Hvetjum vinnufélagana til að vera með

16. maí 2022

Íþrótta- og Ólympíusambandið minnir á að heilsuátakið Hjólað í vinnuna er ennþá í fullum gangi. Það er rúmlega vika eftir af átakinu og alls ekki of seint að vera með. Nú er um að gera að hvetja alla starfsmenn til að skrá sig til leiks og vera duglega að velja virkan ferðamáta til og frá vinnu. Hægt er að skrá ferðirnar sínar frá byrjun, eða frá 4. maí. Það er ágætis hjóla- og/eða gönguveður þessa dagana og því ekkert því til fyrirstöðu að velja virkan ferðamáta til og frá vinnu.

Það er mikilvægt fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum eftir krefjandi undanfarið árið og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman. Útfærslan er einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.

Praktískar upplýsingar:
Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra.
Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó-rahlaupahjól/ganga, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.

Að skrá sig til leiks:
1. Farið er inná vef Hjólað í vinnuna
2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
3. Ef þú átt ekki aðgang þá stofnarðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða búðu þér til notendanafn og lykilorð.
4. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
5. Skráningu lokið

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inná vef Hjólað í vinnuna

Mynd með frétt var send inn í gegnum Heimasíðu Hjólað í vinnuna