Um hjólað í vinnuna » Spurt og svarað
Spurt og svarað um reglur Hjólað í vinnuna
Spurning: Athugasemd við reglu um það sem ekki má skrá: - ef farið er út að hjóla eftir að heim er komið úr vinnu. Þátttakendur sem hjóla lengri leiðina heim t.d. skjótast til Þingvalla eða fara Heiðmerkurhring. Þetta er nokkuð sem maður efast um að menn myndu gera ef þeir væru að fara heim úr vinnu. Er ekki verið að fara á skjön við reglurnar með þessu?
Svar: Ef þátttakendur eru tilbúnir til að leggja meira á sig til að fá fleiri km skráða þá er ekkert athugavert við það svo framarlega sem vegalengdin er farin í eða úr vinnu má skrá hana. Því miður samræmist það ekki reglum og markmiðið keppninnar, sem er að hafa áhrif á samgöngumáta fólks í og úr vinnu, að skrá ef þú ferð út að hjóla þegar heim er komið.
Spurning: Þurfa þeir sem koma með strætó að ganga 1,5 km?
Svar: Nei ekki þeir sem koma með strætó heldur þeir sem nota einkabílinn hluta af leiðinni. Við erum að reyna hvetja fólk til þess að nýta sér almenningssamgöngur en jafnframt að koma á móts við þá sem geta ekki nýtt sér þær og þurfa að nota einkabílinn hluta af leiðinni. Þeir þurfa að uppfylla þau skilyrði að ganga 1,5 km eða til samræmis við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um hreyfingu.
Spurning: Er nauðsynlegt fyrir alla að ganga 1,5 km eða hjóla 3 km ?
Svar: Það er alls ekki skilyrði að hjóla 3 km né ganga 1,5 km til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna. Þessi regla gildir aðeins um þá sem nota einkabílinn hluta af leiðinni t.d. þeir sem búa ekki í sama sveitarfélagi og þeir vinna í.
Hér fyrir neðan er þessi regla sem er að finna á heimasíðunni okkar.
“Eftirfarandi regla er sett inn til að koma á móts við einstaklinga sem búa í öðru sveitarfélagi en þeir starfa og hafa ekki aðgang að almenningssamgöngum. Þeir geta notast við einkabíl hluta af leiðinni en þá þurfa þeir einstaklingar að ganga minnst 1,5 km (~15 mín) eða hjóli minnst 3 km (~15 mín) hvora leið og uppfylli þannig ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um daglega hreyfingu.
Spurt og svarað um skráningu inn á vef Hjólað í vinnuna