Reynslusögur
Greinó 4 - Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Þegar ég hjóla í vinnuna þá er dagurinn á margan hátt öðruvísi. Ég vakna t.d. 30 mínútum fyrr en venjulega, kíki út um gluggann og gái til veðurs. Íhuga hvaða fatnað ég eigi að velja fyrir hjólaferðina, vona að það verður léttur stakkur en ekki vatnsheldur vindjakki. Set á mig heimatilbúið buff, hjálminn og dríf mig af stað. Hjóla aleiðis í vinnuna, fyrst um sinn meðfram umferðargötum en beygi fljótlega yfir á hjólastíg meðfram Öskjuhlíðinni. Þegar ég hjóla framhjá fyrstu grenitrjánum sé ég oft litla svarta og hvíta kanínu sem er furðulega oft á sama stað. Ilmurinn af trjánum kemur mér líka í gott skap og falleg birtan sem kemur í gegnum skóginn. Á leiðinni heyri ég fuglasöng og sé hvernig gróðurinn er allur að vakna eftir veturinn. Mér líður vel og hamast upp síðustu brekkuna áleiðis í vinnuna. Mæti síðan rauð í kinnum, frískleg og orkumeiri en þá daga sem ég vel bílinn fram yfir hjólið.
Orka 1 - Efla
Orka 1
Reynslusaga
Á morgun verður loksins farið af stað í hjólað í vinnuna. Liðsmenn Orka 1 hafa staðið við ráslínuna í marga daga og hefur Rut verið að birgja sig upp með hafragraut og eplabitum til að mæta orkutapið.
Björn er farið að tala um að hjóla bláfjallahringinn kl. 5:00 á morgnanna bara til að hita upp. Væntanlega mun hann þá ekki missa af sameiginlega morgunmatnum á föstudag…
Óli Jón leggur af stað frá Reykjanesbæ í nótt og verður passlega kominn til Straumsvíkur til að mæta á fund hjá Ísal kl. 10:00.
Ingvar hefur fundið hjólið sitt aftast í bílskúrnum (og ýmislegt annað sem var týnd í mörg ár).
Smáranir hlaupa töluvert mikið í boltanum í hverri viku og er spurning hvernig hægt verður að reikningsfæra það í keppnina.
Guðjón Eyólfur hjólar á Kawasaki en mun drepa á vélinni síðustu 20 km til að vera með. Jóhannes Rúnar er staddur í útlöndum en kemur sterkur inn í næstu viku.
Heimir og Robert hjóla alltaf og skrá kílómetrana . Þannig allt er tílbúið og verður hörð keppni innanhús milli liða hér hjá Eflu.
Fiseindirnar - Geislavarnir ríkisins
Nafn á hjólaliði er mjög mikivægt. Hvað á kalla hjólalið geislavarna ríkisins, þar sem næstum helmingur starfsmanna er eðlisfræðingar. Jú auðvitað Fiseindirnar. Fiseindir eru skemmtilega og léttar eindir sem ferðast um heiminn án mikillar mótstöðu. Enda er fiseindageislun ekki jónandi og þar með ekki heilsuspillandi geislun. Þrátt fyrir að fiseindir séu ekki sjaldgæfar eindir (um 65 milljarðar fiseindir á sekundu fara í gegnum hvern fersentimeter sem er hornréttur á sólina) þá eru líkurnar að rekast á eina aðeins 1 á móti fjórum fyrir allt lífið.
Skjalaskottur - Amtsbókasafn/Herak
Skjalaskotturnar eru sex og notast ansi mikið við tvo jafnfljóta eða hjólhestinn þegar ferðast skal á milli staða á Akureyri. Brekkugata 17 er vissulega í göngufæri fyrir þau öll og því eru bílar Skjalaskottna sjaldséðir (næstum aldrei-séðir) í parkplássum þar í kring. Sumir ganga, aðrir hjóla eins og brjálæðingar, afrekin eru ýmis og allir eru sigurvegarar á sinn hátt. Lára býr í Grundargerði, Sigrún býr í Hólsgerði, Doddi býr í Akurgerði, Hólmkell býr í Grænumýri, Gunnur býr í Strandgötunni og Guðrún Hulda í Munkaþverárstræti. Glöggir aðilar taka auðvitað eftir því að þessi upptalning er í nákvæmri fjarlægðarröð frá Brekkugötu 17! Þetta eru nefnilega ekki bara göngu- og hjólagarpar, heldur líka skipulagðir með meiru og hafa sennilega hjólað eða gengið flestar, allflestar ef ekki allar götur bæjarins. Skjalaskottur horfa því með tilhlökkun til "Hjólað í vinnuna". Og við erum þess fullviss um að bein leið í vinnuna er eitthvað sem verður ekki við lýði þessa daga, heldur verða teknir krókar á leið okkar, kílómetrar munu hrannast upp og í lokin standa uppi stoltar sex skjalaskottur, sem hafa ekki eytt krónu í bensín og umhverfið verður þar af leiðandi þakklátt!
