Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna fór fram í dag

31. maí 2019

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna 2019 fór fram í hádeginu í dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal að viðstöddum húsfylli.

Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, bauð gesti velkomna og kynnti til leiks alla vinningshafa í liðstjóraleiknum og einnig þann þátttakanda sem fékk stóra vinninginn í skráningarleiknum, sem var Trek hjól að verðmæti 100 þúsund krónur. Það var Auður Eiríksdóttir hjá Krabbameinsfélaginu sem var svo heppin að vinna stóra vinninginn. 

Þá kynnti Hrönn alla verðlaunahafa í Hjólað í vinnuna þetta árið. Allir vinningshafar í vinnustaðakeppninni sem og kílómetrakeppninni fengu glæsilegan verðlaunaplatta sem viðurkenningu fyrir sína frammistöðu. Staðfest úrslit í vinnustaðakeppninni má finna hér og í kílómetrakeppninni hér. Eins er hægt að skoða hvernig öllum vinnustöðum gekk á heimasíðu Hjólað í vinnuna undir "staðan"

Að lokinni verðlaunaafhendingu fékk Sesselja Traustadóttir, framkvæmdarstjóri Hjólafærni orðið. Hún flutti góða og gagnmerka tölu um hjólreiðar og veitti í kjölfarið viðurkenningar til fjölmargra fyrirtækja sem hlotið höfðu hjólavottun um hjólavænan vinnustað. 

Að vanda voru góðar veitingar á boðstólunum og þökkum við höfðingjunum hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fyrir að taka ávallt vel á móti okkur með sinni gestrisni og kræsingum.

Myndir af verðlaunaafhendingu er hægt að skoða á  myndasíðu ÍSÍ