Reynslusögur » 2011
Umhverfisgæðingar II - Umhverfisstofnun
Umhverfisstofnun hefur verið að bæta aðstöðu fyrir hjólreiðamenn og hvetja starfsmenn til þess að geyma einkabílinn heima. Það er dálítið síðan að sett var upp sturtuaðstað og núna síðasta haust í samgönguvikunni bauðst öllum starfsmönnum samgöngusamningur. Starfsmenn fá því umbun ef þeir hjóla, labba eða taka strætó í vinnuna. Rúsinan í pylsuendanum er svo hjólastæðið sem var útbúið á smá svæði við innganginn á bílageymslunni núna í vetur. Hörðustu starfsmenn stofnunarinnar sem hjóla alla jafnan í vinnuna yfir allt árið fengu svo fjarstýringu svo þeir geta hjólað beint inn án þess að fara af hjólinu. Við erum náttúrulega voða montinn af þessu að fullyrðum að þetta séu bestu hjólastæðin á landinu. En vildum gjarnan heyra ef einhver vinnustaður býður betur. Kveðja Gísli Jónsson, liðstjóri umhverfisgæðinganna IICykelklubben - Þekking Akureyri
Átakið er hafið og nú er hjólað og gengið í vinnuna á hverjum degi. Þetta er í fjórða sinn sem liðsstjóri tekur þátt og man ég vart eftir þvílíkri veðurblíðu í byrjun átaksins. Hjóla ég rúma 10 km til að komast til vinnu, meðfram Eyjafjarðará sem í morgun var lygn og bauð upp á sýningu. Straumönd, grágæsir og álftir. Mætti ég líka sjö hjólreiðarknöpum á leið til vinnu fram í fjörðinn sem er góð tilbreyting við bílaumferðina. Hjólakveðjur, Sigga - CykelklubbenHeilsutvennurnar - Lýsi Hf.
Aldrei er of varlega farið, einn orkuboltinn lenti í því að hjóla á bíl, svo mikill var eldmóðurinn, en sem betur fer var hann með hjálm og engin alvarleg meiðsl hlutust af. Aftur á móti var bíllinn ekki eins heppinn. Áfram Lýsi !!!www.Unit.is - Nethönnun
Þetta er í fyrsta skipti sem Nethönnun tekur þátt í þessum skemmtilega leik/átaki (að ég held).Með smá hvatningu og áskorunum þá náðum við að senda 1 lið til þáttöku. Það er ekkert eins hressandi eins og að hjóla í vinnuna á morgnana. Svo er þetta "win/win", eyðir calorium, sparar bensínpening og minni mengun, við græðum öll hvernig sem á það er litið. Þar sem ekki er sturtuaðstaða á vinnustaðnum þá fáum við að nota sturturnar hjá www.bootcamp.is gegn vægu gjaldi. Þar getum við teygt á stirðum vöðvum eftir langan hjólreiðatúr. Þó þessu átaki ljúki í lok maí þá er ég er viss um að við verðum nokkrir sem eigum eftir að hjóla í vinnuna miklu oftar eftir þetta átak. Pétur, liðsstjóri Unit.is
Team Armstrong - Norvik
Oft eru reiðhjól hættulegri en bílar! Átakið hjólað í vinnuna er í hámarki og ekki mun ég láta mitt eftir liggja. Frúin skellti sér á bak fáksins og brunaði af stað í vinnuna, leiðin í vinnuna er ekki löng en mjög skemmtileg og möguleiki á fleirri en einni hjólaleið. Allar eiga þær það sameiginlegta að liggja að mestu niður í móti þannig að það er hægt að gefa vel í ? Kapp hljóp í frúna á þessum fallega mánudagsmorgni , 2 græn gangbrautarljós framundan á stóru Höfðabakkabrúnni, gírarnir skrúfaðir upp í gír 19 og frúin ákveðin að ná báðum ljósunum. Gamla gaf allt í bortn, brunaði yfir gatnamótin "YES" náði báðum ljósunum, snaraði sér inn á flotta nýja gangstíginn sem liggur samhliða vesturlandsveginum. BÚMM næsta sem ég vissi var að ég lá á hliðinni í mölinni á gangstígnum, hálf undir hjólinu. Skrambinn hvar gerðist eiginlega? Stökk á fætur eins gormur og hugsaði: SJITT