Við erum komin á lokasprettinn
22. maí 2021
Við erum komin á lokasprettinn í Hjólað í vinnuna en síðasti keppnisdagur er þriðjudaginn 25. maí. Nú fer hver að verða síðastur að ná inn ferðum og skrá þær í kerfið. Hægt verður að skrá í kerfið þar til á hádegi 26. maí.
Endilega verið dugleg sjálf og hvetjið einnig samstarfsfélagana til að klára verkefnið með trompi, og munið að skrá í kerfið tímanlega! Við bendum á að hægt er að fylgjast með stöðunni hér á heimasíðu Hjólað í vinnuna.