Er þinn vinnustaður skráður í Hjólað í vinnuna? Það er ennþá hægt!

20. maí 2020

Íþrótta- og Ólympíusambandinu minnir á að heilsuátakið Hjólað í vinnuna er enn þá í fullum gangi. Það er tæp vika eftir af átakinu og alls ekki of seint að vera með. Nú er um að gera að hvetja alla starfsmenn til að skrá sig til leiks og vera duglega að velja virkan ferðamáta til og frá vinnu. Hægt er að skrá ferðirnar sínar frá byrjun, eða frá 6. maí. Það er dásamlegt hjóla- og/eða gönguveður þessa dagana og því ekkert því til fyrirstöðu að velja virkan ferðamáta til og frá vinnu.

Við minnum á að þrátt fyrir sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu núna er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Fyrirtæki og stofnanir um allt land þurfa að vera dugleg í að hvetja allt starfsfólk til að vera með þrátt fyrir að fólk vinni jafnvel heiman frá sér.

Mikilvægt er fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Útfærslan er einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.

Praktískar upplýsingar:
Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra.
Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.

Að skrá sig til leiks:

1. Farið er inná vef Hjólað í vinnuna,
2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
3. Ef þú átt ekki aðgang þá stofnarðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða búðu þér til notendanafn og lykilorð.
4. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
5. Skráningu lokið

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inná vef Hjólað í vinnuna 

Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna gefur Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4000 eða á netfangið
hjoladivinnun@isi.is.