Sabre fer alla leið í Hjólað í vinnuna
Átakið Hjólað í vinnuna hefur um árabil verið fastur liður í vorinu hjá mörgum íslenskum fyrirtækjum. Það sameinar hreyfingu, útiveru og hópefli – og hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Sabre hefur það þróast úr einfaldri tilraun yfir í metnaðarfyllt verkefni sem heldur starfsmönnum virkum, samstilltum og ekki síst – á hjóli.
„Við byrjuðum upphaflega bara að prófa að taka þátt,“ segir Magnús Sigurðsson frá Sabre. „En svo þróaðist þetta yfir í að við vildum ekki bara vera með – heldur vinna þetta.“ Þátttakan hefur smám saman orðið að föstum hluta af menningu fyrirtækisins. Þar ríkir sú hugsun að þó ekki allir hjóli alla daga, þá skili allir einhverju – og stór hluti hjólar nánast alla leið í gegnum átakið.
Hjólið – óformlegur hluti ráðningarferlisins
Þátttakan er svo rótgróin að hún kemur nánast við sögu í ráðningarviðtölum. „Það er ekki þannig að það sé skilyrði að eiga hjól, en við nefnum þetta í viðtölum – að þetta sé hluti af okkar vorhefð,“ útskýrir Magnús. „Þetta snýst um hópefli, að standa saman og taka þátt – þó maður hjóli bara einu sinni í viku.“
Keppnisskapið hefur á köflum verið mjög áberandi hjá starfsfólkinu. „Þegar kílómetrakeppnin var sem mest, tóku sumir þetta gríðarlega alvarlega – hjóluðu alla leið til Þingvalla og til baka í vinnuna,“ segir Magnús og hlær. Hann fagnar þó breytingum á reglunum sem gera þátttökuna sveigjanlegri og fjölbreyttari. „Núna snýst þetta meira um að taka þátt – þó eitt lið hjá okkur haldi áfram að mæla kílómetra.“
Hjá Sabre hefur tekist vel að byggja umgjörð utan um átakið. „Við höfum alltaf tvo sameiginlega morgunverði á meðan á átakinu stendur. Þá hittumst allir, fáum okkur gott að borða, förum yfir stöðuna og hjólum saman í vinnuna.“
Fyrirtækið leggur einnig mikið upp úr því að skapa aðstöðu sem styður við hjólreiðarnar. „Við erum með sturtur, hjólagrindur úti og aðstöðu til að gera við hjólin – slöngur, pumpur og annað smálegt sem nýtist ef eitthvað kemur upp á.“ Áður en átakið hefst, skipuleggja þau líka eitt síðdegi þar sem starfsfólk getur komið með hjólin sín og fengið aðstoð við viðhald og stillingar.
Þátttakan hefur haft jákvæð áhrif á andrúmsloftið í vinnunni. „Menn þjappa sér saman, peppa hver annan áfram og koma sér í gang. Þetta er ekki bara hreyfing – þetta er samvera,“ segir Magnús. „Við fundum líka fljótt fyrir því að kokkurinn þurfti að elda 25% meira á þessum tíma – fólk kemur svangt eftir að hafa hjólað.“
Stjórnendur hjá Sabre taka jafnframt þátt í að skapa sveigjanlegt vinnuumhverfi á meðan átakinu stendur. „Við erum ekkert að stressa okkur þó fólk komi aðeins seinna ef það er að hjóla. Fundum má hliðra til og flestir eru hvort sem er mættir á réttum tíma – eða fyrr.“
Keppni milli vinnustaða
Keppnin í Hjólað í vinnuna er ekki bara innan veggja Sabre – heldur líka á milli fyrirtækja. „Við lentum í öðru sæti fyrir tveimur árum og það var mjög sárt. Það var gríðarlega jafnt og við töpuðum fyrir erkióvininum okkar – heilsuleikskólanum í Vogunum. Þau eru mjög dugleg og yfirleitt okkar helsti keppinautur,“ rifjar Magnús upp. „En við náðum þeim aftur árið eftir – og núna eru þau örugglega að plotta eitthvað á móti okkur!“
Ráð og hvatning til fyrirtækja
Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í að hvetja starfsfólk til að hjóla ættu að nálgast verkefnið með léttleika, að sögn Magnúsar. „Ekki setja pressu – þetta á að vera jákvætt og skemmtilegt. Byrja bara lítið, setja lítið markmið – og byggja síðan ofan á það næsta ár.“
Aðstaðan skiptir líka máli: „Ef fólk hefur sturtur, geymslupláss og eitthvað smá verkfæri ef eitthvað kemur upp á – þá er miklu auðveldara að taka þátt.“
Skilaboð Magnúsar til þeirra sem eru óöruggir eða nýbyrjaðir eru einföld og hvetjandi: „Það er erfiðast að taka fram hjólið og fara í fyrstu ferðina. En prófaðu – einu sinni, tvisvar – og sjáðu hvað þetta er í raun einfalt og skemmtilegt. Þetta er miklu minna mál en þú heldur. Og hafðu hjólið í lagi – það skiptir öllu.“