Dagskrá opnunarhátíðarinnar

07. maí 2013Hjólað í vinnuna rúllar formlega af stað á morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum kl. 8:30. Þátttakendur eru hvattir til að hjóla við, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur, Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og Árni Davíðsson, formaður LHM ávarpa gesti. DR. Bæk verður á svæðinu og fer yfir hjólin.

Allir velkomnir.