Alls voru 567 (645) vinnustaðir sem skráðu 1248 (1388) lið til leiks með 9145 (7.837) liðsmenn og 487 (781) lið skráðu sig til leiks í kílómetrakeppnina.
Alls voru hjólaðir 734.946 km eða 548,88 hringir í kringum landið. Við það sparaðistum um 118 tonn af útblæstri CO2, og rúmlega 70 þúsund lítrar af eldsneyti sem gera sparnað upp á 17 milljónir króna. Brenndar voru um 46 miljónir kaloría sé þessi vegalengd gengin en 24 milljónir kaloría sé þessi vegalengd hjóluð, sé miðað við 80 kg mann sem ekur á fólksbíl.
Ferðamáti var í 89,1% (91%) á hjóli, 7% (7%) gangandi, 2,5% (1%) strætó/gengið og 0,7% (1%) hlaup.
Hér að neðan má sjá úrslit í vinnustaðakeppni Hjólað í vinnuna 2014, bæði í vinnustaðakeppninni og kílómetrakeppninni.