Hjólað í vinnuna fer vel af stað og er nú hálfnað!

18. maí 2026

Þátttakendur eru orðnir 3.117 og á þessari stundu hafa verið lagðir að baki 122.300 kílómetrar sem samsvarar um 91,34 hringjum í kringum landið.
Þegar skráningar eru skoðaðar nánar má sjá að hjólreiðar eru stór hluti ferða en margir velja einnig að ganga, hlaupa eða nýta sér rafhjól. Þátttakan er fjölbreytt og nær til vinnustaða af öllum stærðum og gerðum þar sem víða má sjá skemmtilega samkeppni.
Gaman er að fylgjast með stöðunni í rauntíma og skoða nánari tölfræði hér:
Enn er nægur tími til að vera með og bæta við fleiri kílómetrum!
Skráðu þig til leiks hér