Verðlaunaafhending á miðvikudaginn

02. júní 2014

Verðlaunaafhending fyrir Hjólað í vinnuna 2014 fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum miðvikudaginn 4. júní frá 12:10 - 13:00. Veittar verða viðurkenningar til þriggja efstu vinnustaða í hverjum flokki fyrir hlutfall daga og til þriggja efstu liðanna í kílómetrakeppninni, annars vegar fyrir heildarfjölda kílómetra og hins vegar fyrir hlutfall kílómetra.

Liðsstjórar og liðsmenn vinningshafa eru hvattir til þess að mæta og veit verðlaunum sínum viðtöku.

Allir velkomnir