vona sko að enginn hafi séð þetta, stýrið á hjólinu skakkt, nýja flotta karfan framan á stýrinu doldið beygluð, og smá rispur á nýja fína fákinum. Fann að ég hafði meitt mig í hægra hnéi og var eitthvað aum í hálsinum (þar sem stýrið stakkst í hann), skrönglaðis upp á fákinn aftur og komst í vinnuna, hrufluð á hnjánum og pínu skjálfandi. Um kvöldið sá ég svo að ég var þokkalega vel bólgin á öðru hnénu, víða marin á báðum fótleggjum og öðrum olboganum . Ég var heppin þarna að ekki fór ver, og auðvitað var ég með HJÁLM. En kæru hjólreiðamenn, lausamölin er greinilega jafn hættuleg reiðhjólum og bifreiðum, förum varlega, það sem brýtur okkur ekki gerir okkur bara harðari. Ég mun halda áfram að hjóla í vinnuna, en mun fara hægar yfir og passa láta ekki fákinn fleygja mér af baki aftur.Ásgeir - Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands hefur áður tekið þátt í "hjólað í vinnuna". En nú er eins og allt ætli um koll að keyra því áhuginn hefur aldrei verið meiri og metnaðurinn framúrskarandi. Hér tekur fólk vítamín, nærist á hveitigrasi og heimapressuðum söfum og er fullt af orku. Hjólagrindur hússins eru fullnýttar og gætu verið tví- eða þrísetnar.- Ráðhús Árborgar
Hjálmanotkun: Vil byrja á því að tjá mig um hversu skemmtilegt þetta átak er og fær mann svo sannarlega til að koma sér aftur af stað eftir veturinn. En að aðalatriðinu og það er notkun hjálma hjá reiðhjólamönnum. Fyrir mér er jafn sjálfsagt að nota hjálm þegar ég hjóla eins og að tannbursta mig. Ég var nefnilega svo svakalega óheppin í nóvember sl. að detta illa af hjóli og beint á höfuðið en ég var heppin að vera með hjálm. Hjálmurinn brotnaði talsvert og ég fékk þungt höfuðhögg tók mig tvær vikur að ná mér af. Enn er ég þó að bera þess bætur og höfuðið er enn mjög viðkvæmt. Satt að segja vil ég ekki hugsa það til enda hvar ég væri í dag ef ég hefði ekki verið með hjálm þennan morgun. En það virðist vera erfitt að kenna gömlum hundum að sitja, hvað þá að nota hjálma. Mér finnst mjög grátlegt hvað ég sé marga hér á Selfossi ekki nota hjálm þegar þeir hjóla, sérstaklega fullorðið fólk sem á líka að vera fyrirmynd þeirra sem yngri eru. Einnig finnst mér afskaplega slakt að vinna með fólki sem hefur heyrt mína sögu og tekur engum sönsum heldur hefur ákveðið að nota höfuðkúpuna sína sem hjálm á sínu höfði. Hjálmur er höfuðmál.Ekki Hemmarnir - Háskólinn á Akureyri
Það er aldrei of seint að byrja að hjóla. Sagði ekki einhver að ef maður hefur einhvern tímann lært að hjóla þá gleymist það aldrei, það er geymt einhvers staðar á góðum stað. Ég hef gengið til og frá vinnu í átakinu Hjólað í vinnuna og hef verið að manna mig upp í það að prófa að hjóla, en það eru rúm 30 ár síðan ég hjólaði á venjulegu reiðhjóli. Reiðhjól í dag eru orðin svo fullkomin með ótal gírum sem maður þarf námskeið til að læra á. Í minningunni notaði maður bara fæturna til að hjóla og til að stoppa sig. Á Akureyri eru ekkert nema brekkur, langar, háar, bugðóttar og beinar og ég hef séð mig í anda bruna stjórnlaust niður Gilið á Akureyri á einhverju gírahjóli og hvolfast síðan út í sjó. Ég ólst upp í bæ á suðvesturhorninu þar sem þarf að leita mjög vel og lengi til að finna sæmilega brekku sem Akureyringar hlæja sig máttlausa að þegar maður segir þeim að þetta séu brekkurnar