Kaffitjöldin eru í dag

13. maí 2014Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér kaffi á þremur stöðum í Reykjavík, í Kópavogi og í Hafnarfirði miðvikudaginn 14. maí frá kl: 6:45 -  9:00. 

Kaffitár bíður upp á kaffi og Ölgerðin upp á kristal. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum og öðrum hjólreiðasamtökum verða á staðnum og kynna sína starfsemi. Einnig verða viðgerðarmenn frá Reiðhjólaversluninni Erninum á staðnum og aðstoða við minniháttar lagfæringar á hjólum.

Með því að smella hér er hægt að prenta út skjal með upplýsingum um kaffitjöld Hjólað í vinnuna á Höfuðborgarsvæðinu.

Hér má sjá kort af þeim stöðum þar sem kaffitjöldin verða.