Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Algengar spurningar

Algengar spurningar í tengslum við Hjólað í vinnuna
Um hvað er keppt?
Keppnisgreinar í Hjólað í vinnuna eru tvær:
1. Vinnustaðakeppni þar sem keppt er um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við fjölda starfsmanna á vinnustaðnum.
2. Kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liði.
Nánari upplýsingar um keppnisgreinar má finna undir „Um Hjólað í vinnuna – keppnisgreinar“
Hvað er í verðlaun?
Í vinnustaðakeppninni eru veittir viðurkenningarskildir í öllum keppnisflokkum til þeirra þriggja vinnustaða sem verða með hæsta hlutfall þátttökudaga. Í kílómetrakeppninni eru veittir viðurkenningarskildir til þriggja efstu liðanna fyrir annars vegar heildarfjölda km og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði.
Hvernig skrái ég mig?
Til þess að skrá þig til leiks þarft þú að vera hluti af liði innan vinnustaðar. Best er að athuga fyrst innan vinnustaðarins hvort einhverjir hafa þegar skráð sig til leiks og ef svo er getur þú bæst í hópinn með þeim. Ef enginn hefur skráð sig til leiks getur þú tekið að þér að vera liðsstjóri og hvatt þína samstarfsmenn til þess að taka þátt. Til þess að skrá vinnustað og jafnframt lið til leiks ferð þú inná www.hjoladivinnuna.is og smellir á „Nýskráning“ efst í hægra horninu. Fyrst stofnar þú aðgang fyrir þig og síðan stofnar þú vinnustaðinn þinn inn í kerfið. Fyrst setur þú kennitölu vinnustaðarins inn og smellir á „áfram“. (Ath. margir vinnustaðir innan sama sveitarfélags hafa sömu kennitölu eins og leikskólar, grunnskólar og skrifstofa sveitarfélagsins. Ef það er tilfellið hjá þér getur þú notað þína eigin kennitölu til að skrá vinnustaðinn/liðið til leiks.) Því næst fyllir þú inn þær upplýsingar sem beðið er um og vistar og þá er vinnustaðurinn þinn og jafnframt liðið þitt skráð til leiks. Nú getur þú valið um að skrá alla starfsmenn vinnustaðarins í eitt lið eða setja upp liðakeppni innan vinnustaðarins.
Nánari upplýsingar og skráningarleiðbeiningar má finna undir “Um Hjólað“ „Hvernig skrái ég mig til leiks – Að stofna vinnustað”.
Hvernig get ég skráð liðið mitt undir mínum vinnustað en einnig sem sér vinnustað í mínu sveitarfélagi?
Þegar höfuðstöðvar þíns vinnustaðar hafa skráð vinnustaðinn til leiks ásamt því að skrá inn allar starfsstöðvar vinnustaðarins víðsvegar um landið getur þú farið inná vefinn, www.hjoladivinnuna.is, farið í nýskráningu, slegið inn kennitölu vinnustaðarins, valið þína starfsstöð og klárað svo skráninguna. Þá birtist liðið þitt undir vinnustaðnum í vinnustaðakeppninni en einnig sem sér vinnustaður undir því sveitarfélagi sem þín starfsstöð tilheyrir.
Ath. Mikilvægt er að búið sé að stofna vinnustaðinn og allar starfsstöðvar áður en þú skráir liðið þitt til leiks.
Hvernig er vinnustöðum raðað upp í sæti?
Í vinnustaðakeppninni er keppt um flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum og raðast vinnustaðirnir upp eftir hlutfalli daga innan hvers flokks. Ef smellt er á „Staða vinnustaða“ birtast allir flokkarnir og undir hverjum flokki efstu vinnustaðirnir hverju sinni. Til að skoða alla vinnustaði í hverjum flokki skal smella á “Sjá alla vinnustaði”. Fjöldi daga stendur fyrir „hlutfall daga“ en hlutfallið er reiknað sem heildarfjöldi daga sem þátttakendur vinnustaðarins hafa hjólað deilt með heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Fjöldi kílómetra stendur fyrir „hlutfall km“ sem reiknast út á sama hátt og hlutfall daga, en ekki er keppt um hlutfall kílómetra eins og verið hefur síðustu ár.
Nánri upplýsingar um útreikninga má nálgast undir „ Um Hjólað” – keppnisgreinar“
Hvað stjórnar því í hvaða flokki vinnustaðurinn minn lendir?
