Setning Hjólað í vinnuna 7. maí - Hjólaðu við!

05. maí 2025

Miðvikudaginn 7. maí hefst Hjólað í vinnuna í tuttugasta og þriðja sinn.
Allir þátttakendur Hjólað í vinnuna eru velkomnir að hjóla við á setningarhátíðina sem fer fram í Tjarnarsal, Ráðhúss Reykjavíkur, kl 8:30

Dagskráin er eftirfarandi:
-Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ býður gesti velkomna og stýrir dagskrá

Ávörp flytja:

-Heiða Björk Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar
-Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
-María Ögn Guðmundsdóttir, hjólreiðakona

Að ávörpunum loknum munu gestir og þátttakendur hjóla átakið formlega af stað.

Við minnum á að á meðan að átakið stendur yfir verða heppnir þátttakendur dregnir út í skráningarleik Hjólað í vinnuna alla virka daga í þættinum Morgunverkin á Rás 2. Hjólreiðaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga en einnig fá vinningshafar vörur frá Unbroken. Þann 27. maí er dregið út glæsilegt reiðhjól að verðmæti rúml.100.000kr. 
Myndaleikurinn er a sínum stað á Instagram, Facebook og á heimasíðunni þar sem myndasmiðir sem merkja myndina með #hjoladivinnuna fá glæsilegar vörur frá Erninum og Unbroken.

Allar upplýsingar um verkefnið er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má einnig finna efni til að dreifa á vinnustöðum, svo sem reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.