Heim » Eldri fréttir

16.05.2012 Ert þú með réttan loftþrýsting í dekkjunum?

Í gær var spurt "Ert þú með réttan loftþrýsting í dekkjunum?". Tæplega 70 % töldu svo vera en um 25 % sögðust ekki vita það. Á lang flestum dekkjum stendur hversu mikill loftþrýstingurinn á að vera. Algengt fyrir fjallahjól er þrýstingurinn 40 - 60 og svo hærri eftir því sem dekkin eru mjórri. Ótvíræður kostur fylgir því að hjóla á vel pumpuðum dekkjum; hraðari yfirferð og minna álag á vöðva.
Nánar

16.05.2012Kaffitjöld Hjólað í vinnuna

Í morgun, frá 6:45 – 9:00 stóð Hjólað í vinnuna fyrir kaffitjöldum á 5 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendum var boðið að hjóla við og þiggja ljúffengt kaffi frá Kaffitár og Egils Kristal frá Ölgerðinni. Reiðhjólaversluninn Örninn bauð upp á minniháttar lagfæringar á hjólum og aðilar frá Landssamtökum hjólreiðamanna
Nánar

15.05.2012Kaffitjöld á landsbyggðinni

Hjólað í vinnuna stendur fyrir kaffihúsatjöldum á eftirfarandi stöðum á landsbyggðinni: Selfoss: 19. maí frá 11:30 - 13:30 við verslunina Hjólabæ, Austurvegi 11. Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð miðvikudaginn 23. maí. Staðsetningar og tímasetningar auglýstar síðar.
Nánar

15.05.2012Kaffitjöld á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 16. maí er þátttakendum Hjólað í vinnuna boðið að hjóla við í kaffihúsatjöldum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er uppá kaffi frá Kaffitár og Egils Kristal frá Ölgerðinni. Aðilar frá
Nánar

15.05.2012Hjólafærninámskeið á Egilsstöðum

Miðvikudaginn 16. maí stendur Hjólað í vinnuna, í samstarfi við Hjólafærni, fyrir námskeiði um samgönguhjólreiðar og viðhald á hjólum á Egilsstöðum. Fyrirlesturinn fer fram í Hlymsdölum og hefst klukkan 17:00 og stendur til
Nánar

14.05.2012Rafmagnsreiðhjól í kílómetrakeppninni

Þar sem við höfum fengið ábendingar frá keppendum á rafmagnshjólum að það sé ekki vænlegt til árangurs að útiloka þau frá kílómetrakeppninni höfum við ákveðið að leyfa þau. Við viljum benda þeim sem eru á rafmagnshjólum að hafa eftirfarandi viðmið í huga við skráningu á kílómetrum: Ef mótorinn er notaður þarf að draga 50% af þeim fjölda kílómetra sem eru farnir Ef mótorinn er ekki notaður má skrá 100% Við skráningu þá treystum við á heiðarleika og samvisku þátttakenda eins og verið hefur.
Nánar

14.05.2012Spurning dagsins 10. og 11. maí

Spurning dagsins 10. maí var "Tekur þú fullt tillit til gangandi vegfarenda á blönduðum stígum?" og þann 11. maí var spurt "Er samgöngusamningur í boði á þínum vinnustað?". Hægt er að skoða niðurstöður spurninganna hér á síðunni undir "Viðburðir - Spurning dagsins". Í dag er spurt
Nánar

11.05.2012Afrek þátttakenda

Hjólaði úr Hafnarfirði til Grindavíkur. Skemmtileg frétt um afrek þátttakenda í Hjólað í vinnuna birtist á vef Grindarvíkurbæjar.Hildigunnur Árnadóttir félagsráðgjafi hjá Grindavíkurbæ tók hvatningarátakið Hjólað í vinnuna svo
Nánar

11.05.2012Hjólað í vinnuna í örðum löndum

Hjólað í vinnuna er í gangi á sama tíma í Noregi og Danmörku, en hefst 1. júni í Þýskalandi. Gaman er að skoða
Nánar

10.05.2012Bætt aðstaða við Landspítalan

Þrjú ný hjólastæði voru tekin í notkun við Landspítala í dag, þau eru við Hringbraut, Landakot og í Fossvogi. Um er að ræða fyrsta áfanga í stærra verkefni sem miðar að því að bæta aðstöðu hjólreiðafólks við spítalann. Um leið var reiðhjólaátakinu Hjólað í vinnuna hleypt
Nánar

10.05.2012Spurning dagsins

Hér á síðunni birtist daglega ný "Spurning dagsins" á meðan á átakinu stendur. Í gær var spurt hversu oft þátttakendur hefðu tekið þátt í átakinu en í dag er spurningin "Tekur þú fullt tillit til gangandi vegfarenda á blönduðum stígum?". Við hvetjum alla liðsstjóra til að svara spurningum dagsins og
Nánar

10.05.2012Skemmtilegir viðburðir

Við hvetjum ykkur til að láta okkur vita ef þinn vinnustaður gerir eitthvað skemmtilegt í tengslum við Hjólað í vinnuna. Rúmlega 40 starfsmenn Isavia hófu átakið Hjólað í vinnuna í gær með því að hjóla milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar. Leiðin er
Nánar

10.05.2012Hjólafærni námskeið á Ísafirði

Mánudaginn 14. maí stendur Hjólað í vinnuna, í samstarfi við Hjólafærni, fyrirn námskeiði um samgönguhjólreiðar og viðhald á hjólum á Ísafirði. Fyrirlesturinn fer fram í Frístundamiðstöðinni á 2. hæð í Sundhöll Ísafjarðar frá 15:30 - 17:30. Fyrst á dagskrá er skemmtilegur fyrirlestur um samgönguhjólreiðar og að honum loknum verður farið í viðhald á hjólum, stillingar á stelli og hjálmum, pumpað og smurt og að lokum farið í stuttan hjólatúr um götur bæjarins. Aðilar frá Hafnarbúðinni verða á staðnum og aðstoða við stillingar á hjólum.Skráning fer fram á netfangið kristin@isi.is eða í síma 514-4000 fyrir kl. 12:00 föstudaginn 11. maí.
Nánar

09.05.2012Skemmtileg frétt inn á mbl.is

Með því að smella hér má sjá skemmtilega frétt af þátttakendum sem voru að hjóla í vinnuna í morgun í Öskjuhlíðinni.
Nánar

09.05.2012Enn er hægt að skrá sig til leiks

Nú þegar hafa 535 vinnustaðir skrá 1126 lið með 7705 liðsmönnum til leiks. Hægt verður að skrá vinnustaði, lið og liðsmenn til leiks á meðan verkefnið stendur yfir. Nánari upplýsingar um skráning má nálgast hér.
Nánar

09.05.2012Hjólaði í vinnuna rúllaði formlega af stað í morgun

Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna fór fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun. Þátttakendum Hjólað í vinnuna var boðið að hjóla við í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp frá Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Ögmundi
Nánar

09.05.2012Fyrirlestur á Selfossi í dag

Miðvikudaginn 9. maí stendur Hjólað í vinnuna, í samstarfi við Hjólafærni, fyrir fræðslu um samgönguhjólreiðar og viðhald á hjólum á Selfossi. Fyrirlesturinn fer fram í Selinu á íþróttavellinum á Selfossi og stendur frá 17:30 - 19:30. Fyrst á dagskrá er
Nánar

08.05.2012Opnunarhátíð

Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna fer fram miðvikudaginn 9. maí klukkan 8:30 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal. Þátttakendur sem eiga þess kost er boðið að hjóla við, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp.
Nánar

08.05.2012Skrá nýtt lið

Þegar búið er að stofna vinnustaðinn þá er hægt að stofna mörg lið innan vinnustaðarins. Til þess að skrá lið nr. 2, 3, o.s.frv undir vinnustaðinn þarf að fara aftur í nýskráningu, setja inn kennitölu vinnustaðarins og þá bíður kerfið uppá skráningu á nýju liði. Athugið að þegar
Nánar

08.05.2012Skráning stendur yfir

Hægt verður að skrá vinnustaði, lið og liðsmenn til leiks á meðan að Hjólað í vinnuna stendur yfir. Skráningarleiðbeiningar má nálgast með því að fara í Um Hjólað í vinnuna hér fyrir ofan og smella á Efni til að dreifa. Þar er einnig að finna
Nánar

08.05.2012Rafmagnshjól

Rafmagnshjól eru leyfð í vinnustaðakeppninni þar sem keppt er um fjölda daga en þau eru ekki leyfð innan þeirra liða sem taka þátt í kílómetrakeppninni.
Nánar

08.05.2012Umferðaröryggi

Þar sem mikil aukning hjólandi og gangandi vegfarenda verður á stígum á meðan að Hjólað í vinnuna stendur yfir viljum við koma á framfæri tilmælum frá Landssamtökum Hjólreiðamanna um umferðaröryggi. Leiðbeiningarnar má nálgast með því að smella hér eða undir Gott að vita - umferðaröryggi hjólreiðarmanna, hér fyrir ofan.
Nánar

07.05.2012Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna

Opnun Hjólað í vinnuna fer fram miðvikudaginn 9. maí klukkan 8:30 í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal. Þátttakendur sem eiga þess kost er boðið að hjóla við, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp. Ávörp flytja Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Jón Baldursson, yfirlæknir frá embætti landlæknis og Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur. Eftir ávörpin munu gestir og þátttakendur hjóla átakið formlega af stað.
Nánar

07.05.2012Fyrirlestur og viðhald á hjólum á Selfossi

Hjólað í vinnuna, í samstarfi við Hjólafærni, býður uppá skemmtilegan fyrirlestur um samgönguhjólreiðar á Selfossi miðvikudaginn 9. maí. Fyrirlesturinn hefst kl. 17:30 og fer fram í Selinu á íþróttavellinum á Selfossi. Að fyrirlestri loknum verður farið í viðhald á hjólum, stillingar á stelli og hjálmum, pumpað og smurt og að lokum farið í stuttan hjólatúr um götur bæjarins. Aðilar frá Hjólabæ verða á staðnum og aðstoða við stillingar á hjólum. Gert er ráð fyrir að öllu verði lokið kl. 19:30. Skráning fer fram á netfangið kristin@isi.is, í síma 514-4000 eða með því að smella hér. Ath. lágmarksþátttöku þarf til að viðburðurinn fari fram. Allir velkomnir og þátttaka ókeypis.
Nánar

04.05.2012Við bjóðum samstarfsaðila Hjólað í vinnuna velkomna til leiks.

Valitor er aðalstyrktaraðili Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands vegna heilsu- og hvatningarverkefnisins Hjólað í vinnuna. Valitor er einnig í Ólympíufjölskyldu ÍSÍ. Aðrir samstarfsaðilar ÍSÍ vegna Hjólað í vinnuna eru embætti landlæknis, Rás 2, Advania, Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Reiðhjólaverslunin Örninn, Landssamtök hjólreiðarmanna, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Kaffitár og Ölgerðin.
Nánar

02.05.2012Skráningarleiðbeiningar

Í dag hafa 170 vinnustaðir skráð sig til leiks í Hjólað í vinnuna 2012. Með því að smella á vinnustaðakeppni hér til vinnstri má sjá þá vinnustaði sem hafa skráð sig til leiks og með því að smella á kílómetrakeppni má sjá þau lið sem hafa skráð sig til leik þar. Hægt er að nálgast skráningarleiðbeiningar með þvi að smella á Um Hjólað í vinnuna hér fyrir ofan.
Nánar

02.05.2012Skráningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ hefst í dag

Hvatningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ hefst í dag, miðvikudaginn 2.maí og stendur til þriðjudagsins 29. maí. Dregið verður úr skráðum liðum dagana 2. til 8.maí og úr innsendum myndum og reynslusögum dagana 9. - 29. maí í Popplandi á Rás 2. Reiðhjólaverslunin Örninn gefur
Nánar

20.04.2012Hjólað í vinnuna - búið að opna fyrir skráningu

Búið er að opna fyrir skráningu vinnustaða í Hjólað í vinnuna 2012. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi keppninnar sem og á skráningarkerfinu og því mikilvægt að kynna sér breytingarnar vel áður en hafist er handa við að skrá vinnustaðinn. Undir "Um Hjólað í vinnuna" efst á síðunni má nálgast upplsýingar um reglur, keppnisgreinar, skráningarleiðbeiningar og annað sem vert er að skoða. Undir "Um Hjólað í vinnuna" - "Efni til að prenta út" er hægt að prenta út skráningarblað fyrir kaffistofuna þar sem þeir starfsmenn sem ætla að vera með geta skráð sig á. Hægt er að hafa samband á netfangið jona@isi.is eða kristin@isi.is ef einhverjar spurningar vakna.
Nánar

30.03.2012Hjólað í vinnuna 2012

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna í tíunda sinn dagana 9. - 29. maí 2012. Verið er að vinna í breytingum á vefnum og mun hann opna fyrir skráningu vinnustaða miðvikudaginn 18. apríl, en ekki verður hægt að skrá á sig ferðir fyrr en átakið hefst þann 9. maí. Við hvetjum alla vinnustaði til að fara að huga að undirbúningi fyrir átakið og hvetja sína starfsmenn til að taka fram hjólið og gera það klárt:) Hjólakveðjur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Nánar

14.12.2011Hjólað í vinnuna 2012

Frábær þátttaka var í Hjólað í vinnuna í ár og voru öll met fyrri ára slegin. Um 19,25 % þátttökuaukning var milli 2010 og 2011 og tóku alls 11.272 einstaklingur þátt frá 694 vinnustöðum í 1.628 liðum. Hjólað í vinnuna verður 10 ára á næsta ári og hefst átakið að þessu sinni miðvikudaginn 2. maí 2012 og stendur til þriðjudagsins 22. maí.
Nánar

27.05.2011Góð mæting á verðlaunaafhendinguna

Góð mæting var á verðlaunaafhendinguna og lokahátíð Hjólað í vinnuna sem haldin var kl. 12 í dag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hægt er að skoða myndir frá því í dag með því að fara í myndir hér fyrir ofan í valstikunni og smella síðan á Myndir 2011.
Nánar

27.05.2011Öflug starfsemi hjólreiðaklúbba

Fólk í hjólreiðasamtökunum brosa hringinn yfir þeim árangri sem hefur náðst í Hjólað í vinnuna í ár. Skýrt er að enn falla metin og við erum lang-best í heimi, miðað við höfðatölu ! Örvæntið ekki þótt Hjólað í vinnuna sé lokið í þetta skiptið. Það er ýmislegt í boði framundan, sérstaklega á Höfuðborgarsvæðinu. Hér er brot af því. Sjá heimasíður félagana til að finna enn
Nánar

