómetrafjöldinn er á leiðinni í og úr vinnu heldur hversu margar skráningarnar eru. Þeir sem vilja keppast um kílómetrafjölda geta gert það í kílómetrakeppninni.
Einnig er vert að benda á það að þó einstaklingar séu að vinna heiman frá sér er að sjálfsögðu um að gera að taka þátt með því að fara út í byrjun vinnudags og lok vinnudags og hjóla eða ganga þá vegalengd sem samsvarar vegalengdinni í vinnuna.
Nánari upplýsingar um skráningu eru hér að neðan:
Hér eru leiðbeiningar varðandi skráningu.
Bike to Work – Guidelines for registration, in English