Afhending verðlaunaplatta til Landsbanka og Advania

08. júní 2026Nokkur fyrirtæki voru ekki viðstödd verðlaunaafhendingu Hjólað í vinnuna 2026 og fengu tvö þeirra verðlaunaplatta afhenta í dag frá Lindu Laufdal, sérfræðingi á fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ.

Landsbankinn lenti í 1. sæti í hlutfalli daga í flokki 800+.
Þátttakendur úr nokkrum liðum, ásamt Söndru Hinriksdóttur frá mannauðssviði, tóku við verðlaunaplatanum.

Liðið Keðjustrekkjarnir hjá Advania varð í 3. sæti í hlutfalli kílómetra í Kílómetrakeppninni.
Árni Garðarsson, liðstjóri tók við plattanum ásamt liðsfélögum sínum.

Hjólað í vinnuna óskar vinnustöðum og þátttakendum til hamingju með árangurinn 🚴‍♀️