27.05.2011Helstu afrek þátttakenda í Hjólað í vinnuna

Frábær þátttaka var í Hjólað í vinnuna í ár. Öll fyrri met voru slegin til samanburðar eru tölurnar sem eru innan sviga frá 2010. Þátttakan jókst um 19,25 % á milli ára. 694 (551)vinnustaðir skráðu
Nánar

27.05.2011Ábendingar

Við höfum fengið ábendingar frá keppendum um fyrirkomulag Hjólað í vinnuna. Við hvetjum ykkur endilega til þess að senda okkur línu á jona@isi.is ef þið hafið hugmyndir sem
Nánar

26.05.2011Verðlaunaafhending og lokahátíð Hjólað í vinnuna

Verðlaunaafhending og lokahátíð Hjólað í vinnuna verður haldin föstudaginn 27. maí kl. 12:00 – 13:00 í veitingatjaldi Húsdýragarðsins. Boðið verður upp á léttar veitingar. Öllum liðsstjórum er boðið að koma með 2-3 þátttakendur með sér. Vinningslið eru
Nánar

26.05.2011Skráningarfrestur til 15:00 í dag

Hægt verður að skrá árangur liðsmanna inn í kerfið til klukkan 15:00 í dag, fimmtudaginn 26. maí. Staðfest úrslit verða birt eins fljótt og hægt er eftir kl. 16:00.
Nánar

26.05.2011Bilun í kerfi

Við biðjumst afsökunar á þessari bilun sem hefur valdið því að vefurinn hefur legið niðri. Ástæðan var álag þar sem þátttakan hefur farið fram úr okkar björtustu vonum. En núna á að vera hægt að skrá inn í kerfið.
Nánar

25.05.2011Bilun í kerfi

Vegna bilunar í kerfinu í morgun var ekki hægt að skrá inn árangur liðsmanna. Kerfið er komið í lag og við minnum á að hægt verður að skrá inn árangur liðsmanna til kl. 10 á morgun fimmtudaginn 26. maí.
Nánar

24.05.2011Myndbandaleikur ÍSÍ og Arnarins

Dregið var í dag í myndbandaleik Hjólað í vinnuna og Arnarins. Tíu myndbönd voru í pottinum og var myndbandið, Ástmar Karl Steinarsson hjólar í vinnuna dregið
Nánar

23.05.2011Hætt við Gróðursetningu

Hætt hefur verið við Gróðursetninguna sem átti að vera á morgun, þriðjudag. Er
Nánar

23.05.2011Síðasti keppnisdagur verður miðvikudagurinn 25. maí

Í ljósi aðstæðna og svifryksmengunar höfum við ákveðið að framlengja átakið um einn dag þar sem vindaspá fyrir allt landið er hagstæðari á miðvikudag en hún er í dag. Hámarksfjöldi daga sem má skrá verður eftir sem áður sá sami eða 15 dagar en þátttakendur geta
Nánar

23.05.2011Mikilvægar dagsetningar

Lokakeppnisdagur Hjólað í vinnuna er á morgun, þriðjudaginn 24. maí. Hægt verður að skrá inn árangur liðsmanna fram til kl. 10:00
Nánar

23.05.2011Svifryk

Við viljum hvetja þátttakendur Hjólað í vinnuna að fylgjast vel með mælingum á svifryki. Hægt er að fylgjast með niðurstöðum mælinga meðal annars á
Nánar

20.05.2011Vísa

Eftirfarandi vísa var samin í tilefni átaksins Hjólað í vinnuna. Við skorum á ykkur, kæru þátttakendur, að
Nánar

20.05.2011Gjafabréf í Bláalónsþrautina vinsælu

10 heppin lið voru dregin út í morgun. Hjólreiðafélag Reykjavíkur ætlar að bjóða 10 liðum (hámark 5 í liði) frítt í Bláalónskeppnina. Hver miði gildir
Nánar

20.05.2011Liðsstjóraleikur

10 heppnir liðsstjórar voru dregnir út í morgun í liðsstjóraleik Hjólað í vinnuna. Það er Reiðhjólaverslunin Örninn sem gefur
Nánar

19.05.2011Skemmtileg myndbönd

Nú eru sex myndbönd komin inn á vefinn frá þátttakendum og skráð í myndbandaleik Hjólað í vinnuna. Dregið verður úr innsendum myndböndum
Nánar

19.05.2011Gróðursetningu frestað

Þar sem svifryk er yfir leyfilegum mörkum hér á höfuðborgarsvæðinu og mikill vindur þá frestum við gróðursetningunni sem vera átti í dag kl. 17:00 upp í Heiðmörk fram til þriðjudagsins 24. maí, sem jafnframt er síðasti dagur Hjólað í vinnuna. Við vonumst til að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir næsta þriðjudag.
Nánar

19.05.2011Tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur

Styrkur svifryks verður sennilega yfir heilsuverndarmörkum í dag, 19. maí. Ástæðan er líklega uppþyrlun ryks úr umhverfi og af umferðargötum. Aðalmælistöðin við Grensásveg og farstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sýna
Nánar

18.05.2011Myndir frá því í morgun

Með því að smella
Nánar

18.05.2011Gróðursetning á morgun

Fimmtudaginn 19. maí verða fyrstu plönturnar gróðursettar í Heiðmörkinni í Hjólað í vinnuna skóginum. Hjólað í vinnuna í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir gróðursetningu á plöntum í Heiðmörkinni fimmtudaginn 19. maí frá 17 - 19. Stefnt er
Nánar

18.05.2011Frábær mæting

Fjölmargir hjóluðu við í kaffihúsatjöldunum í morgun enda blíðskaparveður á höfuðborgarsvæðinu. Boðið var uppá kaffitár frá Kaffitár og Kristal
Nánar

17.05.2011Kafftjöld á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 18. maí er þátttakendum Hjólað í vinnuna boðið að hjóla við í kaffihúsatjöldum á 5stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er uppá kaffi frá Kaffitár og Egils Kristal frá Ölgerðinni. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum, Landssamtökum Hjólreiðamanna, Hjólafærni og Lýðheilsustöð verða á staðnum og kynna sína starfssemi. Kaffitjöldin verða opin frá 6:45 til ca. 9:30 og verða tjöldin á eftirtöldum stöðum:
Nánar

16.05.2011Varist lausamöl !!

Lesa má um miðbæjarrotturnar, öfluga Nobbara, sem hjóla yfir Oddskarðið á hverjum degi, flugugleypi og um reynslu einstaklings sem hjólaði í fyrsta skipti eftir
Nánar

16.05.2011Sendið okkur fréttir af ykkur

Ýmislegt er gert á vinnustöðum út um allt land í tengslum við þátttöku starfsmanna í Hjólað í vinnuna. Við hvetjum ykkur til þess að senda okkur
Nánar

16.05.20117 milljónir hafa sparast

Nú er Hjólað í vinnuna rúmlega hálfnað og hefur 10.631 liðsmaður frá 689 vinnustöðum skráð sig til leiks (skráð kl. 11:00 í morgun). Þátttakendur hafa lagt að baki 288 hringi í
Nánar

13.05.2011Glerbrot á göngu- og hjólreiðarstígum

Við höfum fengið nokkra pósta frá þátttakendum Hjólað í vinnuna þar sem verið er að athuga hvenær og hvort sveitarfélög landsins sópi sína göngu- og hjólreiðastíga. Mjög mikilvægt er að göngu- og hjólreiðastígar séu vel sópaðir fyrir hjólreiðamenn þar sem allir
Nánar

12.05.2011Umferðaröryggi

Eftirfarandi listi er settur fram til að aðvelda okkur öllum samvinnu og samskipti í umferðinni. Gott er að hafa eftirfarandi punkta á bak
Nánar

11.05.201130 km leið í Reykjavík

Rafn H. Sigurðsson sendi okkur myndbandið Biking 30 km in Reykjavík. Myndbandið er með
Nánar

11.05.2011Alþjóðlegur áratugur aðgerða í umferðaröryggismálum

Í dag, 11. maí, hefst alþjóðlegur áratugur í umferðaröryggismálum, Decade of Action for
Nánar

11.05.2011Ég sé hvað þú hugsar - örugg á hjóli

Áhugaverð grein birtist í Fréttablaðinu í gær (10. maí) eftir Sesselju Traustadóttur, verkefnastýru Hjólafærni á Íslandi. Þar kemur hún inn á öryggi hjólreiðamannsins í umferðinni og
Nánar

11.05.2011Viðtal á Rás 2

Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðarmanna, verður í viðtali hjá Andra og Gunnu Dís á eftir í Virkir morgnar á Rás 2. Fjallað verður um umferðaröryggi. Hvetjum alla til þess að hlusta.
Nánar

10.05.2011Nýtt þátttökumet

Nýtt þátttökumet hefur verið slegið. Þegar þetta er skrifað (kl. 13:20) hafa 9975 (9451) þátttakendur úr 1500 (1347) liðum frá 679 (551) vinnustöðum skráð sig til leiks, tölurnar í svigunum eru frá því í fyrra. Enn er hægt að skrá inn vinnustaði og liðsmenn til leiks og hvetjum við þá sem eru að hugsa sig um að slá til og vera með.
Nánar

10.05.2011Vistvænni byggð! heilbrigðara umhverfi=betri líðan=bjartari framtíð!

Þann 12. maí nk.verður haldin ráðstefna í Norræna húsinu á vegum Vistbyggðarráðs og Vistmenntarverkefnisins, sem ber
Nánar

10.05.2011Samgöngusamningar

Í spurningu gærdagsins var spurt hvort að samgöngusamningar væru í boði á þínum vinnustað. 14,72% sögðu já, 39,59% sögðu nei og 45,69 svöruðu að þeir vissu ekki hvað samgöngusamningar væru. Samgöngusamningar eru
Nánar

10.05.2011Myndbandaleikur

Myndbandaleikur Hjólað í vinnuna er í fullum gangi og verður dregið úr innsendum myndböndum þriðjudaginn 24. maí. Vinningsmyndbandið hlýtur
Nánar

10.05.2011Hvatningarleikur á Rás 2

Við viljum minna á hvatningarleik Rásar 2 og ÍSÍ þar sem eitt lið er dregið út á hverjum virkum degi í þættinum Virkir morgnar. Með því að senda inn myndir og/eða reynslusögur getur þitt lið unnið glæsilega vinninga frá Erninum. Þátttakendur geta
Nánar

06.05.2011Umfjöllun um hjólreiðar og samgöngur

Fróðlegt viðtal var tekið við Einar Magnús Magnússon uppl.fulltrúa Umferðarstofu á Bylgjunni í morgun þar sem fjallað var um Hjólað í Vinnuna og að
Nánar

06.05.2011Góð skráning

Þegar þetta er skrifað hafa 657 vinnustaðir með 1420 liðum skráð 9384 liðsmenn til leiks. Þátttökumet var slegið í fyrra þegar 9451 liðsmenn frá 551 vinnustað í 1347 liðum skráðu sig til leiks. En er
Nánar

06.05.2011Rannsókn um aðlaðandi hjólreiðaumhverfi

Mikill áhugi er að bæta aðstæður fyrir hjólreiðafólk og að sjálfsögðu fögnum við því. Harpa Stefánsdóttir, arkitekt/PhD styrkþegi í borgarskipulagi, vinnur að doktorsritgerð sinni. Hún óskar eftir hjólreiðafólki til að taka þátt í rannsókn um aðlaðandi leiðir fyrir samgönguhjólreiðar dagana
Nánar

06.05.2011Nýr vefur bætir hjólaleiðir í Reykjavík

Reykjavíkurborg hefur opnað nýjan vef til að kortleggja hjólaleiðar til og frá vinnu, þar sem jafnframt er hægt að koma með ábendingar um úrbætur og mæla vegalendir. Fólk getur bent á vástaði, t.d. hvar vanti göngu- og hjólreiðastíga, hvar bifreiðar fari of hratt og skrifað aðrar athugasemdir. Einnig er hægt að sækja hjólaferil í GPX skrá fyrir GPS tæki. Hér fyrir neðan undir
Nánar

06.05.2011Umfjöllun í fjölmiðlum

Fjölmiðlar hafa birt fréttir af Hjólað í vinnuna eða birt greinar um tengt efni. Morgunblaðið var með athyglisverðar greinar í þriðjudagsblaðinu, visir.is birti þessa frétt, smelltu
Nánar

05.05.2011Spurning dagsins

Á hverjum virkum degi frá 4. - 24. maí verður sett inn ein spurning um þátttöku í Hjólað í vinnuna. Hver spurning er virk í einn sólahring og að honum loknum birtum við niðurstöður spurningarinnar hér á síðunni undir "Um hjólað í vinnuna" - "Spurning dagsins". Þar munum við
Nánar

04.05.2011Hjólað í vinnuna hafið í níunda sinn

Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna fór fram í Reykjavík og á Akureyri í morgun, miðvikudaginn 4. maí. Í Reykjavík fór opnunin fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Geir Gunnlaugsson, Landlæknir, Eva Einarsdóttir, formaður ÍTR og
Nánar

03.05.2011Sendið inn myndir eða reynslusögur

Á hverjum virkum degi vinnur eitt lið glæsilega vinninga frá Erninum í hvatningarleik ÍSÍ og Rásar 2. Dregið er úr liðum á Rás 2, í þættinum Virkir morgnar. Til þess að vera gjaldgengir þátttakendur þarf að senda inn myndir eða reynslusögur. Þátttakendur geta sjálfir sett inn myndir og/eða sögur í gegnum
Nánar

03.05.2011Opnun Hjólað í vinnuna í Reykjavík og á Akureyri

Opnunarhátið Hjólað í vinnuna verður í Reykjavík og á Akureyri kl. 8:30 á morgun, miðvikudaginn 4. maí. Í Reykjavík fer opnunin fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra,
Nánar

29.04.2011Skráning stendur yfir

Þegar þetta er skrifað, klukkan 14:45, hafa 213 fyrirtæki skráð 349 lið með 1848 liðsmenn til leiks. Við viljum bjóða þá velkomna sem nú þegar hafa skráð sig til leiks en við hvetjum alla sem eru enn að hugsa sig um að vera með í Hjólað í vinnuna 2011. Hægt er að skrá sig með því að smella á Nýskráningu hér efst í hægra horninu. Ef þú þarft aðstoð eða hefur einhverjar spurningar þá endilega hafðu samband.
Nánar

