Fyrsta kaffitjald af fimm var í morgun
11. maí 2015
Margir hjóluðu við í fyrsta kaffitjaldi Hjólað í vinnuna í ár sem var við brúna yfir Kringlumýrarbraut, Nauthólsvíkur megin. Hér má sjá nokkrar myndir af hressum hjólagörpum!
Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér kaffi og Kristal á eftirtöldum stöðum í Reykjavík og í Hafnarfirði dagana 11-20. maí frá kl: 6:45 - 9:00.
- 12. maí á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar, Laugardals megin
- 13. maí við Fjarðargötu, gegnt verslunarmiðstöðinni Firði
- 19. maí uppi á Höfða/Hálsum - nánari staðsetning auglýst síðar
- 20. maí við Hljómskálagarðinn - nánari staðsetning auglýst síðar
Kaffitár bíður upp á kaffi og Ölgerðin upp á kristal. Einnig verða viðgerðarmenn frá Reiðhjólaversluninni Erninum á staðnum og aðstoða við minniháttar lagfæringar á hjólum.