Kaffitjöld á höfuðborgarsvæðinu á morgun
21. maí 2013
Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við í kaffitjöldum Hjólað í vinnuna á morgun, miðvikudaginn 22. maí á 5 stöðum á höfuðborgarsvæðinu frá 6:45 – 9:00. Kaffitár býður upp á kaffi og Ölgerðin upp á Egisl Kristal. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum, LHM og öðrum hjólreiðasamtökum verða á staðnum og kynna sína starfsemi. Viðgerðamenn frá Reiðhjólaversluninni Erninum bjóða upp á minniháttar lagfæringar á hjólum.
Kaffitjöldin verða á eftirfarandi stöðum:
Í Reykjavík:
- Á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar, Laugardals megin
- Við brúna yfir Kringlumýrarbraut, Nauthólsvíkur megin
- Við Miklubrautina hjá gangbrautarljósunum við Klampratún
Í Kópavogi:
- Á Kópavogstúni, fyrir framan undirgöngin við Fífuhvamm
Í Hafnarfirði
- Við Fjarðargötu, á móti verslunarmiðstöðinni Firðinum
Stefnt er að því að hafa kaffitjöldin opin aftur frá 16 – 18 þennan sama dag.