29.04.2011Ýmsar upplýsingar

Ýmsar upplýsingar eru að finna hér inn á vefnum. Kynntu þér reglur Hjólað í vinnuna með því að smella á Um Hjólað í vinnuna hér fyrir ofan og síðan á Reglur og Keppnisgreinar. Einnig eru upplýsingar um hvatningarleikinn sem er í fullum gangi á Rás 2, þar sem eitt lið er dregið út daglega í þættinum
Nánar

27.04.2011Vinsamlegast athugið

Vegna fjölda fyrirspurna viljum við benda á að allar upplýsingar um þátttakendur og árangur þeirra eru hreinsaðar af vef Hjólað í vinnuna á milli ára m.a. netföng og lykilorð frá árinu 2010. Vinsamlegast farið í nýskráningu og fylgið leiðbeiningum.
Nánar

26.04.2011Skráningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ

Skráningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ hefst á morgun, miðvikudaginn 27. apríl og stendur til þriðjudagsins 24. maí. Dregið verður úr skráðum liðinum dagana 27. apríl til 3.maí og úr innsendum myndum og reynslusögum dagana 4. - 24. maí í þættinum Virkir morgnar á Rás 2. Reiðhjólaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga til þeirra liða sem verða dregin út. Við hvetjum alla til þess að drífa sig að skrá sín lið leiks til þess að eiga möguleika á því að verða dregin út í skráningarleiknum.
Nánar

14.04.2011Skráning hafin í Hjólað í vinnuna 2011

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2011 og geta vinnustaðir því hafist handa við að skrá sig og sín lið. Átakið sjálft hefst ekki fyrr en miðvikudaginn 4. maí og stendur til þriðjudagsins 24. maí. Á þessu tímabili eru 15 virkri dagar og því getur hver og einn þátttakandi skráð hámark 15 daga. Undir hnappnum "skráning" efst á síðunni má nálgast ítarlegar leiðbeiningar um skráningu og eru allir hvattir til þess að kynna sér leiðbeiningarnar áður en hafist er handa við skráningu. Ef upp koma vandamál má hafa samband við Kristín Lilju á netfangið kristin@isi.is. Ekki verður hægt að hafa samband í síma dagana 18. - 20. apríl þar sem Íþróttamiðstöðin í Laugardal verður lokuð þá daga vegna framkvæmda.
Nánar

15.12.2010Hjólað í vinnuna 2010

Frábær þátttaka var í Hjólað í vinnuna í ár og voru öll met fyrri ára slegin. Um 17,5 % þátttökuaukning var milli 2009 og 2010 og alls tók 9451 einstaklingur þátt frá 551 vinnustað í 1347 liðum. Hjólað í vinnuna verður ræst í níunda sinn miðvikudaginn 4. maí 2011 og stendur til og með 24. maí. Við viljum nota tækifærið og minna á önnur verkefni á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Lífshlaupið, fræðslu- og hvatningarverkefni sem höfðar til allra aldurshópa, fer fram 2. – 22. febrúar 2011.
Nánar

Mynd með frétt/grein

24.11.2010Fleira hjóla en áður í vinnu og skóla

Færri nota nú einkabílinn til að fara til og frá vinnu og færri grunnskólabörn eru keyrð í skólann en árin 2009 og 2008. Reiðhjól eru aftur á móti á uppleið. Þetta kemur fram í árlegri ferðavenjukönnun sem Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar lætur gera. Spurningarnar voru lagðar fyrir í Capacent Gallup könnun mánaðamótin október - nóvember og hljómuðu svo: „Með hvaða hætti fór barnið þitt/börnin þín í grunnskólann í morgun?“ og „Með hvaða hætti ferðast þú að jafnaði til vinnu eða skóla á morgnana?“
Nánar

28.05.2010Verðlaunaafhendingar vinnustaða

Við hvetjum vinnustaði til að setja inn myndir inn á vef Hjólað í vinnuna af verðlaunaafhendingum sem vinnustaðir hafa staðið fyrir sjálfir. Einnig er hægt að senda texta og mynd á kristin@isi.is
Nánar

Mynd með frétt/grein

28.05.2010Myndir frá verðlaunaafhendingu

Góð mæting var á verðlaunaafhendinguna og lokahátíð Hjólað í vinnuna í hádeginu í dag. Hægt er að skoða myndir með því að smella á Myndir hér fyrir ofan og síðan Myndir 2010. Við komum til með að senda þeim vinningshöfum sem komust ekki í dag sín verðlaun eftir helgi.
Nánar

27.05.2010Þökkum fyrir frábæra þátttöku og glæsilegan árangur

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna þökkum þátttakendum kærlega fyrir drengilega og skemmtilega keppni. Hjólað í vinnuna mun fara fram á svipuðum tíma á næsta ári og hvetjum við alla til að vera með og keppa að nýju marki. Höldum áfram að nýta eigin orku í allt
Nánar

27.05.2010Frábær þátttaka

Frábær þátttaka var í Hjólað í vinnuna í ár. Öll fyrri met voru slegin til samanburðar eru tölurnar sem eru innan sviga frá 2009. Þátttakan jókst um 17,5% á milli ára. 551 (468) vinnustaður skráðu 1347 (1147) lið til leiks með 9451 (8041) liðsmann. Alls voru hjólaðir 647.865 km (493.202) eða 483.84 (368.34) hringir í kringum landið. Við það sparaðist um
Nánar

27.05.2010Staðfest úrslit 2010

Þau úrslit sem eru birt hér á heimasíðunni núna (kl. 14:30 fimmtudaginn 27. maí) eru staðfest úrslit Hjólað í vinnuna 2010. Við óskum öllum vinnustöðum til hamingju með árangurinn.
Nánar

27.05.2010Verðlaunaafhending og lokahátíð

Verðlaunaafhending og lokahátíð Hjólað í vinnuna verður haldin föstudaginn 28. maí kl. 12:00 – 13:00 í veitingatjaldi Húsdýragarðsins. Boðið verður upp á léttar veitingar. Öllum liðsstjórum er boðið að koma með 2-3 þátttakendur með sér. Vinningslið eru sérstaklega hvött til þess að mæta og taka á móti sínum verðlaunum. Verðlaun verða veitt fyrir
Nánar

Mynd með frétt/grein

26.05.2010Spurning dagsins 25.maí

Spurt var: Ætlar þú að halda áfram að hjóla/ganga í vinnuna eftir að Hjólað í vinnuna líkur í dag? Af þeim 407 sem svöruðu þá ætla 395 eða 97,3% að halda áfram að hjóla/ganga í vinnuna eftir að keppninni Hjólað í vinnuna líkur en 12 eða 2,8% ætla að snúa sér aftur að
Nánar

26.05.2010Skráning til kl: 10:00 á morgun, fimmtudag 27. maí

Hægt verður að skrá árangur liðsmanna inn á vefinn til kl. 10:00 á morgun fimmtudaginn 27. maí, eftir það verður kerfinu læst. Staðfest úrslit verða birt á vefnum kl: 14:00 sama dag eða fimmtudaginn 27. maí.
Nánar

26.05.201030 starfsmenn EJS hjóluðu til góðs

Starfsmenn EJS luku átakinu „Hjólað í vinnuna“ með glæsibrag í gær þegar þeir hjóluðu alla leiðina úr Njarðvík í höfuðstöðvar fyrirtækisins á Grensásvegi 10 í Reykjavík. Þeir tóku daginn snemma, voru ferjaðir suður með sjó með aðstoð Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og Bílaleigu Akureyrar. Þar var lagt í hann kl. 05:30. Þegar ferðalaginu lauk, afhentu starfsmenn EJS fullbúna DELL fartölvu til Barnaspítala Hringsins að gjöf en
Nánar

25.05.2010Dregið í dag í myndbandaleik

Dregið var í dag í myndbandaleik ÍSÍ og Arnarins. Alls fengum við sjö myndbönd send til okkar og af þeim var myndband liðsmanna RTFMs og BOFH hjá Símanum dregið upp úr pottinum. Við óskum þeim til hamingju með 50.000 kr. gjafabréfið frá reiðhjólaversluninni Erninum og þökkum öllum hinum sem sendu inn myndbönd kærlega fyrir þátttökun og fyrir áhugaverð og skemmtileg myndbönd.
Nánar

Mynd með frétt/grein

25.05.2010Spurning dagsins 21. maí

Spurt var: " Þekkir þú einhvern sem ekki tekur þátt í Hjólað í vinnuna þó svo að viðkomandi hjóli eða gangi til vinnu?" Niðurstöður voru þessar: Af þeim 174 sem svöruðu þá sögðu 59,8% já en 40,2% sögðu nei. Það er gott til þess að vita að það eru fleiri en 9370 sem nýta eigin orku til að koma sér til og frá vinnu.
Nánar

25.05.2010Verðlauna- og lokahátíð

Verðlauna-og lokahátíð Hjólað í vinnuna verður haldinn föstudaginn 28. maí kl: 12:00-13:00 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í öllum keppnisflokkum vinnustaðanna og fyrir báðar keppnisgreinar þ.e. fyrir flesta keppnisdaga og flesta kílómetra. Skráning er á jona@isi.is.
Nánar

25.05.2010Myndbandaleikur

Í dag verður dregið úr innsendum myndböndum í myndbandaleik ÍSÍ og Arnarins. Tilkynnt verður um sigurvegarann eftir kl: 13:00 í dag, þriðjudaginn 25. mai. Vegleg verðlaun eru í boði eða gjafabréf að upphæð 50.000 kr. frá hjólreiðaversluninni Erninum. Hægt er að skoða öll myndböndin hér fyrir ofan.
Nánar

25.05.2010Síðasti skráningardagur

Hægt verður að skrá árangur liðsmanna inn á vefinn til kl. 10:00 fimmtudaginn 27. maí, eftir það verður kerfinu læst. Því miður höfum við þurft að vísa nokkrum liðsstjórum frá þegar þeir hafa haft samband eftir að skráningarfrestur rann út. Við hvetjum alla liðsstjóra til að skrá inn árangur sinna liðsmanna eins fljótt og hægt er. Staðfest úrslit verða birt á vefnum kl: 14:00 sama dag eða fimmtudaginn 25. maí.
Nánar

25.05.2010Lokakeppnisdagur

Í dag er lokakeppnisdagur í hvatningar-og átaksverkefni Íþrótta- og Ólympíusambandsins þetta árið. Nú hafa 551 (468) vinnustaðir skráð 1333 (1147) lið til leiks með 9336 (8041) liðsmönnum. Enn eitt árið falla öll þátttökumet í hjólað í vinnuna. Tölurnar í sviganum eru frá því í fyrra.
Nánar

Mynd með frétt/grein

21.05.2010Spurning dagsins - 20.maí

Fimmtudaginn 20.maí var spurt: "Hjólar þú allt árið?" Af þeim 136 sem svöruðu voru 33,8 % sem sögðust hjóla allt árið og 66,2 % sem sögðust ekki hjól allt árið. Tíðarfar var hagstætt á árinu 2009. Hiti var langt yfir meðallagi um landið sunnanvert og einnig vel yfir meðallagi nyrðra. Í Reykjavík var árið það 10. hlýjasta frá upphafi mælinga. Í Reykjavík og á Akureyri voru allir mánuðir nema tveir með hita yfir meðallagi. Árið 2009 verður að teljast snjólétt, alhvítir dagar í Reykjavík voru 40
Nánar

21.05.2010Starfsmenn EJS hvetja til hjóla-góðverka

Átakinu „Hjólað í vinnuna“ lýkur þriðjudaginn 25. maí. Starfsmenn EJS hvetja öll fyrirtæki sem hafa hjólað í vinnuna, til að sameinast í því að ljúka átakinu með góðum endaspretti og góðverki að
Nánar

21.05.2010Lífshlaupið - einstaklingsskráning

Við viljum benda þátttakendum Hjólað í vinnuna á einstaklingsskráninguna sem er inn á vef Lífshlaupsins, lifshlaupid.is. Í einstaklingskeppni Lífshlaupsins, sem er í gangi allt árið, er hægt að skrá inn alla hreyfingu og halda utan um árangur sinn daglega. Fróðlegt er síðan að skoða og bera saman árangur sinn á milli
Nánar

21.05.2010Hjólreiðar - frábær ferðamáti

Íslenski Fjallahjólaklúbburinn og Landssamtök Hjólreiðarmanna gáfu út bæklinginn Hjólreiðar - frábær ferðamáti í byrjun maí. Í bæklingnum er að finna kafla um samgönguhjólreiðar sem tilvalið er að kynna sér og bæta öryggi sitt í umferðinni, ýmsar ráðleggingar og greinar um hjólið, einfalt viðhald og græna vinnustaði ásamt
Nánar

20.05.2010Hjóla - bloggarar

Nokkrir skemmtilegir pennar eru að skrifa um hjólreiðar og er áhugavert að lesa um þeirra reynslu og skoðanir um hjólreiðar og þau mál sem tengjast þeim. Hér fyrir neðan eru nokkrir virkir bloggarar. Allar ábendingar um fleiri eru vel
Nánar

Mynd með frétt/grein

20.05.2010Spurning dagsins - 19.maí

Miðvikudaginn 19.maí var spurt: "Kannt þú að gera við spurngið dekk?" Af þeim 217 sem svöruðu voru 66,8 % sem sögðu já og 33,2 % sem sögðu nei. Gott er að sjá að um 2/3 sem svöruðu kunna að gera við dekkið en fyrir þá sem ekki kunna það, þá er grein inná vef Íslenska fjallahjólaklúbbsins, efter Sesselju Traustadóttur þar sem varið er í gegnum það hvernig sprungið dekk er lagað og fylgja greininni myndir sem hægt er að fara eftir. Hægt er að komast á greinina með því að smella hér.
Nánar

20.05.2010Reynslusögur

Þátttakendur Hjólað í vinnuna upplifa ýmislegt í tengslum við hjóla- eða göngutúra sína í og úr vinnu þessa dagana. Við höfum fengið fjölmargar reynslusögur og myndir sendar frá þátttakendum sem lífga upp á vefinn okkar. Hér fyrir neðan er brot af nokkrum sögum sem við höfum fengið sent. Hægt er að lesa allar sögurnar með því að
Nánar

