Hjólað í háskólann 2018

03. apríl 2018

Almenningsíþróttasvið ÍSÍ og umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands munu leiða saman reiðhesta sína að nýju í sameiginlegu hjólreiðaátaki nemenda HÍ dagana 9.-13. apríl 2018. Hin hefðbundna keppni Hjólað í vinnuna er ávallt haldin í byrjun maí á ári hverju en sá tími er venjulega mikill álagstími fyrir háskólanema vegna vorprófa og hafa þeir oft átt erfitt með að ná fullri þátttöku sökum þess. Opnað verður fyrir skráningu háskólanema í keppnina þann 6. apríl og hefst keppnin sem fyrr segir þann 9. apríl.

Hjólað í Háskólann byrjaði árið 2010 sem samfélagsverkefni fimm nemenda í Umhverfis- og byggingaverkfræðideild en færðist síðar meir undir Umhverfis- og samgöngunefnd SHÍ. Fyrirmyndin er átak ÍSÍ um Hjólað í vinnuna þar sem lögð er áhersla á fýsileika reiðhjólsins sem heilsusamlegs, umhverfisvæns og hagkvæms samgöngumáta. Enn fremur er átakinu og keppninni ætlað að styrkja jákvætt og heilbrigt félagslíf í Háskóla Íslands.

Góður grundvöllur var því fyrir samstarfi ÍSÍ og SHÍ á þeim nótum að tölvu- og skráningarkerfi heimasíðunnar Hjólað í vinnuna var notað undir keppnina Hjólað í Háskólann 2017. Gekk samstarfið og átakið með ágætum á síðasta ári og því rakið dæmi að endurtaka leikinn. Vonandi bregður engum í brún við að sjá hjólaskráningar stúdenta hér á síðunni í ótta um að þeir séu að missa af lestinni þetta árið. Til að taka af allan vafa þá hefst Hjólað í vinnuna á sínum tíma þann 2.maí og stendur til 22.maí en áður en að því kemur munu háskólanemar taka forskot á sæluna og hita upp með sínu eigin hjólreiðaátaki fyrst.