Ein vika í að keppnin hefjist

26. apríl 2017

Nú er nákvæmlega ein vika í að Hjólað í vinnuna 2017 hefjist en keppnin stendur frá 3. – 23. maí nk. Skráning er hafin og fer vel af stað. Hægt er að skrá sig til leiks hér og með því tekur þú einnig þátt í skráningarleik Hjólað í vinnuna. Liðstjórar geta einnig unnið góða vinninga frá Erninum í liðstjóraleiknum og verða allir vinningshafar tilkynntir 

Langtímaveðurspáin lofar góðu fyrir næstu viku með hlýindi í veðurkortunum. Því er um að gera að hafa reiðfákinn og allan hjólabúnað í toppstandi þegar keppnin rúllar af stað. Við hvetjum alla til að deila myndum með okkur á Facebook og Instagram með #hjoladivinnuna og eiga möguleika á að vinna flotta hjálma í myndaleiknum okkar í boði Nutcase á Íslandi.

Setningarhátíðin verður miðvikudaginn 3. maí kl. 8:30 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Við hvetjum alla til að hjóla við og fá sér góða hressingu í tilefni dagsins.