í bænum. Áskorun dagsins í dag var að stíga á venjulegt gíralaust hjól með aðstoð einstaklega góðs og þolinmóðs hjólakennara (samstarfskonu). Með alltof lítinn hjálm á höfði og of lágt stillt sæti á hjólinu tókst mér að yfirvinna hræðsluna og hjóla hring á hluta af bílaplaninu, örugglega við mikinn fögnuð þeirra sem á horfðu. Núna eru mér allir vegir færir og er næsta áskorun að finna fína gírahjól sonar míns og æfa mig stolt og kannski kemst ég einhvern tímann Eyjafjarðarhringinn hjólandi.Berlínarbollur - Skýrr
Enn á ný hefjum við átakið að drífa okkur út og nýta eigin krafta til að komast til og frá vinnu. Í gær slóraði ég á heimleiðinni og fór uppí Víðidal þar sem mér tókst að kyngja einni smáflugu. Eitthvað var ég að vola um þetta við vinnufélaganna daginn eftir en þar sem þetta var hvorki geitungur né býfluga, þá fannst þeim ég gera úlfalda úr míinu. kv. BerlínarbollaNobbarar - Alcoa Fjarðaál
Tour de Alcoa 2011 Ræs 04:40. Brottför í blankalogni kl 05:00 frá sundlauginni í Neskaupstað. Ferðinni var heitið inn Norðfjarðarsveit, yfir Oddsskarð, niður í Eskifjörð, yfir Hólmaháls og loks í álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Alls um 40 km leið. Kjör aðstæður voru til hjólreiða, blanka logn og 0°c á Oddsskarði. Dýralífið á Austfjörðum setti mikinn svip á ferðina. Í Norðfjarðarsveit flugu stórir gæsahópar og strýddu veiðimönnunum í hópnum ásamt stökköndum sem flugu úr hverjum skurði. Á leiðinni niður í Eskifjörð voru leiðangursmenn í hvalaskoðun, en hvalur velti sér í Eskifirðinum okkur til mikillar skemmtunar. Þegar niður var komið og verið var að leggja af stað út Eskifjörðinn var tófa á harðaspretti í fjallinu en skarfurinn og straumendurnar í fjöruborðinu kipptu sér ekkert upp við það. Til að toppa þessa dýraskoðunarferð stóð hreindýrahjörð og beið eftir okkur þegar komið var yfir Hólmahálsinn. Það voru þreyttir en glaðir menn sem rúlluðu niður að álverinu 2 klst og 41 min frá brottför. Kv. NobbararMiðbæjarrotturnar - Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðinsins
Þekkjum hætturnar. Við Miðbæjarrotturnar, eitt að liðum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðinsins, tókum í fyrra þátt í hjólað í vinnuna og höfðum öll gaman af. Við reyndar lentum í því að einn liðsmaður okkar datt af hjólinu sínu í miðborginni og slasaðist á öxl. Með þrautsegju og réttri þjálfun er hann kominn á hjólið aftur okkur öllum til mikillar ánæju. Við vorum fleiri sem duttum í miðbænun og öll við svipaðar aðstæður, þ.e. vorum á of hægum hraða. Þar sem er mjög þéttbýlt og mikil umferð bæði gangandi og akandi þá verðum við að fara varlega og þá er hraðinn stundum of lítil til að halda jafnvægi. Einnig erum við oft að fara upp og niður af gangstéttum sem líka eykur hættuna á að detta. En þegar maður þekkir óvininn þá er betra að forðast hann og nú hjóla- ganga og hlaupa Miðbæjarrotturnar í vinnuna sem aldrei fyrr.Ekki Hemmarnir - Háskólinn á Akureyri