Þegar vinnustaður er skráður til leiks í Hjólað í vinnuna þarf að skrá inn starfsmannafjölda. Sá fjöldi sem er skráður inn skal vera heildarfjöldi starfsmanna á vinnustaðnum óháð því hversu margir taka þátt. Þessi fjöldi ákvarðar svo í hvaða flokki vinnustaðurinn lendir. T.d. ef heildarfjöldi starfsmanna er 72 lendir vinnustaðurinn í flokknum 70 – 129 starfsmenn.
Hversu marga daga má skrá?
Hver þátttakandi getur skráð 18 daga og þá hvaða 18 daga sem er á átakstímabilinu.
Hvað má skrá:
• Allar ferðir sem farnar eru í og úr vinnu
• Vinnutengdar ferðir sem annars væru farnar á bíl, t.d. ferðir á fundi eða sendiferðir að því gefnu að viðkomandi hafi notað virkan ferðamáta í vinnu.
• ATH: Rafhjól og rafhlaupahjól eru vistvænn ferðamáti og eru gild í Hjólað í vnnuna. Reglan er að það þarf að margfalda kílómetrafjölda með 0,75 og skrá þá tölu inn í kerfið.
Dæmi: 3 km farnir á t.d hoppu (rafhlaupahjóli) 3 x 0,75 = 2,25km
Hvað má ekki skrá:
Meginmarkmið Hjólað í vinna er að hafa áhrif á ferðavenjur fólks. Þó svo að eftirfarandi leiðir séu frábærar til að hreyfa sig í daglegu lífi samræmast þær ekki meginmarkmiði verkefnisins. Við bendum hinsvegar á að hægt er að skrá þá hreyfingu í Lífshlaupið, www.lifshlaupid.is.
• Heilsubótarhreyfingu í hádeginu, göngu eða hjólreiðatúr
• Hjólaferðir/gönguferðir sem farnar eru eftir að heim er komið úr vinnu
• Ferðir innan vinnustaðar sem farnar eru á hjóli eða gangandi t.d. starfsmaður sem gengur um og dreifir pósti má ekki skrá þá hreyfingu.
Hvaða starfsmannafjölda á að skrá?
Skrá á þann starfsmannafjölda sem launadeild viðkomandi vinnustaðar hefur á launaskrá þegar keppni hefst, óháð starfshlutfalli.
• Ef einhverjir starfsmenn eru í orlofi eða námsleyfi má draga þann fjölda frá
Hvernig tek ég þátt í skráningarleiknum?
Einn vinningshafi dreginn út á hverjum virkum degi á meðan Hjólað í vinnuna stendur yfir í þættinum Morgunverkin á Rás 2. Til þess að komast í pottinn þarf einungis að skrá sig til leiks í Hjólað í vinnuna. Þann 27. maí verður aðalvinningurinn dreginn út. Nánari upplýsingar um leikinn og vinning má nálgast undir “Viðburðir – Leikir - Skráningarleikur”.
Hvernig tek ég þátt í myndaleiknum?
Til þess að taka þátt í myndaleik Hjólað í vinnuna þarf að taka skemmtilega mynd eða myndband eða senda inn skemmtilega reynslusögu og þá ert þú kominn í pottinn. Myndbönd og reynslusögur eru sendar inn í gegnum vef Hjólað í vinnuna en myndirnar má senda inn á þrjá vegu:
• Instagram: #hjolaðivinnuna
• Facebook síðu Hjólað í vinnuna
• Í gegnum vef Hjólað í vinnuna
Tveir heppnir myndasmiðir verða dregnir út í Morgunverkin á Rás 2 ásamt því að besta myndin verður sérstaklega verðlaunuð. Vinninghafar fá vöru frá Reiðhjólaversluninni Erninum.
Hvernig tek ég þátt í liðsstjóraleiknum?
Allir þeir sem skrá lið til leiks í Hjólað í vinnuna og eru liðsstjórar fyrir sín lið eru í pottinum í liðsstjóraleiknum. 10 heppnir liðsstjórar verða dregnir út og hljóta þeir verðlaun frá Reiðhjólaversluninni Erninum.
Hvaða reglur gilda?
Þær reglur sem gilda eru fáar en á móti treystum við á að þátttakendur séu heiðarlegir í sinni skráningu. Reglur Hjólað í vinnuna má nálgast undir “Um Hjólað” – Reglur”.
Hverjir mega taka þátt?
Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að koma sér til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð.
Hvernig sendi ég inn mynd í gegnum vef Hjólað í vinnuna?