Hlíðar - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis
Í morgun var lagt af stað í yndislegu veðri, sólin var að verma jörð en snjór var meðfram hjólastígum og í görðum, gaman var að sjá hvé margir voru hjólandi í morgunsárið. Eftir að hafa hjólað í allan vetur í misjöfnu veðri er gott að finna að sumarið er í nánd og mætast brosandi hjólamenn og konur á hverju götuhorni og hjólastígum, munum eftir að brosa og heilsa hvort öðru.
Króm - Þekking
Hjólað í vinnuna - dagur 1
Undirbúningur hefur verið þó nokkur hjá liðsstjórum liðanna tveggja og stjórn starfsmannafélagsins. Í ár verður innanhúskeppnin sú veglegasta síðan við byrjuðum að taka þátt, upphaf og endir mörkuð, í hverri viku einhver uppákoma í tengslum við keppnina. Spennan því allt að áþreifanleg og fyrsta dags beðið með eftirvæntingu.
Dagurinn rann upp og viti menn, veðurguðirnir eru með okkur þennan fyrsta dag, í gær var frost og norðanátt, í dag glaðasólskin og Eyjafjarðaráin spegilslétt í logninu. Þessir 12 kílómetrar sem liðsstjóri Króm hjólar í vinnuna voru unaðslegir í morgun, gæsir, álftir og endur buðu góðan dag og einnig aðrir hjólandi vegfarendur sem ég mætti á leiðinni. Síðasta brekkan upp í háskóla var svolítið erfið en ferðin öll vel þess virði að vakna hálftíma fyrr... vonum svo að norðanáttin haldi sér í skefjum!
Liðsstjóri Króm
Fákarnir - Hrafnista Reykjavík
Hrafnista er með nokkur lið, en okkar lið heitir Fákarnir. Við erum fimm í Fákunum og langar að senda inn vísu um okkur:
Fákarnir
Nú þeysast fákar fráir fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum þeysi ég.
Og golan kyssir kinn, og golan kyssir kinn.
Á harða, harða spani hendist áfram hjólafákur minn.
Það er sem fjöllin fljúgi móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi hjólið fer.
Og lund mín er svo létt, og lund mín er svo létt,
eins og gæt´ ég gjörvallt lífið geisað fram í hjólasprett.
Hve fjör í æðar færist fáknum með.
Hve hjartað léttar hrærist, hlær við geð;
að finna fjörtök stinn, að finna fjörtök stinn.
Þú ert mesti gæðagripur, góði létti hjólafákur minn.
María Hrund, hópstjóri
Hófý
Dagbjört
Auður Anna
Berglind
Brimblar1 - Brimborg
Talandi um uppákomur , þá er Sigurður F Reynisson í Brimborg búinn að lenda í smá uppákomum !
Það sprakk dekk hjá honum í síðustu viku , og svo brotnaði hjá honum „gírkassinn“ í gær !
Og hefur Sigurður F. nánast labbað jafnmikið með hjólið og hann hefur hjólað síðustu daga.(telst það með ?)
Meðfylgjandi er mynd af ónýta gírkassanum (myndin sendist sér)
f.h Brimborgarliðanna,
Halldóra J
OK Hjól - OK Hull ehf
9. maí.
Átakið fór vel af stað hjá OK Hjól, flestallir sem ætla að vera með mættu á hjólum í vinnuna og voru þannig öðrum til hvatningar og fyrirmyndar. Að loknum vinnudegi fór hópurinn svo á starfsmannafund við Elliðavatn og að sjálfsögðu var hjólað þangað.
Bergur Duracell-kanína fór mikið fram og aftur, kannaði hvað var framundan og sótti svo þá öftustu í hópnum. Kannski ætti að minnka eitthvað vítamínskammtinn hjá honum, svo hann fari sér ekki að voða.
Tobba fór löngu leiðina heim og skilaði okkur hinum fyrst, eins og góðum starfsmannastjóra sæmir, á meðan Jón Túrbó var næstum orðimm klökkur yfir þvií að fá svona fallega fylgd heim, alla leið upp fyrir snjólínu.
