Setning Hjólað í vinnuna 2022

03. maí 2022

Miðvikudaginn 4. maí hefst Hjólað í vinnuna í tuttugasta sinn.
Allir þátttakendur Hjólað í vinnuna eru velkomnir að koma á setningarhátíðina sem fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum kl 8:30, þiggja bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg ávörp.

Dagskráin er eftirfarandi
 
Andri Stefánsson, framkvæmdarstjóri ÍSÍ býður gesti velkomna

Ávörp flytja:
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu
Ingvar Ómarsson, hjólreiðakappi

Að ávörpunum loknum munu gestir og þátttakendur hjóla átakið formlega af stað.

Við minnum á að á meðan á átakinu stendur verður skráningarleikur þar sem allir þátttakendur eiga möguleika á að vera dregnir út á í þættinum Morgunverkin á Rás 2, alla virka daga. Hjólreiðaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga og þann 27. maí er dregið út glæsilegt reiðhjól að verðmæti 100.000kr. Þá verður í gangi myndaleikur á Instagram, Facebook og á heimasíðunni þar sem myndasmiðir sem merkja myndina með #hjoladivinnuna geta unnið frábærra vinninga.

Allar upplýsingar um verkefnið er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má einnig finna efni til að dreifa á vinnustöðum, svo sem reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira.