Skráning í fullum gangi

21. apríl 2026Skráning í Hjólað í vinnuna er í fullum gangi en keppnin hefst 1. maí. Það er einfalt að skrá sig til leiks með því að smella á "Innskráning" á heimasíðu Hjólað í vinnuna og annað hvort stofna eða ganga í lið. Leiðbeiningar um skráningu í Hjólað í vinnuna má nálgast hér.

Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þátttöku..

Þeir vinnustaðir sem eru með starfsstöðvar erlendis, mega klárlega hvetja þá starfsmenn til þátttöku. Bara gaman að allir geti verið með!