Mynd með frétt/grein

19.05.2010Spurning dagsins - 18. maí

Þriðjudaginn 18.maí var spurt: " Hvoru megin á hjólreiðamaður að taka á stíg og götu?" Af þeim 239 sem svöruðu voru 12,1 % sem sögðu vinstra megin og 87,9 % sem sögðu hægra megin. Eftirfarandi texti er fenginn úr hjólreiðabæklingnum Hjólreiðar frábær ferðamáti sem Íslenski Fjallahjólaklúbburinn og Landssamtök Hjólreiðamanna gáfu út áður en Hjólað í vinnuna hófst. Í bæklingnum er greinargóður kafli um samgönguhjólreiðar sem við hvejtum fólk eindregið til að kynna sér. Hægt er að nálgast eintak af bæklingum á Skrifstofu ÍSÍ, Engjavegi 6. " Að hjóla frammúr:
Nánar

19.05.2010Duglegir og hugmyndaríkir liðsstjórar

Um 1300 liðsstjórar eru út um allt land að hvetja liðsmenn sína til dáða. Við þökkum öllum þessum frábæru liðsstjórum fyrir þeirra framlag til Hjólað í vinnuna. Liðsmenn Tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík eru svo sannarlega ánægðir með
Nánar

19.05.20102 fyrir 1 tilboð hjá Ávaxtabílnum

Ávaxtabíllinn bauð upp á kalda og mjög holla grænmetissúpu í kaffitjöldunum í morgun, orkuríka næringu í morgunsárið. Við þökkum Ávaxtabílnum kærlega fyrir samstarfið. Í tilefni Hjólað í vinnuna bíður Ávaxtabíllinn uppá 2 fyrir 1 tilboð í maí af heitum mat í hádeginu. Smellið hér og kíkið á tilboðið auk þess sem
Nánar

19.05.2010Kaffitár 20 ára

Kaffitár bauð upp á nýlagað kaffi í kaffitjöldunum hjá okkur í morgun. Kaffitár á 20 ára afmæli og óskum við þeim til hamingju með árangurinn og árin tuttugu og þökkum þeim kærlega fyrir samstarfið. Á heimsíðu Kaffitár eru ýmsar fróðlegar upplýsingar um kaffi, sölustaði og þá þjónustu sem Kaffitár bíður uppá.
Nánar

19.05.2010Tökum tillit til gangandi vegfarenda

Nær allir stígar eru blandaðir útivistarstígar. Á þeim og á gangastéttum eru hjólreiðarmenn gestir og þurfa að taka fullt tillit til gangandi vegfarenda. Gott er að hringja bjöllu í góðri fjarlægð því ef hringt er of nálægt geta þeir vikið til hliðar og í veg fyrir reiðhjólið. Almennt ættu
Nánar

19.05.2010Góð mæting í morgun

Frábær mæting var í kaffitjöldum Hjólað í vinnuna í morgun. Um 800 manns stoppuðu við og fengu sér morgunkaffi frá Kaffitár og grænmetisbúst frá Ávaxtabílnum. Fjölmargir nýttu sér þjónustu aðila frá hjólreiðarsamtökunum og fengu loft í dekkin og olíu á keðjuna. ÍSÍ og samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna þakkar þátttakendum fyrir
Nánar

18.05.2010Kaffitjöld

Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér morgunkaffi miðvikudaginn 19.maí frá kl: 7:00 - 9:30. Ávaxtabíllinn bíður upp á léttar veitingar og Kaffitár bíður upp á nýlagað morgunkaffi. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum og öðrum hjólreiðasamtökum verða á staðnum og pumpa í dekk og smyrja keðjur. Kaffitjöldin verða í Reykjavík við Geirsnef við Bíldshöfða, við
Nánar

Mynd með frétt/grein

18.05.2010Spurning dagsins - 17.maí

Mánudaginn 17.maí var spurt: "Hvað eru margir bílar á þínu heimili?" Af þeim 320 sem svöruðu voru 6,3% sem sögðu enginn, 48,8% einn, 35,6% tveir og 9,4% fleiri. Síðustu ár hefur orðið mikil aukning í bílafjölda á Íslandi og einkabílinn orðinn aðal samgöngutæki almennings. Árið 2008 voru 656,7 fólksbílar á hverja 1000 íbúa en árið 1990 voru þeir ekki nema 468,2 og er það því aukning um 40% á 18 ára tímabili. Mikilvægt er að almenningur
Nánar

18.05.2010Bilun

Því miður hefur vefurinn legið niðrí í morgun vegna bilunar en er kominn í lag núna.
Nánar

Mynd með frétt/grein

17.05.2010Spurning dagsins - 14.maí

Föstudaginn 17.maí var spurt " Hefur þú skoðað vefsíður hjólreiaðfélaga og samtaka?" Af þeim 170 sem svöruðu voru 48,8% sem höfðu skoðað vefsíður hjólreiðafélaga og samtaka og 51,2% sem sögðust ekki hafa skoðað þær. Margt áhugavert er að finna á vefsíðum hjólreiðafélaga og samtaka og oft margt skemmtilegt í gangi hjá þeim. Landssamtök Hjólreiðamanna eru með vefsíðuna www.lhm.is , Íslenski fjallahjólaklúbburinn
Nánar

17.05.2010Fræðslufundur á Selfossi

Á morgun, þriðjudaginn 18.maí mun ÍSÍ, Lýðheilsustöð og Hjólafærni standa fyrir fræðslufundi á Selfossi hjá Héraðssambandinu Skarphéðni í Selinu frá 17:30 til 18:30. Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð mun segja frá alþjóðadegi hreyfingar, Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ mun segja frá Hjólað í vinnuna og Árni
Nánar

17.05.2010Hvatningarleikur Rásar 2 og myndbandaleikurinn

Hvatningarleikur Rásar 2 er enn í fullum gangi og er dregið úr innsendum myndum og reynslusögum á hverjum virkum degi í Popplandi á Rás 2 kl. 11:45. Til þess að vera með í pottinum þarf að senda okkur mynd eða reynslusögu. Hægt er að senda inn mynd með því að fara í "Myndir" - "Senda inn mynd". Reynslusögur má svo senda á
Nánar

17.05.2010Upptökur frá opnunarhátið Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna var "hjólað" af stað miðvikudaginn 5.maí síðast liðinn. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mennta - og menningarmálaráðaherra, Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra og Kristján Möller, samgönguráðherra ávörpuðu gesti og er nú hægt að horfa á upptöku af ávörpum þeirra
Nánar

14.05.2010Hjólað í Sjálandsskóla

Starfsfólk Sjálandsskóla tekur að venju þátt í Hjólað í vinnuna. Keppnin var reyndar útvíkkuð fyrir nemendur skólans og þá fékk sú keppni nafnið Hjólað í skólann. Allir nemendur eru hvattir til að koma hjólandi eða gangandi í skólann - kennararnir skrá niður þá sem hjóla eða ganga og yngri nemendurnir fá perlur á
Nánar

Mynd með frétt/grein

14.05.2010Fræðslufundur á Ísafirði

Þriðjudaginn 12. maí síðastliðinn stóðu ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Hjólafærni og HSV fyrir fræðslufundi á Ísafirði. Jón Páll Hreinsson, formaður HSV stjórnaði fundinum og erindi fluttu Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna, Árni Davíðsson, Hjólafærni á Íslandi. Margrét Halldórsdóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar sat fyrir svörum fyrir hönd Ísafjarðarbæjar. Þar sem ræðumenn fundarins áttu ekki flug heim fyrr
Nánar

Mynd með frétt/grein

14.05.2010Fræðslufundur á Akureyri

Þriðjudaginn 11. maí síðastliðinn stóðu ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Hjólafærni og Akureyrarkaupstaður fyrir fræðslufundi á Akureyri. Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ stjórnaði fundinum og erindi fluttu Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna, Sesselja Traustadóttir, kennari, Hjólafærni á Íslandi og Ólafur Jónsson, formaður íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Akureyrarbær hefur staðið sig vel í að bæta göngu- og hjólreiðastíga í bænum og eiga þeir einungis eftir að bæta við
Nánar

Mynd með frétt/grein

14.05.2010Spurning dagsins - 12.maí

Miðvikudaginn 12.maí var spurt: "Notar þú hjálm?" Af þeim 334 sem svöruðu voru 79% sem sögðust alltaf nota hjálm, 8% stundum og 12% aldrei. Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms kemur als ekki í veg fyrir slysin en minnkar líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar ...
Nánar

Mynd með frétt/grein

14.05.2010Spurning dagsins - 11.maí

Á þriðjudaginn var, var spurt: Notar þú bjölluna á hjólinu þínu? Af þeim 286 sem svöruðu voru 19,9% sem sögðust alltaf nota bjölluna, 36% stundum en 44,1% sem sagðist ekki vera með bjöllu. Mjög mikilvægt er að nota bjölluna þegar hjólað er, sérstaklega þar sem hjólað er á göngustígum í samfloti með gangandi vegfarendum. Nota á bjölluna nokkru áður en hjólreiðamaðurinn tekur fram úr gangandi vegfaranda/öðrum hjólreiðamanni svo sá hinn sami viti að von er á hjólreiðamanni. Þó skal hafa í hug að í dag er mjög algengt að gangandi ...
Nánar

12.05.2010Japanskur hjólamaður fyrir norðan

Eftirfarandi frétt birtist á heimasíðu Vikudags miðvikudaginn 5. maí að tilefni opnun Hjólað í vinnuna fyrir norðan. Skemmtileg uppákoma. "Það munaði hársbreidd að hjólaverkefnið fengið alþjóðlegan blæ þegar Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ ræddi við japanska hjólamanninn á Akureyri . Verkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, hófst í
Nánar

12.05.2010Ráðstefnan Öruggt samfélag 19.-20. maí

Ráðstefnan Öruggt samfélag eða The European Safe Community Conference, verður haldin á Grand hóteli dagana 19.-20. maí, 2010. Ráðstefnan á erindi við alla þá sem áhuga hafa á öryggismálum og velferð. Má þar m.a. nefna sérfræðinga á sviði heilbrigðismála, skipulags- og samgöngumála, umhverfismála, stjórnmálamenn, grasrótarsamtök, tryggingafélög, vinnustaði og
Nánar

11.05.2010Þátttökumet

Þátttökumet hefur verið slegið í Hjólað í vinnuna. Nú hafa 540 vinnustaðir skráð 1242 lið til leiks með 8475 liðsmönnum. Í fyrra tóku 468 vinnustaðir með 1147 liðum og 8041 liðsmönnum þátt. En er hægt að skrá vinnustaði, lið og liðsmenn til leiks og hvetjum við alla sem
Nánar

11.05.2010Fræðslufundur á Ísafirði

Á morgun, 12. maí 2010 mun ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Hjólafærni og HSV standa fyrir fræðslufundi á Ísafirði í Stjórnsýsluhúsinu frá kl. 12:00 – 13:00. Jón Páll Hreinsson, formaður HSV mun stjórna fundinum og erindi flytja Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna, Sesselja Traustadóttir, kennari, Hjólafærni á Íslandi og Margrét Halldórsdóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar. Við hvetjum alla fyrir vestan til að mæta, allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Nánar

11.05.2010Kennslumyndband um hjólreiðar

Hér er slóð að mjög góðu kennslumyndbandi sem hvetur til hjólreiða og bendir einnig á mikilvæg öryggisatriði sem tengjast hjólreiðum http://www.bicinstitut.cat/node/166
Nánar

10.05.2010Fræðslufundur á Akureyri 11.maí frá 12:00 - 13:00

Á morgun, 11. maí 2010 mun ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Hjólafærni og Akureyrarkaupstaður standa fyrir fræðslufundi á Akureyri í félagsheimili Þórs Hamri frá 12:00 – 13:00. Viðar Sigurjónsson, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ mun stjórna fundinum og erindi flytja Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna, Sesselja Traustadóttir, kennari, Hjólafærni á Íslandi og Ólafur Jónsson, formaður íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Við hvetjum alla norðanmenn til að mæta, enda allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Nánar

Mynd með frétt/grein

10.05.2010Fræðslufundur í Reykjavík

ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Umhverfissvið Reykjvíkurborgar og Hjólafærni stóðu fyrir fræðslufundi í Reykjavík í hádeginu í dag um samgönguhjólreiðar að tilefni alþjóðadags hreyfingar. Þema alþjóðadags hreyfingar á Íslandi er samgönguhjólreiðar. Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð kynnti alþjóðdag hreyfingar og markmið hans, Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Hjólað í vinnuna fór stuttlega
Nánar

10.05.2010Opið hús alla daga hjá ÍFHK

Íslenski Fjallahjólaklúbburinn verður með opið klúbbhúsið sitt fyrir alla á meðan að Hjólað verður í vinnuna. Allir eru velkomnir að hjóla við á Brekkustíginn og skoða aðstöðuna, njóta leiðsagnar félaga ÍFHK um hjólið og fá sér kaffisopa. Aðstaðan að Brekkustíg 2 verður opin alla virka daga frá kl. 17 - 20. Á fimmtudagskvöldum verður opið fram eftir kvöldi.
Nánar

10.05.2010Fræðslufundur í dag í Reykjavík kl. 12-13

Fræðslufundir verða á næstu dögum í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði og á Selfossi á vegum ÍSÍ, Lýðheilsustöð og Hjólafærni um samgönguhjólreiðar. Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Fundirnir verða sem hér segir: Mánudaginn 10. maí í Reykjavík í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal að Engjavegi 6, 3 hæð, F sal kl: 12:00 - 13:00. Þriðjudaginn 11. maí á
Nánar

Mynd með frétt/grein

09.05.2010Spurning dagsins - 7.maí

Spurning dagsins á föstudaginn 7.maí var "Hvernig hvetur þinn vinnustaður til vistvæns ferðamáta í og úr vinnu?".Af þeim 142 sem svöruðu voru 26,1% sem sögðu að vinnustaðurinn þeirra hvetti til vistvæns ferðamáta með því að senda út hvatningarpósta, 5,6% með vinnutengdum fríðindum, 26,1% með innanhúss keppni milli liða, 29,6% sögðu að sinn vinnustaður hvetti ekki til vistvæns ferðamáta og 12,7% sögðu að vinnustaðurinn notaði aðrar aðferðir til hvatningar. Hvatning vinnustaða um vistvænan ferðamáta hefur mikið að segja og getur komið ólíklegustu einstaklingum af stað í að hjóla/ganga til og frá vinnua. Hvatningin getur verið mjög mismunandi og þarf...
Nánar