Þú ferð inná www.hjoladivinnuna.is. Á forsíðunni velur þú ”Viðburðir” og þar undir velur þú ”Myndasafn” og smellir þar. Þá færðu upp myndasíðu þar sem þú smellir á ”Smelltu hér til að senda inn mynd”. Þar sækir þú myndina sem þú ætlar að senda inn, setur inn þitt nafn, nafn vinnustaðar og nafn liðs og smellir svo á „Skrá“. Ef vandamál koma upp við að senda inn myndir getur þú prufað að minnka myndina og reyna svo aftur. Ef ekkert gengur getur þú haft samband á netfangið hjoladivinnuna@isi.is.
Hvernig sendi ég inn reynslusögu?
Þú ferð inná www.hjoladivinnuna.is. Á forsíðunni velur þú ”Viðburðir” og þar undir velur þú ”Reynslusögur” og smellir þar. Þá færðu upp yfirlitssíðu með öllum reynslusögunum þar sem þú velur ”Með því að smella hér getur þú sent inn Reynslusögu”. Þegar þú hefur smellt á þann tengil setur þú inn nafnið þitt, nafnið á þínum vinnustað, nafn liðsins og svo reynslusöguna og smellir á „Skrá“. Reynslusagan birtist svo undir „Reynslusögur – 2025“ þegar umsjónarmenn Hjólað í vinnuna hafa samþykkt söguna.
Hvernig tek ég þátt í kílómetrakeppninni?
Til þess að taka þátt í kílómetrakeppninni þarf að haka við í reit tileinkuðum keppninni. Þegar farið er í gegnum nýskráningu og liðið skráð til leiks getur liðsstjóri hakað í reitinn „já, við tökum þátt í kílómetrakeppninni“. Ef búið er að skrá liðið til leiks og ekki var hakað í þennan reit getur liðsstjóri skráð sig inn og hakað í „Tökum þátt í kílómetrakeppninni“ og þá skráist liðið í keppnina. Athugið að liðið birtist ekki undir „Staða í kílómetrakeppni“ fyrr en búið er að skrá a.m.k. 3 liðsmenn í liðið. Lágmarksfjöldi í liði er 3 og hámarksfjöldi er 10 liðsmenn.
Af hverju birtist mitt lið ekki undir „Staða í kílómetrakeppni“?
Liðið birtist ekki þar undir fyrr en búið er að skrá a.m.k. 3 liðsmenn í liðið þar sem lágmarksfjöldi í liði í kílómetrakeppninni er 3.
Hvernig er staðan reiknuð út í kílómetrakeppninni?
Í kílómetrakeppninni er keppt um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miðað við fjölda liðsmanna í liðinu.
Dæmi:
Lið með 8 liðsmönnum ákveður að skrá sig til leiks í kílómetrakeppnina. Um leið og liðsstjórinn hefur hakað við kílómetrakeppnina og skráð liðsmennina til leiks birtis liðið undir „Staða í kílómetrakeppni“. Þar undir birtast liðin og fyrir aftan sá vinnustaður sem liðið tilheyrir og svo fjöldi liðsmanna í liðinu. Undir Samtals KM birtist svo heildarfjöldi kilómetra sem liðið hefur hjólað og undir Hlutfall KM birtist hlutfall km á hvern liðsmann, en það er reiknað út sem:
Hlutfall KM = Samtals KM / fjöldi liðsmanna
Veitt eru verðlaunskildir til þriggja efstu liðanna fyrir annars vegar samtals KM og hins vegar hlutfall KM. Með því að smella á Samtals KM eða Hlutfall KM má raða liðunum upp í röð eftir árangri.
Af hverju má ekki skrá alla hreyfingu inn?
Markmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum og umhverfisvænum ferðamáta sem heilsusamlegum og hagkvæmum samgöngumáta. Þar af leiðandi má einungis skrá ferðir sem farnar eru í og úr vinnu sem og vinnutengdar ferðir sem annars hefðu verið farnar á bíl. Við bendum þeim sem vilja skrá alla sína hreyfingu inn að nýta sér Lífshlaupið, www.lifshlaupid.is.
Hvernig eyði ég liði?
Til að eyða liði þarf að senda póst á hjoladivinnuna@isi.is og biðja um að liði verði eytt.


Frequently Asked Questions
What is the competition about?
There are two competition categories in Hjólað í vinnuna:
The Workplace Competition, where workplaces compete for the highest ratio of participation days in relation to the total number of employees.
The Kilometre Competition, where teams compete both in total kilometres and average kilometres per team member.
