Hjólað í vinnuna hefst 1. maí 2026
23. mars 2026Hjólað í vinnuna mun standa yfir allan maí. Átakið hefst 1. maí og lýkur 31. maí. Skráning hefst föstudaginn 17. apríl og það er um að gera að hvetja samstarfsfólk til þátttöku og huga að liðinu/liðunum á þínum vinnustað. Í ár eru keppnisdagarnir 18.
Leiðbeiningar og reglur á íslensku og ensku má finna undir flipanum "Um hjólað" á heimasíðu verkefnisins hjoladivinnuna.is