ÚRSLIT í Hjólað í vinnuna 2017

24. maí 2017

Hjólað í vinnuna var haldið í fimmtánda sinn í ár. Nú er keppni lokið og úrslit eru ljós. Hér má nálgast staðfest úrslit þriggja efstu vinnustaða í hverjum flokki. Heildar stöðu keppninar má svo nálgast hér. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall daga. Í kílómetrakeppninni eru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra. 

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2017 verður föstudaginn 26. maí klukkan 12:10 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Allir eru boðnir velkomnir og vonumst við til að sjá ykkur sem flest. 



Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar fyrir þátttökuna í ár og vonar að þið hafið haft gaman af og haldið áfram að hjóla inn í sumarið.

Hjólakveðjur.