Heim » Frétt

Mynd með frétt/grein

föstudagur 14. maí 2010Fræðslufundur á Akureyri

Þriðjudaginn 11. maí síðastliðinn stóðu ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Hjólafærni og Akureyrarkaupstaður fyrir fræðslufundi á Akureyri. Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ stjórnaði fundinum og erindi fluttu Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna, Sesselja Traustadóttir, kennari, Hjólafærni á Íslandi og Ólafur Jónsson, formaður íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Akureyrarbær hefur staðið sig vel í að bæta göngu- og hjólreiðastíga í bænum og eiga þeir einungis eftir að bæta við 7 km af stígum til þess að klára stígaáætlun bæjarins. Stígurinn sem lagður hefur verið er 3 m breiður og ætlaður sem útivistarstígur fyrir hjólreiðamenn, göngufólk og alla aðra sem vilja nýta sér stígana. Áætlað er að það muni kosta um 500 miljónir að leggja þessa 7 km sem uppá vantar, en um 550 miljónir ef stígurinn er hafður 3,5 m að breidd með afmörkuðum hjólastíg. Að sögn Ólafs Jónssonar hefur hugarfar stjórnavalda í bænum til umhverfisvænni ferðamáta batnað til muna en segir að nú vanti að breyta hugarfari bæjarbúa og hvetja þá til að nýta sér þá aðstöðu sem sett hefur verið upp. Á myndunum má sjá Viðar Sigurjónsson, Sesselju Traustadóttur og Gígju Gunnarsdóttur.


Til baka

Skoðanir notenda (0)

    Skrifa athugasemd - ATH allar athugasemdir fara í gegnum samþykktaferli áður en þær eru birtar á vefnum


    Aðilar

    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli