Hjólað í vinnuna í fullum gangi og enn hægt að skrá sig
Hjólað í vinnuna fer fram dagana 6. - 26. maí. Yfir 5000 þátttakendur eru skráðir til leiks og enn er hægt að skrá sig og alla hreyfingu aftur í tímann.
Við hvetjum ykkur til að ganga í lið á ykkar vinnustað eða stofna lið þar sem þarf og hvetja vinnufélagana áfram með ykkur!
Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta.
Keppt er í átta flokkum um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustöðum og í liðakeppni um flesta kílómetra.
Aðalatriðið er að fá sem flesta með sem oftast, til að hjóla, ganga, taka strætó, nota línuskauta eða annan virkan ferðamáta.
Að skrá sig til leiks:
1. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
2. Stofnaðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða búðu þér til notendanafn og lykilorð.
3. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn).
4. Skráningu lokið
Ef upp koma vandamál við skráningu er hægt að hafa samband við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í síma 514-4000 eða senda tölvupóst á netfangið hjoladivinnuna@isi.is.