Heim » Frétt
fimmtudagur 27. maí 2010Verðlaunaafhending og lokahátíð
Verðlaunaafhending og lokahátíð Hjólað í vinnuna verður haldin föstudaginn 28. maí kl. 12:00 – 13:00 í veitingatjaldi Húsdýragarðsins. Boðið verður upp á léttar veitingar. Öllum liðsstjórum er boðið að koma með 2-3 þátttakendur með sér. Vinningslið eru sérstaklega hvött til þess að mæta og taka á móti sínum verðlaunum. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í öllum keppnisflokkum vinnustaðanna og fyrir báðar keppnisgreinar þ.e. fyrir flesta keppnisdaga og flesta kílómetra. Skráning er á jona@isi.is.
Dagskrá
12:00 Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ býður gesti velkomna og fer yfir helstu afrek þátttakenda Hjólað í vinnuna 2010. Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, aðstoðar við afhendingu verðlauna. Gígja Gunnarsdóttir, formaður útbreiðslusviðs ÍBR, afhendir þeim vinnustöðum í Reykjavík sem eru í efstu sætum verðlaun frá ÍBR.
13:00 Dagskrálok
Til baka
Skoðanir notenda (0)