Förum varlega í umferðinni
14. maí 2021
Nú eru næstum 6000 manns skráðir til leiks í Hjólað í vinnuna og gaman að sjá hversu margir eru að nota virkan ferðamáta til og frá vinnu.
Vert er að minna alla þá sem nota hjól á það að fara varlega í umferðinni, nota hjálma og vera á vel búnum reiðhjólum með ljósum og góðum bremsum.
Á vef samgöngustofu má finna ýmsar upplýsingar um öryggi í umferðinni en hér má lesa sérstaklega um þær reglur sem gilda um hjólreiðar í umferðinni.
Við minnum svo á myndaleikinn okkar en það eina sem þú þarft að gera til að taka þátt er að taka mynd af þinn þátttöku í Hjólað í vinnuna og nota #hjoladivinnuna á samfélagsmiðlum eða senda mynd hér í gegnum heimasíðuna okkar.