Allir geta tekið þátt
30. apríl 2021
Skráning í Hjólað í vinnuna er í fullum gangi en keppnin hefst þann 5. maí næstkomandi. Það er einfalt að skrá sig til leiks með því að smella á "Innskráning" á heimasíðu Hjólað í vinnuna og annaðhvort stofna eða ganga í lið. Leiðbeiningar um skráningu í Hjólað í vinnuna má nálgast hér.
Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim.
- Þeir sem eru að vinna heima hjá sér geta að sjálfsögðu tekið þátt. Viðkomandi byrjar þá vinnudaginn með því að hjóla, ganga eða hlaupa þá vegalengd sem samsvarar vegalengdinni til og frá vinnu í upphafi vinnudags, og svo aftur í lok vinnudags.
- Þeir sem eru atvinnulausir og í atvinnuleit geta einnig að sjálfsögðu tekið þátt. Áhugasamur atvinnuleitandi stofnaði þessa Facebooksíðu fyrir þá sem vilja vera með öðrum í liði í Hjólað í vinnuna og eru í atvinnuleit. Ef fólk vil heldur stofna sitt eigið lið sjálft er það auðvitað líka hægt.
Setningarhátíðin fer að þessu sinni fram í Þróttaraheimilinu í Laugardal en vegna samkomutakmarkana verða eingöngu boðsgestir viðstaddir að þessu sinni.