Heim » Frétt

Mynd með frétt/grein

föstudagur 14. maí 2010Fræðslufundur á Ísafirði

Þriðjudaginn 12. maí síðastliðinn stóðu ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Hjólafærni og HSV fyrir fræðslufundi á Ísafirði. Jón Páll Hreinsson, formaður HSV stjórnaði fundinum og erindi fluttu Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna, Árni Davíðsson, Hjólafærni á Íslandi. Margrét Halldórsdóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar sat fyrir svörum fyrir hönd Ísafjarðarbæjar. Þar sem ræðumenn fundarins áttu ekki flug heim fyrr en 18:05 um kvöldið nýttu þau tímann í að kynna sér Ísafjarðarbæ og nágrenni. Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmdastjóri HSV rúntaði með þeim um bæinn og fræddi þau um lífið á Ísafirði.

Um 4 km útivistarstígur liggur frá Ísafjarðarbær og að Holtahverfinu á Ísafirði sem bærinn lét leggja. Stígurinn er mikið notaður af almenningi á Ísafirði til útivistar eins og t.d. konur í kerrupúli, börn og fullorðnir á hjólum og gangandi og hlaupandi vegfarendur. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gengur eða hjólar eftir stígunum á hverjum degi til og frá vinnu, um 7,7 km leið. Í janúar 2009 var hann farinn að mæta reglulega í eftirlit á sjúkrahúsið á Ísafirði 2 sinnum í viku, einn klukkutíma í senn. Fannst honum nóg komið og ákvað að gera eitthvað í málunum sjálfur og hóf því að ganga í vinnuna. Mánuði seinn var hann laus við sjúkrahúsið og segir Halldór að stígurinn sé hagkvæmasta íþróttamannvirkið sem Ísafjarðarbær hefur byggt. Einnig sagði hann að til stæði að leggja annan álíka stíg frá Ísafjarðarbæ og útí Hnífsdal sem mun bæta samgöngur þar á milli til muna. Á myndunum má sjá gesti fundarins, Gígju Gunnarsdóttur, Kristínu Lilja Friðriksdóttur, Árna Davíðsson og svo Halldór Halldórsson bæjastjóra Ísafjarðarbæjar.


Til baka

Skoðanir notenda (0)

    Skrifa athugasemd - ATH allar athugasemdir fara í gegnum samþykktaferli áður en þær eru birtar á vefnum


    Aðilar

    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli