Alls voru 450 (376) vinnustaðir sem skráðu 966 (896) lið til leiks með 5720 (5392) liðsmenn og 346 (327) lið skráðu sig til leiks í kílómetrakeppnina.
Alls voru hjólaðir 428.926 km eða 330,33 hringir í kringum landið. Við það spöruðust rúmlega 64 þúsund tonn af útblæstri CO2, og rúmlega 36 þúsund lítrar af eldsneyti sem gera sparnað upp á rúmar 7 milljónir króna. Brenndar voru um 26 miljónir kaloría sé þessi vegalengd gengin en 13,7 milljónir kaloría sé þessi vegalengd hjóluð, sé miðað við 80 kg mann sem ekur á fólksbíl.
Ferðamáti var í 88,2% (89%) á hjóli, 7,0% (6,4%) gangandi, 3,9% (3,5%) strætó/gengið 0,5% (0,6%) hlaup, 0,2% (0,4%) strætó/hjólað, annað 0,1% (0,1%) og samferða/gengið 0,1%.
Hér að neðan má sjá úrslit í vinnustaðakeppni Hjólað í vinnuna 2017, bæði í vinnustaðakeppninni og kílómetrakeppninni.