Hvetjum vinnufélagana til að vera með

09. maí 2025Nú er um að gera að hvetja alla starfsmenn til að skrá sig til leiks og vera duglega að velja virkan ferðamáta til og frá vinnu. Hægt er að skrá ferðirnar sínar frá byrjun, eða frá 7. maí.

Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna í fyrirtækjum og þjappa hópnum saman. Útfærslan er einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd sem samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið.

Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra.
Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó-rahlaupahjól/ganga, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.

Að skrá sig til leiks:
1. Farið er inná vef Hjólað í vinnuna
2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
3. Ef þú átt ekki aðgang þá stofnarðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða býrð til notendanafn og lykilorð.
4. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
5. Skráningu lokið

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inná vef Hjólað í vinnuna