Hjólað í vinnuna lýkur í dag
Síðasti keppnisdagur Hjólað í vinnuna fer fram í dag, þriðjudaginn 22. maí. Hægt er að skrá ferðir fyrir daginn í dag fram til miðnættis. Lokað verður fyrir allar skráningar kl. 13.00 á morgun, miðvikudaginn 23. maí.
Gaman hefur verið að fylgjast með því hvað þátttakendur eru iðnir við að nota virkan samgöngumáta, þrátt fyrir veðrið í maí.
Til gamans má geta að þátttakendur Hjólað í vinnuna 2018 eru samanlagt búnir að hjóla, ganga, nota almenningssamgöngur eða hlaupa 227.249 km til þessa. 4159 þátttakendur eru skráðir í verkefnið og hafa þeir hjólað tæpa 170 hringi í kringum Ísland.
Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum föstudaginn 25. maí kl. 12:10. Hlökkum til að sjá sem flesta. Endilega hjólið við og fáið ykkur súpu og bauð.
ÍSÍ minnir á leiki Hjólað í vinnuna sem finna má hér og hvetur fólk til að senda inn reynslusögur, myndir og myndbönd.