Hjólað til góðs

09. maí 2023ÍSÍ og UNICEF hafa tekið höndum saman í verkefninu Hjólað í vinnuna þar sem gildi og hugsjón beggja sameinast í að efla einstaklinga og fyrirtæki til heilsueflandi þátttöku fyrir sig, Ísland og heiminn allan. Með þátttöku í Hjólað í vinnuna geta fyrirtæki nú heitið á sitt starfsfólk og stutt þannig við Loftlagssjóð UNICEF. Loftlagssjóður styrkir meðal annars menntun og fræðslu fyrir börn og ungt fólk varðandi loftlagsáhrif, nýsköpun á sjálfbærum og umhverfisvænum lausnum fyrir heilbrigðis- og menntakerfi og styrkir innviði samfélaga til að auka viðnám við loftlagsbreytingum.

HVERNIG VIRKAR ÁHEITAHLUTINN?
Til að taka þátt í Hjólað í vinnuna þarf eins og venjulega að fara inn á www.hjoladivinnuna.is og skrá vinnustaðinn til leiks. Í framhaldi af því geta starfsmenn skráð inn lið og skorað á aðra starfsmenn til að taka þátt. Til þess að leggja UNICEF lið eru fyrirtæki hvött til að heita á sitt starfsfólk og greiða upphæð áheita til UNICEF í lok átaksins. Allt fjármagn sem safnast þar inn er merkt Loftlagssjóði UNICEF. Eftir að fyrirtæki hefur skráð sig í Hjólað í vinnuna er það ábyrgðaraðili innan fyrirtækis sem tekur ákvörðun um það hvort fyrirtækið ætlar að vera með í áheitahlutanum og heita á sitt starfsfólk.

UNICEF á Íslandi mun hafa samband við fyrirtæki sem skrá sig til leiks og bjóða þeim að skrá áheit á sitt/sín lið. Jafnframt verður farið yfir það hvernig áheitin skila sér á vettvangi og hvernig best er að hvetja starfsfólk til þátttöku.

Til að fá frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Katrínu Erlu, verkefnastjóra fyrirtækjasamstarfs, með því að senda tölvupóst á katrins@unicef.is eða hringja í síma 552-6300.

MEIRA UM LOFTLAGSSJÓÐ UNICEF
Loftlagssjóður UNICEF leggur áherslu á að  finna leiðir að endurnýjanlegri orku og að auka þrautseigju á breyttum tímum í kjölfarið af loftlagsbreytingum til að vernda börn gegn áhrifum umhverfishnignunar og loftslagsbreytinga. Börn eru minnst ábyrg fyrir loftlagsbreytingum en sá hópur sem verður einna mest fyrir áhrifum af þeim.

UNICEF er í einstaklega góðri stöðu til þess að hafa áhrif á loftlagsbreytingar þar sem við störfum í yfir 190 löndum. Til að innleiða varanlegar langtíma breytingar þurfum við þolinmæði og þrautseigju. Fjármagnið sem fer í loftlagssjóð UNICEF er sveigjanlegt, sem þýðir að sérfræðingar okkar hafa frelsi til nýsköpunar og frelsi til að bregðast við breyttum þörfum á vettvangi. Sveigjanleikinn gerir sérfræðingum UNICEF einnig kleift að vinna þar sem þörfin og áhrifin eru mest.

Nóv. 2021 tóku gildi ný lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi. Lögin fela í sér tvöföldun á hlutfalli sem atvinnurekstraraðilar mega draga frá skattskyldum tekjum vegna framlaga til almannaheillastarfsemi, sem fer úr 0,75% í 1,5%.

Myndir með frétt