Í morgun þurfti ég að fara með bílinn á verkstæði og verkstæðið er laaangt frá bæði heimili mínu og vinnustað. Setti aftursætin fram og skellti hjólinu afturí, keyrði á verkstæðið þar sem bíllinn varð eftir og hlólaði svo í vinnuna. Geri ráð fyrir að hafa sama háttinn á þegar bíllinn verður sóttur - bara í öfugri röð...Dekkjaþrælarnir - Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Við hér í hjólaliðinu dekkjaþrælarnir á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins vorum svo heppnar að vera þær fyrstu sem voru dregnar út í hvatningarleiknum þetta árið. Liðsstjórinn sendi á okkur línu í tölvupósti "Vinninga má vitja hjá mér" og valt þá þessi vísa upp úr einni okkar: Vinninga má vitja hjá mér, verkfærin þú færð um hæl. Heppilegt að hafa með sér huggulegan dekkjaþræl" Mikil forvitni og umræða spannst á vinustaðnum um verðlaunin, sem voru drykkjarbrúsi, viðgerðarsett og dekkjaþræll og þá sérstaklega um dekkjaþrælinn og þaðan kemur þetta nafn Dekkjaþrælarnir á liðið okkar. Bestu hjólakveðjur,Dekkjaþrælarnir, Greiningar- og áðgjafarstöð ríkisins Kópavogi.Geðveikt duglega liðið og Ruglað duglega liðið - Klúbburinn Geysir
Félagar og starfsmenn hér tóku höndum saman við að hjóla, ganga eða taka strætó í vinnuna. Við finnum mikinn ávinning nú þegar. Við erum hressari, þægilega líkamlega þreytt og sjálfsmyndin fer sífellt batnandi.Samlokur og Langlokur - Matur og Mörk
Við í Matur og Mörk erum öll að taka þátt í leiknum , með misgóðum árangri, en allir leggja sig fram um að ganga eða hjóla. Þó held ég að nýjasti starfskrafturinn og forstjórinn séu alveg með þetta á hreinu. Og tekur það þó þau lengri tíma að fara heim úr vinnunni en vinnan sjálf. Við hin erum að rembast við að fara aðeins lengri leið annaðhvort í eða úr vinnu.Til stendur að fara í langa ferð einhvern daginn, en veðrið er eitthvað að stríða okkur, þurfum sennilega að að fá okkur gönguskíði eftir helgi.Eftirlitssveit A - Fjármálaeftirlitið
Hugsum hvert um annað í hjólaumferðinni. Örn Valdimarsson, starfsmaður hjá Fjármálaeftirlitinu ,var að hjóla heim í Garðabæ að loknum vinnudegi 16. maí og var að fara niður Kringlumýrarbrautina við hverfið sem hefur verið kallað "Milli lífs og dauða" þegar dálítið óvænt gerðist. "Ég fór í gegnum þessi fínu undirgöng sem er búið að gera þarna fyrir hjólreiðamenn. Ég ætlaði að fara meðfram Kringlumýrarbrautinni og láta mig renna niður nokkuð langa brekku. Þar sem kemur kvísl á göngustígnum sá ég þúst, eitthvað sem lá utan í smá hæð í grasi við hliðina á stígnum. Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að athuga þetta eitthvað nánar þegar ég rann framhjá og það varð úr að ég ákvað að stoppa og snúa við. Þá sá ég að þetta var hjólreiðamaður. Hann lá hreyfingalaus og var með hjólið klemmt á milli fótanna og hélt annarri hönd um stýrið. Ég spurði hvort allt væri í lagi. Hann sagði ekki geta hreyft sig en ég sá að hann fann mikið til og það var greinilegt að hann lá ekki þarna til að hvíla sig. Ég spurði hvað hefði gerst og maðurinn sagðist hafa fengið svima og dottið af hjólinu en sem betur fer lent til hliðar við stíginn í grasinu. Ég spurði hann hvort hann væri með verki og hann svaraði því til að hann fyndi eiginlega alls staðar til. Út í öxl, í bakinu hálsinum og mjóhryggnum. Ég gat ekkert hjálpað manninum nema hvað ég reyndi að taka hjólið undan honum og gerði það eins varlega eins og ég gat. Ég beið svo í nokkrar mínútur en sá að hann var sárkvalinn svo ég hringdi á sjúkrabíl. Ég hringdi síðan í 112 og sagði konunni sem svaraði hvar við værum staddir, hvað maðurinn væri gamall og hvar hann fyndi til. Svona tíu mínútum