Í dag er síðasti keppnisdagur

23. maí 2023Við erum komin á lokasprettinn í Hjólað í vinnuna, í dag er síðasti keppnisdagur. Nú fer hver að verða síðastur að ná inn ferðum og skrá þær í kerfið. Hægt verður að skrá til kl. 12:00 fimmtudagsins, 25. maí. Eftir það er engu hægt að breyta

Endilega verið dugleg sjálf og hvetjið einnig samstarfsfélagana til að klára verkefnið með trompi, og munið að skrá tímanlega inn í kerfið!

Við bendum á að hægt er að fylgjast með stöðunni hér á heimasíðu Hjólað í vinnuna.

Myndir með fréttinni voru sendar inn í gegnum heimasíðu Hjólað í vinnuna.

Myndir með frétt