Heim » Frétt
miðvikudagur 19. maí 2010Góð mæting í morgun
Frábær mæting var í kaffitjöldum Hjólað í vinnuna í morgun. Um 800 manns stoppuðu við og fengu sér morgunkaffi frá Kaffitár og grænmetisbúst frá Ávaxtabílnum. Fjölmargir nýttu sér þjónustu aðila frá hjólreiðarsamtökunum og fengu loft í dekkin og olíu á keðjuna. ÍSÍ og samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna þakkar þátttakendum fyrir góðar móttökur. Nú eru aðeins vika eftir af Hjólað í vinnuna og vonum við að sá tími sem liðinn er hafi verið árangursríkur og skemmtilegur. Búið er að setja inn myndir frá kaffitjöldunum undir "Myndir" - "Myndir 2010".Til baka
Skoðanir notenda (0)