Birgir göslaðist áfram með hnakkinn alltof lágt stilltan og nánast vindlaus dekk, þar til snillingarnir komu auga á þetta og kipptu í lag. Síðan hefur ekkert til hans spurst.
Dögg er nú í stífum daglegum æfingum fyrir Blálónsþrautina 10. júní, en á eftir að sættast við tilhugsunina um grýtta fjallvegi og rykský. Stangar stöku mýflugu úr tönnunum, annars allt í góðu.
Snorri svitnar stöðugt yfir tímum keppinautanna á hraðbrautinni í Fossvogsdalnum, en leyfilegur útivistartími setur strik í reikninginn og kemur í veg fyrir að tímametið verði slegið....enn sem komið er.
Allt í allt, góð byrjun, en betur má ef duga skal.
OK Hjól - OK Hull ehf
10. maí
Sumir tóku forskot á sæluna og hjóluðu í sund í öðru bæjarfélagi á leið í vinnuna.
Aðrir mættu á kristilegri tíma og svo var tekin hópæfing á heimleiðinni.
Þeir sem ekki þurftu að sinna börnum og betri helmingum, fóru á starfsmannafund í Elliðaárdal, þar sem skógarstígarnir voru kannaðir eilítið. Undirbúningur fyrir Bláalónsþraut í fullum gangi, eins og sagt er. Sumum kom á óvart hve brekkur geta verið brattar, sérstaklega upp í móti.
Eftir hjartnæmar kveðjustundir í Árbænum hélt afgangurinn út úr bænum þar sem Rauðavatn var kannað og loks áð á Dalvegi á leið heim í miðbænum. Tilfinnanlegur skortur á öli hamlaði þó vinnugleðinni.
Útlitið er gott, en betur má ef duga skal.
Ríkishjólið - Ríkislögreglustjóri
Ég er einn af þeim sem fer gangandi í gegnum þetta átak. Ég er á ferðinni á gangstígum og gangstéttum og það er talsvert af reiðhjólum á ferðinni á sömu slóðum. Eitt sem hjólamenn mættu taka upp er að nota bjölluna þegar þeir koma aftan að okkur sem erum gangandi. 1-2 hljóðmerki nokkuð áður og við vitum þá að þið eruð að nálgast. Stundum bregður manni, maður er jafnvel í þungum þönkum, og svo gerist það að hjólreiðamenn verða að hjóla út á gras til að komast framhjá manni. Allt þetta væri hægt að fyrirbyggja með einum bjölluhljóm.
Teams Valiant; Like-a-Sir; Thunder; Lightning; Experience og Fabulous - Suðurhlíðarskóli
Við ákváðum að vera djörf þetta árið og skora á nemendur í Hjólað í vinnuna. Það voru ekki allir vissir um hvort þetta gengi upp, þar sem skólinn er ekki hverfisskóli, heldur sækja nemendur hann ofan úr Grafarvogi og Vatnsenda, sunnan úr Hafnarfirði og Kópavogi, utan af Seltjarnarnesi og jafnvel ofan úr Mosó. En þetta fór svona rosalega vel af stað hjá okkur að á fimmtudaginn taldist okkur til að það væru 25-27 hjól á svæðinu og svo bætist við sá fjöldi sem er labbandi, á hjólaskautum og í strætó. Þar sem það er bara 41 nemandi og u.þ.b. 10 starfsmenn (eftir því hvernig er talið) finnst okkur þetta mjög gott. Þótt sumir nemendur (og kennarar) komi langt að finna þau einhver ráð. Sum eru keyrð hluta af leiðinni og hjóla svo restina, önnur fara úr strætó fyrr en venjulega og labba/hjóla það sem eftir er og enn önnur smala saman í hópreið, til dæmis nokkrar stúlkur í 3. - 6. bekk sem búa í Breiðholtinu. Ekki skemmir svo fyrir að nemendur fá að keppa við kennara og tvö lið nemenda eru fyrir ofan kennaraliðið þegar þetta er skrifað - það kætir marga.
Þegar raðað var í lið tókum við mið af aldri nemenda, svo meðalaldur liðanna væri nokkðu jafn, en á næsta ári getum við notað upplýsingar þessa árs til að gera liðin enn jafnari með tilliti til búsetu og virkni nemendanna. Það er óhætt að segja að átakið slær í gegn hérna og vonandi höldum við áfram út skólaárið.
Kveðja
Stefán, kennari í Suðurhlíðarskóla
Til þess að skoða Reynslusögur fyrri árið getið þið farið efst á síðuna og valið Reynslusögur og svo það ár sem þið viljið skoða.