07.05.2010Ávinningur þess að hjóla í vinnuna

Sveinn Atli Gunnarsson fjallar um ávinning þess að hjóla í vinnuna á heimasíðunni loftslag.is Mjög fróðlegt er að skoða útreikninga hans sem hann miðar við einstakling og þá kílómetra sem þátttakendur Hjólað í vinnuna lögði að baki árið 2009 sem voru 493.202 km. Útreikningarnir eru gerðir með hjálp reiknivélar Orkusetursins sem hægt er að nálgast hér fyrir ofan. Helstu tölur eru þær að
Nánar

Mynd með frétt/grein

07.05.2010Spurning dagsins - 6.maí

Spurning dagsins í gær, fimmtudaginn 6.maí var "Hvernig er aðstaða fyrir hjólreiðamenn og hjól á þínum vinnustað?". Niðurstöðurnar voru þær að af þeim 369 sem svöruðu voru 30,9% sem söguð mjög góð, 27,1% svöruðu góð, 24,4 sæmileg, 13 % slæm og 4,6% mjög slæm. Af þessu sést að aðbúnaður fyrir hjólreiðamenn og hjól hjá meirihluta þeirra vinnustaða sem taka þátt í Hjólað í vinnuna er góður eða ásættanlegur. Einungis tæplega 18% sögðu að aðstæðan væri slæm eða mjög slæm. Það að vinnustaður hafi hjólagrindur...
Nánar

07.05.2010Fræslufundur í Reykjavík

ÍSÍ, Lýðheilsustöð, Umhverfissvið Reykjvíkurborgar og Hjólafærni standa fyrir fræðslufundi í Reykjavík mánudaginn 10. maí kl: 12:00 - 13:00 um samgönguhjólreiðar að tilefni alþjóðadags hreyfingar. Þema alþjóðadags hreyfingar á Íslandi þann 10. maí er samgönguhjólreiðar. Á fundinum verður m.a. farið yfir ýmis hagnýt atriði sem auka ánægju og færni hjólandi vegfarenda í umferðinni, farið stuttlega yfir
Nánar

07.05.2010Eitt met fallið

Nú þegar höfum við slegið eitt met og það er í fjölda þeirra vinnustaða sem hafa skráð sig til leiks. Þegar þetta er skrifað hafa 498 vinnustaðir skráð 1118 lið með 7382 liðsmönnum til leiks. Árið 2009 skráðu 468 vinnustaðir 1147 lið og 8041 liðsmenn til leiks. Nú vantar okkur aðeins
Nánar

06.05.2010Notum bjöllurnar

Þar sem umferð gangandi- og hjólandi vegfarenda hefur stór aukist á stígum og götum í sveitarfélögum landsins að tilefni Hjólað í vinnuna hvetjum við alla hjólreiðamenn til þess að nota bjölluna þar
Nánar

06.05.2010Fræðslufundir um samgönguhjólreiðar

ÍSÍ, Lýðheilsustöð og Hjólafærni standa fyrir fræðslufundum í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og á Selfossi um samgönguhjólreiðar að tilefni alþjóðadags hreyfingar. Þema alþjóðadags hreyfingar á Íslandi þann 10. maí er samgönguhjólreiðar. Á fræðslufundunum verður m.a. farið yfir ýmis hagnýt atriði sem auka ánægju og
Nánar

06.05.2010Samgöngusamningar

Áhugaverð grein birtist á visir.is í gær eftir Kristján Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, þar sem hann fjallar um vistvænar samgöngur og undirritun samgöngusamninga sem ráðuneytið hans gerði við nokkra starfsmenn þess í gær. "Í dag geta þeir starfsmenn samgönguráðuneytisins sem þess óska skrifað undir samgöngusamning við
Nánar

Mynd með frétt/grein

06.05.2010Spurning dagsins - 5.maí

Spurning dagsins í gær, miðvikudaginn 5.maí var " Hversu oft hefur þú tekið þátt í Hjólað í vinnuna". Af þeim 450 sem svöruðu eru 18 % sem hafa tekið þátt einu sinni, 17% tvisvar, 17% þrisvar, 7% fjórum sinnum, 5% fimm sinnum, 3% sex sinnum, 4% sjö sinnum og 30% aldrei. Útfrá þessu má áætla að 30% þátttakanda í Hjólað i vinnuna 2010 séu að taka þátt í fyrsta skiptið sem er mjög jákvæð þróun og ...
Nánar

05.05.2010Góð mætting á opnunarhátíð Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna var formlega ræst í morgun, miðvikudaginn 5. maí, kl: 8:30 á Glerártorgi á Akureyri og í veitingatjaldi Húsdýragarðsins í Reykjavík. Á Akureyri flutti Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri ávarp og hjólaði átakið af stað með þátttakendum fyrir norðan og í Reykjavík var fjölmenni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun. Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ bauð gesti velkomna en ávörp fluttu Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Kristján Möller, samgönguráðherra. Borgarstjóri og ráðherrar eru allir
Nánar

Mynd með frétt/grein

05.05.2010Hjólað í vinnuna fánar

Vinnustöðum stendur til boða að kaupa Hjólað í vinnuna fána sem gaman er að flagga og sýna þar með að vinnustaðurinn tekur þátt í Hjólað í vinnuna. Fáninn kostar 9.500 kr. Hægt er að nálgast pöntunarblað hér á síðunni undinr "Um hjólað í vinnuna" - "Fánar". Hægt verður að panta fána til og með 7. maí næst komandi með því að senda pöntunarblaðið á netföngin jona@isi.is eða kristin@isi.is. Á myndinni sést Rósa úr liðinu HjólaHéðinn flagga fána sem vinnustaðurinn Héðinn keypti.
Nánar

05.05.2010Spurning dagsins

Spurning dagsins er nýr liður hérna á heimasíðunni. Á hverjum virkum degi á meðan á Hjólað í vinnuna stendur verður sett inn ein spurning um t.d. þátttöku í Hjólað í vinnuna, tækniatriði er snerta hjólið sjálft ásamt ýmsu öðru sem áhugvert er að vita. Hver spurning er virk í einn sólahring og að honum loknum birtum við niðurstöður spurningarinnar hér á síðunni undir "Um hjólað í vinnuna" - "Spurning dagsins". Þar munum við einnig birta ýmsa fróðleiksmola er varða spurningu dagsins á undan. Er þessi liður skemmtileg viðbót við síðuna og vonum við að þið eigið eftir að vera dugleg að taka þátt.
Nánar

04.05.2010Hvatningarleikur Rásar 2

Á hverjum virkum degi vinnur eitt lið glæsilega vinninga frá Erninum. Dregið er úr liðum á Rás 2, í Popplandi kl. 11:45. Til þess að verða gjaldgengir þátttakendur í hvatningarleiknum verða þátttakendur að senda inn myndir eða reynslusögur. Þátttakendur geta sjálfir sett inn myndir í gegnum vefsíðuna með því að fara í myndir - senda inn mynd. Hægt er að senda inn reynslusögur á netföngin jona@isi.is eða kristin@isi.is. Myndbandaleikurinn er líka í fullu gangi og verður dregið úr innsendum myndböndum þriðjudaginn 25. maí. Vinningsmyndbandið hlýtur gjafabréf frá Reiðhjólaversluninni Erninum að upphæð 50.000 kr. Nánari upplýsingar um myndbandaleikinn er að finna undir "Um hjólað í vinnuna" - Myndbandaleikur".
Nánar

04.05.2010Dr. BÆK og hjólahjúkkan

Dr. BÆK mun verða við opnunarhátíð Hjólað í vinnuna á morgun, miðvikudaginn 5.maí ásamt hjólahjúkkunni og munu þau sýna hvernig á að gera hjólið klárt fyrir sumarið. Vinnustaðir geta pantað Dr. BÆK og hjólahjúkkuna og mæta þau þá með tæki og tól og leiðbeina um helstu vorverk hjólreiðamannsins. Starfsmenn mæta þá með sín eigin hjól og fá leiðsögn í að gera hlutina sjálfir og vottorð um heilsu hjólsins frá Dr. BÆK. 120 min. með Dr.BÆK kosta 20.000 kr. og ef hjólahjúkkan kemkur með er verðið 30.000 kr. Ýmislegt annað er í boði fyrir vinnustaði og einstaklinga eins og kennsla í hjólafærni, hvernig á að skipta um dekk, smyrja keðjuna og margt fleira er kemur að því að hugsa um hjólið. Nánari upplýsingar má finna undir "Gott að vita" - "Hjólreiðar sem samgöngumáti".
Nánar

03.05.2010Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna verður formlega ræst kl. 8:30 miðvikudaginn 5. maí í Reykjavík og á Akureyri. Í Reykjavík fer opnunin fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þátttakendum er boðið að hjóla við, þiggja ljúffengt bakkelsi og hlusta á stutt og hressileg hvatningarávörp frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, Álfheiði Ingadóttur, heilbrigðisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, Kristjáni Möller, samgönguráðherra og Ólafi Rafnssyni forseta ÍSÍ. DR. BÆK verður
Nánar

28.04.2010Göngu og hjólreiðastígakort af höfuðborgarsvæðinu

Nú styttist í að Hjólað í vinnuna hefjist og þurfa því margir að fara að huga að því að finna þægilegustu leiðina til og frá vinnu. Hér á síðunni, undir "Gott að vita" - "Hjólastígakort" má finna ýmis konar kort af höfuðborgarsvæðina eins og t.d. korterskortið, borgarvefsjá, og yfirlitskort af öllu höfuðborgarsvæðinu. Undir "Gott að vita" er einnig að finna upplýsingar um umferðaröryggi hjólreiðamanna og hvetjum við ykkur til þess að kynna ykkur þær upplýsingar vel áður en farið er af stað hjólandi útí umferðina.
Nánar

26.04.2010Hvatningarleikur hefst miðvikudaginn 28. apríl á Rás 2

Á hverjum virkum degi vinnur eitt lið glæsilega vinninga frá Reiðhjólaversluninni Erninum. Vinningsliðið verður tilkynnt í Popplandi á Rás 2 kl. 11:45. Við hvetjum vinnustaði og lið að skrá sig til leiks strax í dag til að eiga möguleika á vinningi.
Nánar

16.04.2010Norrænir fyrirtækjaleikar

Norrænir fyrirtækjaleikar fara fram í annað sinn í Odense í Danmörku helgina 4.-6.júní. Fyrstu leikarnir voru haldnir í Gautaborg árið 2008 og tóku 4 íslensk lið þátt í keilukeppninni. Norrænu fyrirtækjaleikarnir eru hluti af Danmarks firmaidrætsfestival 2010. Hægt er að skrá sig til leiks í knattspyrnu, handknattleik, keilu og glofi. Nánari upplýsingar má finna með því að smella hér eða inn á heimasíðu Dansk Firmaidrætsforbund .
Nánar

14.04.2010Leiðbeiningar um skráningu

Nýskrá þarf vinnustaði inn á vef Hjólað í vinnuna. Allar upplýsingar um vinnustaði, lið og liðsmenn hafa verið þurkaðar út frá árinu 2009. Kynntu þér vel leiðbeiningar um skráningu í Hjólað í vinnuna með því að smella á Skráning á lið hér fyrir ofan og síðan á Leiðbeiningar um skráningu. Þar er að finna eyðublöð sem hægt er að prenta út, forskráningarblað sem tilvalið er að hengja upp á
Nánar

14.04.2010Upplýsingar inn á vef

Ýmsar upplýsingar eru að finna hér inn á vefnum. Kynntu þér reglur Hjólað í vinnuna með því að smella á Um Hjólað í vinnuna hér fyrir ofan og síðan á Hvað má skrá og Keppnisgreinar eru tvær.
Nánar

14.04.2010Hjólað í vinnuna 2010

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2010, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land. Hjólað í vinnuna rúllar af stað miðvikudaginn 5.maí og stendur yfir í þrjár vikur eða til þriðjudagsins 25. maí. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir þeir sem
Nánar

01.12.2009Hjólað í vinnuna 2010

Hjólað í vinnuna verður ræst miðvikudaginn 5. maí og stendur til 25. maí árið 2010. Þetta verður í áttunda sinn sem átakið fer fram og hefur þátttakendum fjölgað um 1400% frá byrjun eða frá 533 árið 2003 til 8.041 árið 2009. Dagsetningar fyrir önnur átaks- og hvatningarverkefni ÍSÍ árið 2010 liggja nú fyrir og hefst Lífshlaupið miðvikudaginn 3. febrúar og stendur til 23. febrúar. Kvennahlaupið fer fram laugardaginn 19.júní. Landsmenn hafa tekið átaks- og hvatningarverkefnum ÍSÍ gríðarlega vel og hvetjum við alla til þess að merkja við þessar dagsetningar á dagatalið fyrir árið 2010. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu ÍSÍ eða www.isi.is
Nánar

03.09.2009Hjólað í vinnuna fer fram dagana 5.- 25. maí 2010

Aðrir viðburðir á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ eru árið 2010: Lífshlaupið mun fara fram í dagana 3.- 23. febrúar. Hægt verður að taka þátt í: o Vinnustaðakeppni o Hvatningarleik fyrir grunnskóla o Einstaklingskeppni sem er í fullum gangi allt árið Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið um allt land laugardaginn 19. júní.
Nánar

02.06.2009Höldum áfram að nýta eigin orku í allt sumar

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar þátttakendum fyrir drengilega og skemmtilega keppni og sérstaklega liðsstjórum fyrir þeirra framlag. Hjólað í vinnuna mun fara fram á svipuðum tíma á næsta ári og hvetjum við alla til að vera með og keppa að nýju marki.
Nánar

02.06.2009Góð mæting á lokaathöfn

Góð mæting var á lokaathöfn og verðlaunaafhendingu Hjólað í vinnuna sem fram fór í veitingatjaldi húsdýragarðsins kl. 12:00 föstudaginn 29. maí. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ ávarpaði gesti og veiti verðlaunin ásamt Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, forstjóra
Nánar

28.05.2009Bætt aðgengi hjólreiða-og gangandi vegfarenda

Þátttakendur í Hjólað í vinnuna 2009 voru frá 36 af 76 sveitarfélögum. Þar sem þátttakendur hafa lagt leið sína um götur og stíga sveitarfélaga hvetjum við þá til þess að senda athugasemdir á þá aðila sem sjá um samgöngumál í ykkar heimabyggð. Engin veit betur
Nánar

