Hjólaaðstaða, Hjólafærni og starfsmannafjöldi

16. maí 2017

Nú er Hjólað í vinnuna 2017 rúmlega hálfnað þetta árið og rífandi gangur er á þátttöku og kílómetraskráningu. Þátttakendur geta enn skráð sig til leiks og því er um að gera að ýta við vinnufélaganum til að virkja hann til góðra hjólreiða. Við hvetjum alla til að senda okkur frásagnir af stemmningunni á vinnustaðnum og ekki síður að láta vita hvernig hjólaaðstaðan er í staðnum því að oft gleymist að það er lykilatriði til þess að hægt sé hjóla til vinnu að staðaldri.

Við bendum á að hægt er að hafa samband við Hjólafærni um að koma í heimsókn með fróðleik, námskeið, vinnustaðavottun og einnig þúsundþjalasmiðina í Dr. BÆK sem ástandsskoða reiðfákana.

Þá minnum við á að á morgun er síðasti dagur til að leiðrétta skráningu á starfsmannafjölda fyrir vinnustaði ef sú fjöldatala er ekki rétt skráð. Sendið okkur tölvupóst á hjoladivinnuna@isi.is og við uppfærum starfsmannafjöldann í snatri.

Einnig má því við bæta að vegna eftirspurnar þá útbjuggum við nýjan valflokk fyrir vistvænan og virkan ferðamáta en það er valkosturinn Samferða/ganga. Er það gert til að koma til móts við þá starfsmenn sem sameinast um ferðir og eru samferða áleiðis til vinnu enda er það vistvæn nálgun að fullnýta bílferðir. Hvað skráningu í keppninni varðar þá gildir þar það sama og með valkostinn Strætó/ganga að eingöngu eru skráðir þeir kílómetrar sem gengnir eru. Til vibótar má benda á að til er heimasíðan www.samferda.net þar sem fólk getur sameinast um að samnýta ferðir sínar og verið samferða víða um land.

Hjólaveðrið er ennþá frábært um allt land þannig að við hvetjum alla til að fara út að hjóla!