More information can be found under “About Hjólað í vinnuna – Competition Categories.”
What are the prizes?
In the Workplace Competition, recognition plaques are awarded to the top three workplaces in each category based on the highest participation ratio.
In the Kilometre Competition, plaques are awarded to the top three teams for both total kilometres and average kilometres per team member.
How do I register?
To participate, you must be part of a team within your workplace. First check whether colleagues have already registered a team. If so, you can join that team.
If no team exists, you can become the team leader and encourage your colleagues to join.
To register, go to www.hjoladivinnuna.is and click “Nýskráning” (New Registration).
Create your user account, then register your workplace. Enter the workplace ID number (kennitala) and continue. If several workplaces share the same ID number (such as schools within a municipality), you may use your own ID number instead.
Fill in the required information and save. You can then choose to register all employees in a single team or create multiple teams within the workplace.
More details are available under “About Hjólað – How to Register Your Workplace.”
How do I register my team under my workplace AND as a separate workplace within my municipality?
Once the main workplace has been registered along with all its branches nationwide, go to www.hjoladivinnuna.is, begin a new registration, enter the workplace ID number, select your branch location, and complete the registration.
Your team will then appear under the main workplace in the Workplace Competition, and also as an individual workplace under your municipal category.
Note: The workplace and all its branches must be created in the system before you register your team.
How are workplaces ranked?
Workplaces are ranked by the ratio of participation days relative to the total number of employees.
Under “Workplace Ranking,” the categories and current leading workplaces are displayed.
Participation days = total days cycled divided by total number of employees.
Kilometres are displayed the same way, although the kilometre ratio is not a competition category this year.
More details under “About Hjólað – Competition Categories.”
What determines the workplace category?
When registering, you enter the total number of employees at the workplace. That number determines the category. For example, a workplace with 72 employees enters the 70–129 employee category.
How many days may I record?
Each participant may log up to 18 days within the challenge period.
What counts as valid activity?
• All trips to and from work
• Work-related trips that would otherwise be taken by car (meetings, errands), provided a sustainable mode is used
• E-bikes and e-scooters count as valid. Distance must be multiplied by 0.75 before logging.
Example: 3 km × 0.75 = 2.25 km
What does NOT count?
Because the project focuses on commuting habits, the following activities do not count (but can be logged in Lífshlaupið):
• Lunchtime exercise
• Walks or bike rides after arriving home from work
• Movement within the workplace (e.g., walking to deliver mail)
Which employee count should be registered?
Register the number of employees on the payroll at the start of the competition, regardless of employment percentage.
Employees on leave or sabbatical may be excluded.
How do I join the daily registration prize draw?
One winner is drawn every working day during the competition live on Rás 2.
To enter, you only need to be registered for Hjólað í vinnuna.
The main prize is drawn on May 27.
More information is under “Events – Games – Registration Game.”
How do I take part in the photo competition?
Submit a fun photo, video, or short story.
Photos may be submitted via:
• Instagram with #hjolaðivinnuna
• The Hjólað í vinnuna Facebook page
• The official website
Two winners are drawn on Rás 2, and the best photo also receives a special prize from the bike shop Ernir.
How do I take part in the team leader competition?
All team leaders who register a team are automatically entered.
Ten team leaders will win prizes from Reiðhjólaverslunin Ernir.
What rules apply?
Participants are expected to log their activity honestly. Rules are listed under “About Hjólað – Rules.”
Who can participate?
Everyone, as long as they use their own energy to travel to and from work: cycling, walking, running, rollerblading, etc.
Public transport users may also participate by logging the distance walked or cycled to and from the bus stop.
How do I submit a photo through the website?
Go to www.hjoladivinnuna.is → “Events” → “Photo Gallery.”
Click “Click here to upload a photo,” select your photo, add your name, workplace, and team, and submit.
If issues arise, try reducing the image size or email: hjoladivinnuna@isi.is.
How do I submit a story?
Go to www.hjoladivinnuna.is → “Events” → “Stories.”
Click the link to submit your story, fill in your details, and send.
Stories appear under “Stories – 2025” once approved.
How do I join the Kilometre Competition?
During registration, the team leader must tick “Yes, we participate in the kilometre competition.”
If the team is already registered, the team leader may log in later and enable it.
The team will not appear in the rankings until at least 3 members are registered (minimum team size is 3, maximum 10).
Why doesn’t my team appear in the kilometre rankings?
Teams only appear after at least 3 members have been registered.
How is the kilometre ranking calculated?
