GUL HJÓL - árvekniátak um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni
21. maí 2026Hjólað í vinnuna er í samstarfi við Hjólreiðabændur vegna árvekniátaksins GUL HJÓL. Átakið snýr að öryggi allra í umferðinni hvort sem þú ert gangandi, hjólandi og akandi. Hjólin eru staðsett á stöðum þar sem alvarleg slys hafa orðið og eiga að minna okkur öll á að sýna varúð.
Verum vakandi og sýnum tillitssemi hvort sem við erum akandi, hjólandi eða gangandi.
25 hjólum hafa verið stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað viðs vegar um höfuðborgina.
Gulu hjólin eru komin með QR kóða!
17 Gul hjól eru núna með QR kóða sem þú getur skannað? Þið finnið hjólin á kortinu í appinu.
Svona virkar það:
1️⃣ Farðu á síðuna www.gulhjol.is og skráðu þig inn með netfanginu þínu
2️⃣ Þú færð lykilorð sent í tölvupóst
3️⃣ Skráðu þig inn og skannað hjól
4️⃣ Stigin skrást sjálfkrafa á þinn notanda
Þú getur fengið allt að 1 stig á dag fyrir hvert hjóll. Því fleiri hjól sem þú skannar, þeim mun fleiri stigum safnar þú!
Ath. það þarf ekki að finna slóðina á appið við hvert hjól, þú getur bara notað myndavélina í símanum til að skanna hjólið.
Umfjöllun á Rúv
Verum vakandi og sýnum tillitssemi hvort sem við erum akandi, hjólandi eða gangandi!