28.05.2009Lokaathöfn og verðlaunaafhending

Lokaathöfn og verðlaunaafhending fer fram í veitingatjaldi húsdýragarðsins kl. 12:00 föstudaginn 29. maí. Vinsamlegast skráið þátttöku á jona@isi.is fyrir kl:16:00 fimmtudaginn 28.maí. Öllum liðsstjórum Hjólað í vinnuna er velkomið að bjóða
Nánar

28.05.2009Öll fyrri met voru slegin

Árangur þátttakenda Hjólað í vinnuna er svo sannarlega glæsilegur. Öll fyrri met voru slegin. Til samanburðar eru tölurnar frá 2008 innan sviga. Alls áttu 468 (431) vinnustaðir, 1147 (1017) lið í keppninni. Þátttakendur voru 8041 (7065). Alls voru farnir hvorki meira né minna en 493.202 km eða 368.34 hringir í
Nánar

28.05.2009Staðfest úrslit Hjólað í vinnuna 2009

Staðfest úrslit liggja fyrir (núna, fimmtudaginn 28. maí klukkan 14:00) í keppnisgreinunum 2 , flestir kílómetrar og flestir dagar hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum.
Nánar

26.05.200910 liðsstjórar fá frítt í Bláalónsþrautina

Hjólreiðafélag Reykjavíkur gefur 10 liðsstjórum frítt í Bláalónskeppnina. 10 liðsstjórar voru dregnir út í morgun og gildir hver miði fyrir 3 eða eitt lið í fyrirtækjakeppni þrautarinnar. Bláalónsþrautin fer fram sunnudaginn 14. júní. Nánari upplýsingar um
Nánar

26.05.2009Bláalónsþrautin

Hjólareiðafélag Reykjavíkur stendur fyrir Bláalóns þrautinni á hverju ári. Þrautin fer fram sunnudaginn 14. júní. Þátttakendum hefur fjölgað mikið milli ára og hefur skapast hátíðarstemning í kringum undirbúninginn. Markmið hvers og eins er að vera með þar sem þessi viðburður er sérstaklega
Nánar

25.05.2009Lokaspretturinn

Nú fer að styttast í lok Hjólað í vinnuna. Vinsamlegast hafið eftirfarandi atriði í huga: Síðasti keppnisdagur er þriðjudagurinn 26. maí. Hægt verður að skrá inn upplýsingar til kl. 23:55 miðvikudaginn 27. maí, eftir það verður lokað fyrir skráningu. Staðfest úrslit verða birt á vefnum eftir kl:14:00 fimmtudaginn 28.maí. Verðlaunaafhending fer fram í
Nánar

25.05.2009Hollustusjoppur í fyrirtækjum

Ávaxtabíllinn bíður nú upp á nýja þjónustu við fyrirtæki með sérstökum hollustusjoppur. Með því að halda utan um hollustusjoppur geta stjórnendur boðið starfsmönnum sínum upp á ávexti og annan hollan bita Á heimasíðu Ávaxtabílsins www.avaxtabillinn.is er að finna frekari
Nánar

22.05.2009Liðsstjóraleikur

Tíu liðsstjórar voru dregnir út í morgun, föstudaginn 22. maí. ÍSÍ og reiðhjólaverslunin Örninn veita liðsstjórum verðlaun fyrir frábæra frammistöðu við að hvetja liðsmenn sína áfram í Hjólað i vinnuna. Nöfn þeirra sem voru dregnir út má sjá með því að
Nánar

20.05.2009Nýjustu tölur

Nú hafa skráð sig til leiks 7800 þátttakendur í 1123 liðum frá 465 fyrirtækjum. Enn er hægt að skrá fyrirtæki, lið og liðsmenn til leiks og verður hægt fram til síðasta dags eða þriðjudagsins 26. maí.
Nánar

20.05.2009Tölfræðin komin í lag

Tölfræðin er komin í lag vegna villu sem var í útreikningum á dögum. Staða einhverja fyrirtækja hefur breyst en við hvetjum liðsstjóra til þess að skrá árangur sinna liðsmanna jafn og þétt inn. Heildarfjöldi starfsmanna á vinnustað. Vinsamlegast sendið póst á
Nánar

20.05.2009Vinsæl kaffitjöld

Um 600 manns komu við í kaffitjöldum Hjólað í vinnuna í yndislegu veðri í morgun. Þátttakendum Hjólað í vinnuna var boðið að hjóla við og fá sér morgunhressingu frá Kaffitár og Ávaxtabílnum, á þremur stöðum í Reykjvík í morgun, við brúna yfir Kringlumýrarbraut, Nauthólsvíkur megin, við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar og við Geirsnef við Bíldshöfða. Góð stemning myndaðist
Nánar

19.05.2009Enn betra að hjóla í Reykjavík

Lokahönd er nú lögð á tvöföldun hjóla- og göngustígs frá Faxaskjóli í Nauthólsvík en aðskildir stígar fyrir hjólandi og gangandi frá Ægisíðu í Elliðaárdal er eitt af Grænu skrefunum í
Nánar

19.05.2009Kaffitjöldin á morgun

Nú viðrar betur fyrir kaffitjöldin sem verða sett upp á morgun, miðvikudaginn 20. maí, á þremur stöðum í Reykjavík frá kl: 7:30 - 9:30. Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér hollan bita frá Ávaxtabílnum og kaffi frá Kaffitár. Aðilar frá
Nánar

18.05.2009Hjólað í vinnuna í öðrum löndum

Hjólað í vinnuna fer fram í Danmörku og Noregi á sama tíma og hér á Íslandi. Um 110.072 þátttakendur eru skráðir í dönsku keppnina og um 10.000 í þá norsku. Fyrir áhugasama þá er slóðin á norsku heimasíðuna Sykle til
Nánar

18.05.2009Þátttakendum fjölgar í Hjólað í vinnuna

Þátttakendum fjölgar í Hjólað í vinnuna. Nú hafa skráð sig til leiks um 7613 þátttakendur í 1103 liðum frá 463 fyrirtækjum. Enn er hægt að skrá fyrirtæki, lið og liðsmenn til leiks og verður hægt fram til síðasta dags eða þriðjudagsins 26. maí.
Nánar

18.05.2009Hvatningarverðlaun til fyrirtækja í Reykjvík

Íþróttabandalag Reykjvíkur (ÍBR) hvetur alla vinnustaði í Reykjavík til að taka þátt í Hjólað í vinnuna. Í tilefni af verkefninu mun ÍBR veita þeim vinnustöðum í Reykjavík sem ná bestri hlutfallslegri þátttöku þ.e. sigra flokkinn flestir þátttökudagar skemmtileg og
Nánar

18.05.2009Fuglaskoðun um Grafarvoginn

Íslenski Fjallahjólaklúbburinn stendur fyrir fuglaskoðun um Grafarvoginn þriðjudagskvöldið 19.maí (annað kvöld). Stutt og forvitnileg ferð sem sniðin er að fjölskyldufólki. Lagt af stað frá Fjölskyldu og húsdýragarðinum kl 19:00. Hentar 10 ára og eldri. Spáin er einstaklega
Nánar

18.05.2009Villa í útreikningum

Því miður verðum við að tilkynna um villu í tengslum við útreikninga á dögum. Núna reiknar kerfið út ferðir en ekki daga eins og verið hefur undan farin ár. Þegar kerfið var hreinsað fyrir átak hefur þetta skolast eitthvað til. Verið er að leiðrétta þetta og vonumst við til þess að
Nánar

15.05.2009Nýjustu tölur

Nú hafa 462 fyrirtæki skráð 1090 lið til leiks með 7484 liðsmönnum. Enn er hægt að skrá sig til leiks og vera með. Þar sem útreikningar Hjólað í vinnuna miðast við heildarfjölda starfsmanna á vinnustað er dýrmæt fyrir fyrirtæki að fá
Nánar

15.05.2009Reykjavík í mótun

Reykjvík í mótun er 2. útgáfa af Staðardagskrá 21 fyrir Reykjavík. Bæklingurinn Reykjvík í mótun er stefnumótun Reykjavíkurborgar í átt að sjálbæru samfélagi til ársins 2015. Reykjarvíkurborg hefur á undanförnum árum unnið að margskonar umhverfisverkefnum undir formerkjunum Græn skref í Reykjvík sem er
Nánar

15.05.2009Skemmtileg vísa

Fengum þessa vísu senda frá Stellu Aðalsteinsdóttur, liðsstjóra Auðugust hjá Umhverfisstofnun. Að ganga til vinnu gjöfult tel gefur það góða punkta í keppni hjólandi liðsmenn hressa ég vel hreppum við verðlaun ? - (það tel ég heppni).
Nánar

14.05.2009Borgarfulltrúar hjóla til og frá vinnu

Borgarfulltrúarnir í Reykjavík taka fullan þátt í heilsu- og hvatningarátakinu Hjólað í vinnuna. Markmiðið er að vekja athygli á hjólreiðum sem hagkvæmum samgöngumáta sem jafnframt styrkir heilsu og bætir borgarbrag, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sem
Nánar

14.05.2009Hjólað í vinnuna á facebook

Fylgst er með Hjólað í vinnuna á facebook. Áhugasömum er bent á að fara inn á síðuna og hvetja vini og kunningja til þátttöku með því að senda þeim lén Hjólað í vinnuna www.hjoladivinnuna.is eða ef þið eruð skráð á facebook er tilvalið að
Nánar

14.05.2009Vísa

Þessi vísa kemur frá Tryggva Má, liðsstjóra í Megingjörðum, Hagaskóla. "Sem gömlum norðanmanni finnst mér oft ganga hægt að hjóla á móti þessu eilífðarfreti hérna fyrir sunnan en... " að hjól'á móti er mikið puð magnast fetlatakið svo er reyndar rokna stuð rok að fá'í bakið
Nánar

14.05.2009Vísa frá suðurhorninu

Sigríður Valgerður Finnsdóttir frá Actavis svaraði fyrir suðurhornið með þessari skemmtilegu vísu. Í rokinu við rembumst hér og rennblaut dugnað sýnum í sól og blíðu einfalt er að aka hjólum fínum
Nánar

13.05.2009Vísa

Dofri Hermannsson var fljótur að svara. Hér kemur vísan hans: Hve norðanmenn þeir monta sig er mest af gleymsku og blindu. Lognið það var þrettán stig er þakið fauk af Lindu. Við skorum á þátttakendur fyrir austan og vestan að
Nánar

13.05.2009Vísuáskorun

Fengum þessa vísu senda úr blíðunni fyrir norðan frá starfsmanni ÍSÍ á Akureyri, Viðari Sigurjónssyni. Vatnsveður og fjaðrafok fer að taka völdin. Höfuðborgarrassgatsrok reif í kaffitjöldin. Skorum við á þátttakendur Hjólað í vinnuna út um
Nánar

13.05.2009Reynslusögur

Þátttakendur hafa verið duglegir við að senda okkur reynslusögur og þá aðallega af fjúkandi hjólreiðarmönnum. Með því að smella á reynslusögur hér fyrir ofan má sjá sögur frá Hjólað í vinnuna 2009 og frá
Nánar

13.05.2009Þátttökumet í Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna rúllar vel af stað. Þátttakan hefur aldrei verið meiri. 7160 þátttakendur eru skráðir til leiks í 1080 liðum frá 454 fyrirtækjum. Árið 2008 voru 7065 þátttakendur skráðir í 1017 liðum frá 431 fyrirtæki. Enn er hægt
Nánar

13.05.2009Frestað vegna veðurs

Því miður verðum við að fresta kaffitjöldunum vegna veðurs. Það fauk allt um koll í morgun þegar verið var að setja upp tjöldin. Við vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir næsta miðvikudag, 20. maí. Baráttu kveðjur
Nánar

12.05.2009Kaffitjöld Hjólað í vinnuna

Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér morgunkaffi á þremur stöðum í Reykjavík miðvikudagana 13. og 20. maí frá kl: 7:30 - 9:30. Ávaxtabíllinn bíður upp á léttar veitingar og Kaffitár bíður upp á drykkjarföng. Aðilar frá hjólreiðasamtökum verða á staðnum og reiðhjólaverslunin Örninn býður upp á
Nánar

11.05.2009Auglýsum eftir myndböndum

Til þess að taka þátt í hvatningarleik ÍSÍ og Rásar 2 er nauðsynlegt að senda inn myndir, reynslusögur eða myndbönd. Nú þegar eru nokkrar skemmtilegar reynslusögur og myndir komnar inn en við söknum
Nánar

11.05.2009Þriðjudagshjólaferðir ÍFHK

Vikulegar þriðjudagshjólaferðir Íslenska fjallahjólaklúbbsins eru ein af vinsælustu sumarperlum klúbbsins og hefur hópurinn sem kemur með út að hjóla stækkað og dafnað vel á síðustu árum. Í fjölmennustu ferðunum í fyrrasumar voru á bilinu 60 - 70 manns að
Nánar

08.05.2009Skráning gengur vel

Starfsmenn vinnustaða hafa svo sannarlega tekið vel við sér þar sem skráning í Hjólað í vinnuna gengur mjög vel. Þökkum við kærlega öllum þeim frábæru liðsstjórum fyrir þeirra þátt við að hvetja samstarfsfólk sitt til dáða. Nú þegar hefur eitt met verið slegið en það er fjöldi fyrirtækja í Hjólað í vinnuna. Nú hafa 445 fyrirtæki skráð
Nánar

07.05.2009Hjólað í vinnuna fáni

Í tilefni þess að Hjólað í vinnuna fékk nýtt útlit og merki var framleiddur fáni sem við bjóðum ykkar fyrirtæki að fjárfesta í til staðfestingar á
Nánar

07.05.2009Kaffitjöld Hjólað í vinnuna

Þátttakendum Hjólað í vinnuna er boðið að hjóla við og fá sér morgunkaffi á þremur stöðum í Reykjavík miðvikudagana 13. og 20. maí frá kl: 7:30 - 9:30. Ávaxtabíllinn bíður upp á léttar veitingar og Kaffitár bíður upp á drykkjarföng. Aðilar frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum og
Nánar

05.05.2009Skráningarblöð

Hægt er að prenta út skráningarblöð til að skrá inn árangur liðsmanna með því að fara inn í Um hjólað í vinnuna - Leiðbeiningar um skráningu.
Nánar