síðar kom sjúkrabíll og lögreglubíll og manninum var ekið í burtu. Ég veit ekkert hvað síðar varð og vona bara að manninum heilsist vel. Það var lífsreynsla að koma að manni sem hafði greinilega orðið fyrir áfalli. Hann sagði mér að hann væri 54 ára og hann hafði greinilega byrjað að hreyfa sig með átakinu "Hjólað í vinnuna". Ég verð að viðurkenna að mér brá örlítið að komast að því að við vorum ekki á ólíkum aldri og ég hafði einmitt notað tækifærið til að fara að hreyfa mig dálítið meira með þessu átaki. Eins holl og góð og hreyfingin er verðum við sennilega öll að vera vakandi fyrir því að ætla okkur ekki um of og fara hægt af stað eftir kyrrsetu.Reykholtsgengið - íþróttamiðstöðin í Bláskógabyggð
Í síðustu viku háttaði svo til að ein úr hópnum varð að koma á bíl í vinnuna vegna þess að það var verið að fara með einn bekk úr skólanum í ferðalag og það vantaði uppá sæti í rútunni sem var fengin, mín dó ekki ráðalaus og ekki vildi hún skemma fyrir okkur hinum,þannig að hún tók til það ráðs að hjóla að heiman og í vinnuna og aftur heim snarlega til að sækja bílinn, góður liðsandi hér á ferð,:)Veit það ekki :-) - Menntaskólinn við Hamrahlíð
Samið í tilefni átaksins hjólað í vinnuna: Ef makinn er gargandi og gólandi og girndin er argandi og spólandi, þá bílinn skalt spara og brjálaður fara bara í vinnuna hjólandi. Höf.: Bjarni Stefán Konráðsson, Íþróttakennari í MHInn út inn inn út - Landspítali
Í þessu liði eru innlagnastjóri og hans hyski, þ.e. meðlimir útskriftarteymis LSH. Þetta eru miklir harðjaxlar með keppnisskap sem segir sex, enda eru meðlimirnir sex! Tveir meðlima eiga ekki hjól en láta það ekki á sig fá og ganga til vinnu hvurn einasta dag sem Guð gefur. Tveir hjóla utan af hinu lága Seltjarnarnesi í Fossvog, einn hjólar bæinn og sveitirnar þverar og endilangar (enginn veit alveg hvert hann er að fara) og einn fer lengri leiðina í vinnuna - alltaf. Liðið er samstillt og heilbrigt og lætur ekki smáharðsperrur eða norðanrok tefja sig neitt.Félhjólafélagið Sprettur - Félagsvísindastofnun HÍ
Félagsvísinda - hjólaæði - fræðikvæðiHér knálega geysa fram garpar og sprundir
nú grillir í mark okkar Melunum undir
en hvað er að sjá?
Hver fer þar á stjá?
Jú, Sæmundur selsnautur hjólar um grundir
Liði vísinda tókst hann að vekja
og af virðingu burt vill ei hrekja
heldur fá höld í liðið
sem um sund hefur riðið
og sést selsbaki Edduna skekja
Skellum hjálmi á kappann í hvelli
síðan hjólum öll saman um velli.
Því þótt heimsendaspár
veki hræðslunnar fár
enginn grandað oss getur með belli(brögðum!)
G(H)arún á baki hjólhesti aðfarnótt 21. maí 2011 ....úúú
Græna merin - Safnahúsið á Egilsstöðum
Starfsmenn safnahússins á Egilsstöðum ákváðu að taka þátt í átakinu en hafa ekki staðið sig sem skyldi því veðrið setti illilega strik í reikninginn.Liðið heitir eftir merku farartæki eins starfmannsins, f forláta þríhjóli sem gengur undir nafninu Græna merin – eða bara Merin. En þann 20. maí ákváðu veðurguðirnir að Egilsstaðabúar hefðu haft nægilega gott vor/sumar í bili og dengdu yfir okkur kynstrin af snjó sem hefur ekki tekið upp ennþá. Þeir alhörðustu létu þetta ekki á sig fá og gengu í vinnuna – en reiðhjólin, þar á meðal Græna merin hafa staðið við stallinn og ekki verið treyst í ófærðina því þau er ekki á skaflajánum.