Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2023

26. maí 2023Tuttugasta og fyrsta verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna fór fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í hádeginu í dag, 26. maí. Hjólað í vinnuna er því formlega lokið í ár.
Bæjarins bestu var samstarfsaðili í ár og bauð gestum uppá pylsur.

Keppnin stóð yfir frá 3. - 23. maí. Verðlaun voru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall þátttökudaga. Í kílómetrakeppninni var þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir bæði heildarfjölda kílómetra og hlutfall kílómetra miðað við fjölda starfsmanna. Alla vinnustaði í verðlaunasæti má finna hér á vefsíðu verkefnisins.

Í ár voru 421 (380) vinnustaðir sem skráðu 911 (931) lið til leiks með 5.083 (5319) virka liðsmenn og 295 (301) lið skráðu sig til leiks í kílómetrakeppnina.

Alls voru hjólaðir 303.071 km eða 226 hringir í kringum landið.

78,1% þátttakenda hjólaði og af þeim voru 7,4% sem skráðu rafhjól, 8,8% gekk til og frá vinnu, 1.6% notaði rafhlaupahjól, 0,8% hljóp og 2,7% tók strætó og gekk hluta eða notaði annan ferðamáta.

ÍSÍ og UNICEF tóku höndum saman í verkefninu enda sameinast gildi beggja í að efla einstaklinga og fyrirtæki til heilsueflandi þátttöku fyrir sig, Ísland og heiminn allan. Með þátttöku í Hjólað í vinnuna gátu fyrirtæki heitið á starfsfólk sitt og stutt þannig við Loftlagssjóð UNICEF. Loftlagssjóður styrkir meðal annars menntun og fræðslu fyrir börn og ungt fólk varðandi loftlagsáhrif, nýsköpun á sjálfbærum og umhverfisvænum lausnum fyrir heilbrigðis- og menntakerfi og styrkir innviði samfélaga til að auka viðnám við loftlagsbreytingum. Fyrirtæki geta enn heitið á sitt starfsfólk þó að átakið sé búið, hér.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að nota virkan ferðamáta.

Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna er að finna á heimasíðu verkefnisins og upplýsingar um alla vinningshafa í skráningar, mynda og liðstjóraleik má finna hér.

Samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna í ár voru UNICEF, Örninn, Rás2, Unbroken, LHM, HRÍ, Hjólafærni, Advania og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn.

Starfsfólk ÍSÍ þakkar öllum þátttakendum fyrir keppnina í ár og óskar öllum vinningshöfum innilega til hamingju!
Þið getið öll klappað ykkur á bakið, þið hafið öll verið frábærar fyrirmyndir í hreyfingu og umhverfisvænum samgöngum.

Á myndinni má sjá hópmynd af verðlaunahöfum í 1. - 3. sæti í hlutafalli daga og kílómetrakeppninni auk verðlaunahöfum í skráningar- og liðsstjóraleik. Fleiri myndir af verðlaunaafhendingu er hægt að finna hér á myndasíðu ÍSÍ.