05.05.2009Hvatningarleikur á Rás 2

Á hverjum virkum degi vinnur eitt lið glæsilega vinninga frá Erninum. Dregið er úr liðum á Rás 2, í Popplandi á milli 11 - 12. Til þess að verða gjaldgengir þátttakendur í hvatningarleiknum verða
Nánar

05.05.2009Hvatningarleikur


Nánar

05.05.2009Opnun Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna verður formlega ræst á morgun, miðvikudaginn 6. maí, kl: 8:30 á Glerártorgi á Akureyri og í veitingatjaldi Húsdýragarðsins í Reykjavík. Er þetta í fyrsta skipti sem átakið verður ræst á Akureyri og hvetjum við alla þátttakendur fyrir norðan til að fjölmenna á
Nánar

22.04.2009Hjólað í vinnuna á facebook

Áhugafólk um Hjólað í vinnuna hefur stofnað síðu á facebook. Hér fyrir neðan er slóðin inn á síðuna. Það er gott fyrir heilsuna, umhverfið og fjárhaginn að hjóla í vinnuna. Hvetjum vini og kunningja til þátttöku með því að
Nánar

21.04.2009Keppnisdagskrá HFR

Hjólreiðafélag Reykjavíkur er íþróttafélag innan Íþróttabandalags Reykjavíkur. Markmið HFR er að efla hjólreiðar sem íþrótt á Íslandi. Félagið stendur fyrir keppnum bæði á
Nánar

16.04.2009Stærsti ratleikur vorsins

Öll strandlengja Höfuðborgarsvæðisins með í Ferðafagnaði. Umhverfisvænn ferðamáti er framtíðareinkenni Höfuðborgarinnar og því býður Íslenski fjallahjólaklúbburinn öllum í ratleik á Ferðafagnaði sem best er að leysa á reiðhjóli. Ferðafagnaður fer fram laugardaginn 18. apríl nk. Frá kl. 12 – 18 verða 34 póstar staðsettir við strandlengjuna frá Korpúlfsstaðagolfvelli í norðri að
Nánar

16.04.2009Velkomin í Hjólað í vinnuna 2009

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2009, heilbrigðri fyrirtækjakeppni um allt land. Hjólað í vinnuna rúllar af stað miðvikudaginn 6. og stendur yfir í þrjár vikur eða til þriðjudagsins 26. maí. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir þeir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá
Nánar

15.04.2009Opnunarhátíð í Reykjavík og á Akureyri

Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna fer fram á tveimur stöðum á landinu, í Reykjavík og á Akureyri. Er þetta í fyrsta skipti sem opnun Hjólað í vinnuna verður á landsbyggðinni. Hvetjum við alla þátttakendur til að mæta og taka þátt þegar hjólin fara að snúast í sjöunda sinn í fyrirtækjakeppni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands Hjólað í vinnuna. Nánari dagskrá auglýst síðar.
Nánar

15.04.2009Skráningarleikur

Með því að skrá fyrirtækið þitt til þátttöku inn á vef Hjólað í vinnuna fer fyrirtækið þitt og lið sjálfkrafa í pott sem dregið verður úr á Rás 2 í þættinum Popplandi. Skráningarleikurinn hefst miðvikudaginn 29. apríl.
Nánar

15.04.2009Skráning fyrirtækja

Nýskrá þarf fyrirtæki inn á vef Hjólað í vinnuna. Allar upplýsingar um fyrirtæki, lið og liðsmenn hafa verið þurkaðar út. Kynntu þér vel reglur um skráningu í Hjólað í vinnuna með því að smella á "Um Hjólað í vinnuna" hér fyrir ofan og síðan á "Leiðbeiningar um skráningu". Þegar nýtt fyrirtæki er skráð inn á
Nánar

25.03.2009Hjólað í vinnuna 2009

Hjólað í vinnuna fer fram dagana 6. - 26. maí. Stefnt er að því að opna vefinn fyrir skráningu fimmtudaginn 16. apríl. Nú er tilvalið fyrir liðsstjóra að hvetja samstarfsaðila sína til þess að dusta rykið af hjólunum og fara að undirbúa sig undir skemmtilega vinnustaðakeppni í maí.
Nánar

19.12.2008Gleðilega hátíð

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar öllum hjólreiðaköppum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum fyrir samstarfið á liðnu ári og minnum á að Hjólað í vinnuna 2009 verður ræst 6. maí.
Nánar

03.12.2008Hjólað í vinnuna 2009

Hjólað í vinnuna fer fram dagana 6.- 26. maí 2009 Aðrir viðburðir á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ eru árið 2009: Lífshlaupið mun fara fram í annað sinn dagana 4.- 24. febrúar. Hægt verður að taka þátt í: ,vinnustaðakeppni hvatningarleik fyrir grunnskóla ,einstaklingskeppni sem er í fullum gangi allt árið Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður 20 ára árið 2009 og verður haldið um allt land laugardaginn 20. júní.
Nánar

24.06.2008Heiðmerkuráskorun

Hjólreiðafélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Reykjavíkur halda hin árlegu Heiðmerkuráskorun fimmtudaginn 26. júní kl 20:00. Nýung í ár er B-flokkur Karla. Boðið verður upp á 3.vegalengdir. 3.6 km fyrir
Nánar

28.05.2008Sparnaður þátttakenda

Hér koma skemmtilegar tölur um sparnað þátttakenda Hjólað í vinnuna miðað við árangur þeirra eða 410.398 km frá Orkusetrinu. Um 45 þúsund lítrar af eldsneyti spöruðust sé miðað við meðalbifreið sem eyðir í kringum 11 l/100 km í innanbæjarakstri. Átakið hefur því hugsanlega dregið úr innfluttningi á jarðefnaeldsneyti sem nemur um
Nánar

28.05.2008Verðlaunaafhending í morgun

Sigurvegarar í fyrirtækjaleiknum Hjólað í vinnuna fengu afhent sigurlaun sín í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum í dag. Öll fyrri met voru slegin. Alls áttu 431 vinnustaðir, 1017 lið í keppninni. Þátttakendur voru 7065 og er tæp 500 fleiri en voru í fyrra. Alls voru farnir hvorki meira né minna en 410.398 km eða
Nánar

27.05.2008Staðfest úrslit 2008

Staða efstu liða er að finna hér á vefnum. Þetta eru staðfest úrslit úr Hjólað í vinnuna 2008. Við minnum á verðlaunaafhendinguna sem verður í veitingatjaldi Húsdýragarðsins kl:12:00 - 13:00 á morgun, miðvikudaginn 28. maí. Verðlaunaskildir verða veittir fyrir 3. efstu sætin í báðum
Nánar

26.05.2008Viðgerð stendur yfir

Því miður er ekki hægt að skrá inn árangur liðsmanna þessa stundina, en unnið er að viðgerð. Hægt verður að skrá inn fram til kl: 23:55 í kvöld.
Nánar

23.05.2008Síðasti skráningardagur

Hægt verður að skrá árangur liðsmanna inn til kl. 23:55 mánudaginn 26. maí. Úrslit verða síðan birt eftir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. maí og verðlaunaafhending og lokahátíð verður miðvikudaginn 28. maí.
Nánar

23.05.2008EUROVISION PARTÝ á Nesjavöllum

Hin árlega Nesjavallaferð verður farin á morgun. Lagt verður af stað frá Árbæjarsafni kl 13:00. Hjólað verður til Nesjavalla þar sem verður grillað. Síðan verður horft á Eurovisionið í 50 tommu plasma skjá sem komið verður fyrir úti við heitu pottana ásamt
Nánar

23.05.2008Frímiðar í Bláalónsþrautina

Eftirtaldir liðsstjórar voru dregnir út og hljóta þeir frímiða í Bláalónsþrautina. Frímiðana er hægt að sækja á ÍSÍ og framvísa þeim við skráningu í Bláalónsþrautina. Kristín Harðardóttir, Hraunvallaskóli, lið Grunnskóli Hobbitarnir Ellert Örn
Nánar

23.05.2008Reynslusögur og myndir

Þátttakendur hafa svo sannarlega tekið vel við sér og hefur fjöldi mynda aldrei verið jafn mikill. Okkur hefur einnig borist margar reynslusögur sem er hægt að lesa með því að smella á Reynslusögur hér að ofan. Þessa skemmtilegu frásögn fengum við frá Auði Eiríksdóttur sem hjólar úr
Nánar

22.05.2008Verðlaunaafhending og lokahátíð

Verðlaunaafhending og lokahátíð Hjólað í vinnuna verður haldin miðvikudaginn 28. maí í veitingatjaldi Húsdýragarðsins. Boðið verður upp á léttar veitingar. Öllum liðsstjórum er boðið að koma með 2-3 þátttakendur með sér. Dagskrá
Nánar

22.05.2008Nesjavallaferð

Nú líður að hinni árlegu ferð Fjallahjólaklúbbsins á Nesjavelli. Þetta er fyrsta ferð sumarsins og er oft fyrsta hjólaferðalag þeirra sem taka þátt, því hún hentar sérstaklega vel nýliðum jafnt sem lengra komnum. Frábært tækifæri til að stíga skrefið í góðum hópi og öðlast
Nánar

21.05.2008Hádegisverðarfundur

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Landssamtök Hjólreiðamanna bjóða til hádegisverðarfundar um hjólafærni og hjólamenningu í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fimmtudaginn 22. maí kl: 12:00 - 13:00. Veronica Pollard fyrirlesari og kennari mun
Nánar

20.05.2008Fuglaskoðun í Grafarvogi

Íslenski Fjallahólaklúbburinn stendur fyrir ýmsum uppákomum í sumar og er ein þeirra í kvöld, þriðjudagskvöldið 20. maí. Ber hún yfirskriftina, Fuglaskoðun í Grafarvogi, og verður farið frá Mjódd kl 20:00. Ólafur Einarsson fuglafræðingur verður með í för. Hjólaður verður Grafarvogshringur. Frá Mjódd, niður
Nánar

19.05.200819 þúsund lítrar hafa sparast

Þátttakendur Hjólað í vinnuna hafa hjólað tæp 170 þúsund kílómetra það sem af er. Samkvæmt reiknivél Orkusetursins, miðað við meðalbíl sem eyðir 11 lítrum af eldsneyti á hverja 100 km, má áætla að hámarksparnaður geti numið rúmlega 19 þúsund lítrum af eldsneyti og 34 tonnum af útblæstri koltvíssýrings. Þá megi áætla að 5,5 milljónir kaloría
Nánar

16.05.2008Liðsstjóra - glaðningur

Hjólað í vinnuna og Örninn ætla að veita liðsstjórum verðlaun fyrir frábæra frammistöðu við að hvetja liðsmenn sína áfram í Hjólað i vinnuna. Tíu liðsstjórar verða dregnir út, fimm í dag, föstudaginn 16. maí og fimm næsta föstudag eða 23. maí. Þeir heppnu í dag eru:
Nánar

15.05.2008Blogg hjá VSÓ Ráðgjöf

Þátttakendur hjá VSÓ blogga í tilefni af þátttöku VSÓ Ráðgjafar í Hjólað í vinnuna. VSÓ setti upp bloggsíðu þar sem öllum þátttakendum innan fyrirtækisins gefst kostur á að blogga um lífsreynslu sína af því að hjóla eða
Nánar

15.05.2008Reynslusaga

Þátttakendur og liðsstjórar eru duglegir að senda okkur myndir og reynslusögur. Hægt er að skoða myndirnar hér fyrir ofan einnig eru eldri myndir undir liðnum Myndir. Við fengum þessa skemmtilegu reynslusögu frá Önnu Þóru, liðsstjóra Armstrong Uno, sem verður vonandi
Nánar

15.05.2008Lýðheilsa og borgarskipulag

Lýðheilsufélagið boðar til málþings um lýðheilsu og borgarskipulag mánudaginn 19. maí kl: 8:30 – 10:00 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Dagskráin er sem hér segir:
Nánar

13.05.2008Samgöngustefna Mannvits

Fjölmörg fyrirtæki hafa markað sér stefnu í samgöngumálum. Starfsmenn Mannvits Verkfræðistofu hafa alltaf verið mjög öflugir í Hjólað í vinnuna. Samgöngustefna Mannvits samræmist megin markmiðum Hjólað í vinnuna en þar segir að markmið samgöngustefnu er að uppfylla ferðaþörf starfsmanna Mannvits á hagkvæman og vistvænan hátt. Mannvit vill leggja
Nánar

13.05.2008Tröllaskagateymið

Gílsi Rúnar Magnússon, liðsstjóri Tröllaskagateymisins hjá Skýrr, sendi inn þessa skemmtilega útskýringu á nafni liðsins. Þar sem Akureyrarútibúið og Sauðárkróksútibúið hjá Skýrr hafa sameinast í eitt
Nánar

13.05.2008Áskorun

Dofri Hermannsson, varaborgafulltrúi Samfylkingar, skoraði á borgarstjórnarmeirihlutann að keppa um það hvort liðið hjólar fleiri daga og fleiri kílómetra í vinnuna á meðan á átakinu Hjólað í vinnuna stendur. Lesa má nánar um áskorun
Nánar

10.05.2008Vinningshafar í hvatningarleik

Hvatningarleikurinn okkar er í fullum gangi á Rás 2. Dregið verður úr liðum sem senda inn myndir eða reynslusögur í gegnum heimasíðu Hjólað í vinnuna á hverjum virkum degi í þættinum Brot úr degi á Rás 2 kl: 10:30. Eftirfarandi lið voru dregin út í síðustu viku. Þessi
Nánar

07.05.2008Hjólin rúlluðu af stað í morgun

Fjölmenni var í morgun við opnun Hjólað í vinnuna. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, Kristján Möller, samgönguráðherra, Ólafur F. Magnússon, borgarstjórinn í Reykjavik, Rannveig Rist, forstjóri
Nánar

06.05.2008Opnun Hjólað í vinnuna 2008

Miðvikudaginn 7.maí kl: 8:30 verður verkefnið formlega opnað í veitingatjaldi Fjölskyldu- og Húsdýragarðsins. Forseti ÍSÍ, Ólafur Rafnsson, Heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfisráðherra, Þórunn
Nánar