Teams compete for:
• Total kilometres
• Average kilometres per team member
Average KM = Total KM / number of team members
Prizes are awarded to the top three teams in both categories.
Why can’t all physical activity be logged?
The aim is to promote active, environmentally friendly commuting, so only commuting and work-related trips count.
For general physical activity, participants are encouraged to log that in Lífshlaupið (www.lifshlaupid.is).
How do I delete a team?
Send an email to hjoladivinnuna@isi.is and request that the team be removed.
Heim
Innskráning
Innskráning með Facebook
Gleymt lykilorð?
Nýskráning
Nýskráning
  • Staðan
    • Allir vinnustaðir og tölfræði
    • Sveitarfélög
    • Kílómetrakeppni
    • Vinnustaður 800 ofl. starfsmenn
    • Vinnustaður 400 - 799 starfsmenn
    • Vinnustaður 130 - 399 starfsmenn
    • Vinnustaður 70 - 129 starfsmenn
    • Vinnustaður 40 - 69 starfsmenn
    • Vinnustaður 20 - 39 starfsmenn
    • Vinnustaður 10 - 19 starfsmenn
    • Vinnustaður 3 - 9 starfsmenn
  • Úrslit
    • Úrslit 2025
    • Úrslit 2024
    • Úrslit 2023
    • Úrslit 2022
    • Úrslit 2021
    • Úrslit 2020
    • Úrslit 2019
    • Úrslit 2018
    • Úrslit 2017
    • Úrslit 2016
    • Úrslit 2015
    • Úrslit 2014
    • Úrslit 2013
    • Úrslit 2012
    • Úrslit 2011
    • Úrslit 2010
    • Úrslit 2009
    • Úrslit 2008
    • Úrslit 2007
    • Úrslit 2006
    • Úrslit 2005
    • Úrslit 2004
    • Úrslit 2003
  • Um Hjólað
    • Hvernig skrái ég mig til leiks?
    • Reglur
    • Algengar spurningar
    • Keppnisgreinar
    • Kílómetrakeppnin
    • Starfsmannafjöldi vinnustaða
    • Efni til að deila
    • Fréttir
    • Fróðleikur
    • Umsjónaraðilar
    • Hafa samband
    • English instructions
  • Viðburðir
    • Skráningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ
    • Mikilvægar dagsetningar
    • Leikir
  • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Reynslusögur
  • Staðan
    • Staðan
    • Allir vinnustaðir og tölfræði
    • Sveitarfélög
    • Kílómetrakeppni
    • Vinnustaður 800 ofl. starfsmenn
    • Vinnustaður 400 - 799 starfsmenn
    • Vinnustaður 130 - 399 starfsmenn
    • Vinnustaður 70 - 129 starfsmenn
    • Vinnustaður 40 - 69 starfsmenn
    • Vinnustaður 20 - 39 starfsmenn
    • Vinnustaður 10 - 19 starfsmenn
    • Vinnustaður 3 - 9 starfsmenn
  • Úrslit
    • Úrslit
    • Úrslit 2025
    • Úrslit 2024
    • Úrslit 2023
    • Úrslit 2022
    • Úrslit 2021
    • Úrslit 2020
    • Úrslit 2019
    • Úrslit 2018
    • Úrslit 2017
    • Úrslit 2016
    • Úrslit 2015
    • Úrslit 2014
    • Úrslit 2013
    • Úrslit 2012
    • Úrslit 2011
    • Úrslit 2010
    • Úrslit 2009
    • Úrslit 2008
    • Úrslit 2007
    • Úrslit 2006
    • Úrslit 2005
    • Úrslit 2004
    • Úrslit 2003
  • Um Hjólað
    • Um Hjólað
    • Hvernig skrái ég mig til leiks?
    • Reglur
    • Algengar spurningar
    • Keppnisgreinar
    • Kílómetrakeppnin
    • Starfsmannafjöldi vinnustaða
    • Efni til að deila
    • Fréttir
    • Fróðleikur
    • Umsjónaraðilar
    • Hafa samband
    • English instructions
  • Viðburðir
    • Viðburðir
    • Skráningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ
    • Mikilvægar dagsetningar
    • Leikir
  • Sendu okkur
    • Sendu okkur
    • Myndir
    • Myndbönd
    • Reynslusögur
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Um Hjólað
  • Algengar spurningar

ÍSÍ - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík

Hafa samband

Mest skoðað

  • Gleymt lykilorð
  • Nýr notandi
  • Staðan
Facebook persónuupplýsingar
Eyðing gagna