Heim » Frétt

föstudagur 21. maí 2010Lífshlaupið - einstaklingsskráning

Við viljum benda þátttakendum Hjólað í vinnuna á einstaklingsskráninguna sem er inn á vef Lífshlaupsins, lifshlaupid.is. Í einstaklingskeppni Lífshlaupsins, sem er í gangi allt árið, er hægt að skrá inn alla hreyfingu og halda utan um árangur sinn daglega. Fróðlegt er síðan að skoða og bera saman árangur sinn á milli vikna, mánuða og ára sem birtist í tölfræðinni.

Í einstaklingskeppni Lífshlaupsins geta þátttakendur unnið sér inn brons-, silfur-, gull- og platínumerki á einu Lífshlaupsári sem hófst miðvikudaginn 3. febrúar og stendur til þriðjudagsins 2. febrúar 2011. Það er hægt að koma inn í tímabilið hvenær sem er og skráningin þarf ekki að vera samfeld. Nánari upplýsingar eru að finna inná vefnum lifshlaupid.is undir hnappnum "Einstaklingskeppni".  


Til baka

Skoðanir notenda (0)

    Skrifa athugasemd - ATH allar athugasemdir fara í gegnum samþykktaferli áður en þær eru birtar á vefnum


    Aðilar

    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli