Úrslit og verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2025
Hér má sjá úrslit í 1. - 3. sæti öllum flokkum í hlutfalli daga og kílómetrakeppninni.
Verðlaunaafhendingin verður á mánudaginn 2. júní kl. 12:10 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fundarsalir B og C, 3. hæð.
ÍSÍ hvetur þá vinnustaði sem voru í fyrstu þremur sætunum að senda fulltrúa til að taka við verðlaunum.
Allir þátttakendur eru velkomnir að mæta og þiggja súpu í boði ÍSÍ.
Þeir sem unnu í skráningar, mynda eða liðstjóraleik eru einnig hvattir að koma og ná í sína vinninga. Hér má sjá alla vinningshafa
Alls voru 330 virkir vinnustaðir skráðir í átta stærðarflokkum og 237 lið í kílómetrakeppninni.
Þátttakendur Hjólað í vinnuna 2025 stóðu sig með prýði en 4.346 þátttakendur skráðu sínar ferðir eða alls 297.450km, sem samsvarar um 222,14 hringjum í kringum landið. Dagafjöldinn í ár voru 15. Þátttakan í ár er aðeins slakari en í fyrra en þá voru 4.511 virkir þátttakendur sem fóru samtals 299.477. Dagafjöldinn í fyrra voru 13.
Hjólað í vinnuna 2026 verður haldið dagana 4. - 24. maí og markmiðið er að fá 5.000 eða fleiri til að taka þátt.
ÍSÍ þakkar samstarfsaðilum fyrir samstarfið og þátttakendum fyrir góða keppni.
Mynd: Hafdís/Hrafnista Hraunvangur