02.05.2008Vinningshafar

Nú hafa tvö lið verið dregin út í skráningarleiknum okkar á Rás 2. Liðið Rjúkandi Pedalar var dregið út miðvikudaginn 30. apríl en KPMG á Eigilstöðum var dregið út í dag, föstudaginn 2. maí. Þessi lið hljóta glæsilegan vinning frá Erninum og
Nánar

29.04.2008Skráningarleikur á Rás 2

Skráningarleikurinn byrjar á morgun, miðvikudaginn 30. apríl. Dregið verður úr þeim liðum sem hafa nú þegar skráð sig til leiks í þættinum "Brot úr degi" á Rás 2 kl: 10:30. Heppin lið geta unnið viðgerðarsett, vatnsbrúsa og statíf frá Erninum.
Nánar

25.04.2008Reglur Hjólað í vinnuna 2008

Það er einlæg von þeirra sem standa að Hjólað í vinnuna að verkefnið ýti við sem flestum af stað í reglulega hreyfingu og hvetji fólk til að taka upp heilsusamlegri og umverfisvænni ferðamáta. Til þess að
Nánar

25.04.2008Samstarfsaðilar ÍSÍ

Í dag skrifuðu forseti ÍSÍ, Ólafur Rafnsson og forstjóri Alcan á Íslandi hf, Rannveig Rist, undir samstarfssamning vegna Hjólað í vinnuna Alcan á Íslandi hf er aðalstyktaraðili Hjólað í vinnuna 2008. Undirskriftin fór fram í Faðmi,
Nánar

25.04.2008Opnað fyrir skráningu

Opnað hefur verið fyrir skráningu á vef Hjólað í vinnuna 2008. Hjólað í vinna hefst miðvikudaginn 7. maí og stendur til föstudagsins 23. maí. Nokkrar lagfæringar hafa verið gerðar á vefnum. Nú þarf ekki að nýskrá fyrirtækið eða liðið inn ef það
Nánar

14.01.2008Hjólað í vinnuna 2008

Hjólað í vinnuna byrjar miðvikudaginn 7. maí 2008 og stendur til föstudagsins 23. maí. Hvetjum við alla til þess að merkja við þessar dagsetningar á dagatalið hjá sér :)
Nánar

24.05.2007Lokahátíð og verðlaunaafhending

Lokahátíð Hjólað í vinnuna er föstudaginn 25.maí kl:12:00 í veitingatjaldi Húsdýragarðsins. Forseti ÍSÍ, Ólafur Rafnsson ásamt Rannveigu Rist, forstjóra Alcan og Böðvari Þórissyni, framkvæmdastjóra einstaklingssviðs Sjóvá, munu afhenda sigurliðum í þremur efstu sætunum í öllum 6 flokkum fyrirtækja í báðum keppnisgreinum, flestir km og dagar, sín verðlaun. Boðið verður upp á léttar veitingar. Heildarúrslit er að finna hér á vefnum.
Nánar

24.05.2007Málefni hjólreiðamanna

Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir myndasýningu og umræðu um aðstöðu hjólreiðafólks hér heima og erlendis. Magnús Bergsson sýnir í máli og myndum muninn á milli stígakerfis borgarinnar og hjólreiðastígum erlendis sem eru til fyrirmyndar. Hvað þarf til að bæta stígakerið og hver
Nánar

22.05.2007Heilsuátak á Tálknafirði

Áhugavert átak sem GT (Grunnskólanum á Tálknafirði) stóðu fyrir samhliða og starfsmenn grunnskólans tóku þátt í Hjólað í vinnuna og lagt í það mikinn metnað að ganga eða hjóla í vinnuna sína. Til að auka enn frekar slagkraft átaksins gekkst græna nefndin í skólanum fyrir hreyfingarátaki meðal nemenda
Nánar

22.05.2007Hjólreiðar lengja lífið

Margir telja að hjólreiðar til samgangna séu ansi hættulegar. Það eru margar rannsóknir sem benda til þess að svo er ekki. Að vísu eru fleiri slys á hjólreiðamönnum í heildina lítið miðað við fjölda kílómetra en á bíl, en hér er ekki verið að bera saman sömu forsendur. A. Meiðslin í hjólreiðum eru langflest
Nánar

22.05.2007Blog um hjólreiðar

Margir hafa bloggað um hjólreiðar og langar okkur til að benda á tvær greinar eftir Kára Harðarson sem eru sérlega fróðlegar og
Nánar

22.05.2007Póstlisti um hjólreiðar

Til er opinn póstlisti fyrir alla sem hafa áhuga á að ræða hjólreiðar og sérstaklega hjólreiðar til samgangna og reyndar heilsusamlegar samgöngur almennt. Skráning fer fram
Nánar

22.05.2007Bláa Lóns þrautin á fjallahjóli 2007

Bláa Lóns þrautin á fjallahjóli verður haldin sunnudaginn 10. júní 2007. Þrautin er skipulögð af Hjólareiðafélagi Reykjavíkur (HFR). Boðið verður upp á tvær vegalengdir 60 og 40 km. Bláa Lóns þrautin, er skipulögð í samvinnu við, Bláa Lónið og Hafnarfjarðarbæ. Þrautin er nú haldin í 11. sinn og er fjölmennasta hjólakeppnin fyrir fullorðna sem haldin er
Nánar

21.05.2007Þríþraut

Þríþrautarfélag Reykjavíkur stendur fyrir keppni sunnudaginn 3. júní. Þríþrautin verður í Grindavík. Keppt verður í 800m sundi, 20km hjólreiðum og 6km hlaupi, bæði í einstaklings og sveitakeppni.Nánari upplýsingar er
Nánar

16.05.2007Tvær vikur að baki og ein eftir

Við hér á ÍSÍ erum ákaflega stolt af þeim 6467 þátttakendum sem nú þegar hafa skráð sig til leiks í 892 liðum frá 390 fyrirtækjum. Þið hafið lagt að baki 289.207 km eða 216 hringi í kringum landið eða 7.2 hringi í kringum jörðin. Frábær árangur sem hefur náðst eftir tveggja vikna átak. Þá er bara ein vika eftir og um að gera fyrir þá sem enn eiga eftir að skrá sig að bætast í hópinn. Af þeim 65 myndum og reynslusögum sem við höfum
Nánar

11.05.2007Hjólað í vinnuna rúllar vel af stað

Fyrsta vika Hjólað í vinnuna rúllar vel af stað. Nú þegar hefur nýtt þátttökumet verið slegið því þegar þetta er skrifað hafa 6240 þátttakendur skráð sig til leiks í 848 liðum í 366 fyrirtækjum og er enn að bætast við. Árið 2006 voru þátttakendur um 5300. Nú þegar hafa þátttakendur hjólað 203.119 km eða 151.7 hringi í kringum Ísland eða 5 hringi í kringum jörðina. Opið er fyrir skráningu á meðan Hjólað í vinnuna stendur yfir og enn er
Nánar

11.05.2007LHM fær styrk úr Pokasjóði

LHM eða Landssamband Hjólreiðamanna fékk styrk úr pokasjóði til þess að fá hingað sérfræðing í samgönguhjólreiðum. Verið er að vinna í því að fá erlendan sérfræðing til að halda námskeið og halda fyrirlestur.
Nánar

10.05.2007Reiknivél Orkusetursins

Okkur barst glaðningur og mjög skemmtilegt innlegg inn í Hjólað í vinnuna frá Sigurði Inga Friðleifssyni, framkvæmdastjóra Orkusetursins. Reiknivélin hans reiknar út hve mikið sparast hjóli maður í vinnuna. Með því að fylla inn réttar upplýsingar fást tölur um orkusparnað, peningasparnað og hitaeiningabruna. Nánari upplýsingar verða á vefnum okkar undir
Nánar

09.05.2007Námskeið, kosningar og helgarferð

Námskeið 10. maí Næstkomandi fimmtudagskvöld verður haldið námskeið í undirbúningi ferðalaga á reiðhjóli. Verður það haldið í klúbbhúsinu að Brekkustíg 2, kl. 20:00. Námskeiðið er tilvalið fyrir alla þá sem hafa hug á að fara stuttar sem langar ferðir á reiðhjóli á komandi sumri.www.this.is/hjol Kosningar 12. maí Nú eru kosningar í nánd. Það er mikilvægt að komandi kynslóðir hafi möguleika á því að ferðast eftir hjólreiðabrautum, þá ekki síst í
Nánar

08.05.2007Vinningshafar í hvatningarleiknum á Rás 2

Fjölmargir hafa sent okkur myndir og reynslusögur þessa fyrstu daga sem dregið hefur verið úr í Hvatningarleiknum okkar í þættinum "Brot úr degi" á Rás 2. Vinningshafarnir eru: 2. maí, Landarnir frá Landlæknisembætinu. 3.maí, Hnakkarnir frá Fjölbraut Ármúla. 4.maí, Gæðagengið frá Vífilfelli. 7.maí, Sparidindlarnir, frá Sparisjóði Svarfdælinga 8.maí, Hor de Nose frá Actavis. Hvetjum alla til að senda inn myndir og
Nánar

04.05.2007Vinningshafar í hvatningarleik á Rás 2

Á hverjum virkum degi í þættinum "Brot úr degi" er dregið úr þeim liðum sem hafa sent okkur myndir, sögur eða ljóð. Magnús Einarsson þáttarstjórnandi spjallaði við liðsstjóra Hnakkana, Kristjönu Þórdísi frá Fjölbraut
Nánar

04.05.2007Námskeið á vegum Hjólreiðanefndar ÍSÍ

Hjólrreiðanefnd ÍSÍ stendur fyrir námskeiði um hjólreiðar helgina 4. - 6. maí . Danski hjólreiðamaðurinn Jack Arvid Olsen verður með þrjú námskeið og fyrirlestur um æfingar og keppnir. Jack mun í umfjöllun sinni leggja út frá svo kallaðri Pafei-æfingatækni
Nánar

03.05.2007Fyrirtæki skora á hvert annað

Síminn hefur skorað á Vodafone í Hjólað í vinnuna. Verður skemmtilegt að fylgjast með þeirri viðureign. Lið menntamálaráðuneytisins stendur fyrir nafnakeppni á liðum. Ýmislegt skemmtilegt er
Nánar

03.05.2007Vel heppnum opnunarhátíð

Um 60 manns voru viðsstödd opnunarhátíð ,,Hjólað í vinnuna" í gær í veitingatjaldi Húsdýragarðsins. Forseti ÍSÍ, Ólafur Rafnsson, heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, borgarfulltrúinn, Gísli Marteinn
Nánar

03.05.2007Staðan í dag

Við hér hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands erum mjög ánægð með viðtökurnar sem Hjólað í vinnuna fær hjá starfsmönnum vinnustaða. Þegar þetta er skrifað hafa 330 fyrirtæki skráð 671 lið til leiks. Enn er hægt að skrá lið til keppninar og
Nánar

01.05.2007Hvatningarleikur á Rás 2

Hvetjum þátttakendur til að senda okkur myndir, sögur eða vísur. Fengum þessa skemmtilega vísu senda frá Unni Sólrúnu Bragadóttur. Á farartækjum ýmis konar ferðumst við öll flugvél nota margir sem ber þá yfir fjöll bílar eru algengastir í óhófi þá nýtum en allt of lítið göngum
Nánar

30.04.2007Opnunarhátíð Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna verður formlega opnað í veitingatjaldi Húsdýragarðsins n.k. miðvikudag 2. maí kl. 8:30. Þátttakendum, sem eiga þess kost, er hér með boðið að hjóla við, þiggja ljúffengt
Nánar

27.04.2007Opið hús á hverjum fimmtudegi

Á hverju fimmtudagskvöldi er opið hús í klúbbhúsi Íslenska Fjallahjólaklúbbbsins. Áhugasamir geta fengið nánari upplýsingar og kynnt sér aðra starfsemi félagsins á
Nánar

27.04.2007Vinningslið dagsins í dag

Á hverjum virkum degi í þættinum "Brot úr degi" er dregið úr þeim liðum sem þegar hafa skráð sig. Magnús Einarsson þáttarstjórnandi spjallað við liðsstjórann Önnu Kristínu á leikskólanum Klettaborg.
Nánar

12.04.2007Hvatningarleikur hefst 2. maí - 22. maí á Rás 2.

Á hverjum virkum degi er dregið úr þeim liðum sem senda inn myndir eða reynslusögur. Nauðsynlegt er að senda inn myndir eða
Nánar

12.04.2007Skráningarleikur hefst 25. apríl á Rás 2.

Á hverjum virkum degi í þættinum "Brot úr degi" er dregið úr þeim liðum sem þegar hafa skráð sig. Spjalla er við liðstjóra vinningsliða og þeim veitt vegleg verðlaun frá Erninum.
Nánar

12.04.2007Opnum fyrir skráningu mánudaginn 16. apríl

Mánudaginn 16. apríl verður opnað fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2007. Að sjálfsögðu stefnum við að því að setja ný met í ár eins og undanfarin ár. Endilega breyðið út fagnaðarerindið
Nánar

12.04.2007Hjólastígakort er að finna hér á vefnum

Undir hnappnum "Gott að vita" getur þú fundið hjólastígakort af Stór-Reykjavíkursvæðinu og fundið út hvaða leiðir henta best til að fara í og úr vinnu. Umhverfissvið Reykjavíkur hefur gefið út hjólastígakort og korterskort. Hjólastígakortið má nota til að finna út hvaða leiðir
Nánar

12.04.2007Leikreglur

Allar reglur má finna undir hnappnum "Um hjólað í vinnuna" og "Skráning í lið". Hvetjum við ykkur til að kynna ykkur allar reglur vel áður en þið skráið lið inn í keppnina. Helstu leikreglur eru þær að:
Nánar

12.04.2007Gagnlegar upplýsingar

Ýmsar gagnlegar upplýsingar eru að finna inn á vefnum undir hnöppunum sem eru á forsíðunni t.d. mikilvægar dagsetningar, upplýsingar um samstarfsaðila, úrslit fyrri ára og hjólastígakort.
Nánar

12.04.2007Nýr vefur kominn í loftið

Nýr vefur fór í loftið fimmtudaginn 12. apríl. Nýi vefurinn er mun hraðvirkari en sá gamli og vonum við að hann komi til með að standast allt álag og
Nánar

03.04.2007Hjólað í vinnuna 2. - 22. maí 2007

Hjólað í vinnuna hefst miðvikudaginn 2. maí og stendur yfir í 3 vikur eða til þriðjudagsins 22. maí.
Nánar



Aðilar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli