Efst á síðu
Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gott að vita

  • Youtube
  • Facebook
  • Twitter
Hér fyrir neðan er að finna ýmsar upplýsingar er tengjast hjólreiðum, umferðaröryggi og um áhugavert starf hjólreiðafélaganna.
  • Hjólamót
    BLÁALÓNSÞRAUTIN 60Km. 8 júnÍ 2013
    Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur 15. Bláalónsþrautina laugardaginn 8.júní 2013. Mótið er haldið í samvinnu við Bláa lónið. Bláalónsþrautin er fyrir alla 16 ára og eldri. Nálgast má allar upplýsingar um keppnina á heimasíðu Hjólreiðafélags Reykjavíkur hfr.is

    Flokkar
    60 km karlar og konur: 16-18 ára, 19-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, og 60 ára og eldri
    Liðakeppni
    3-5 keppendur eru í hverju liði, 3 bestu tímar gilda. Að a.m.k. 3 þurfa að klára keppni til að liðið fái tíma skráða.
    Öll lið eru leyfileg, allur aldur og bæði kyn, fjölskyldur, fyrirtæki o.s.frv.
    Hver keppandi getur einungis verið í einu liði í liðakeppni
    Firmakeppni
    3-5 í liði, 3 bestu tímar gilda. Að a.m.k. 3 þurfa að klára keppni til að liðið fái tíma skráða.
    Hugmyndin er að starfsmenn fyrirtækis taki sig saman og keppi sem lið.
    Hver keppandi getur einungis verið í einu liði í firmakeppni.
    Engin aukakostnaður er við liðaskráningu í firmakeppni, en við hvetjum fyrirtæki til að styrkja sína starfsmenn til þátttöku í keppninni.
    Skráning
    Smelltu hér að neðan til að komast á skráningarsíðuna
    Netskráning: Smella hér.

    http://www.bluelagoonchallenge.com/ eða http://hjolamot.is/keppnir/33
  • Hjólreiðafélög

    Hér er að finna ýmsar gagnlegar og fróðlegar upplýsingar á heimasíðum hjólreiðafélaganna.

    Landssamtök hjólreiðamanna 

    Íslenski fjallahjólaklúbburinn 

    Hjólreiðanefnd ÍSÍ 

    Hjólreiðafélag Reykjavíkur

    Hjólamenn

    Hjólreiðafélagið Bjartur

    Hjólreiðafélag hafnfirskra kvenna

    Hjólafélagið Tindur

     

     

  • Hjólastígakort
    Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur hefur gefið út eftirfarandi kort:
    • Hjólastígakortið má nota til að finna út hvaða leiðir henta best. Hægt er að sjá kortið hér.
    • Á korterskortinu má sjá þær vegalengdir sem hægt er að fara frá miðbæ Reykjvíkur á 15 mínútum, mjög áhugavert kort sem þú getur séð hér.
    • Hjóla- og gönguleiðakort Reykjavíkur má nálgast hér

    Á borgarvefsjá má mæla út vegalengdir og á ja.is er að finna kortavef sem nær yfir allt landið.

    Útbúin hafa verið flott göngustígakort af Kópavogsbær og hægt er að sjá þau hér.

    Hér má nálgast greinagott hjólreiðakort af höfuðborgarsvæðinu.

    Hér er hægt að skoða hjólakort fyrir allt landið, en þetta kort er þannig að notendur geta sjálfir bætt inn stígum og tengingum. Kortið er í þróun.

    Hér er annað kort þar sem hægt er að mæla vegalengdir á.

    Hér er kort þar sem hægt er að slá inn upphafspunkt og lokapunkt og finna bestu leiðina.

  • Öryggisbúnaður reiðhjólamanna

    Eftirfarandi upplýsingar eru fengnar af heimasíðu Umferðarstofu

    Öryggisbúnaður reiðhjóla

    • Bremsur í lagi á fram og afturhjóli
    • Bjalla - ekki má nota annan hljóðmerkjabúnað
    • Ljós að framan - hvítt eða gult (ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni)
    • Rautt ljós að aftan (ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni)
    • Þrístrennd glitaugu - rautt að aftan og hvítt að framan
    • Keðjuhlíf - til varnar því að fatnaður festist í keðjunni
    • Teinaglit í teinum
    • Glitaugu á fótstigum
    • Lás

    Leggja ætti áherslu á að nota einnig:

    • Hjólvara (bílafælu) - viðvörunarstöng með endurskini sem hægt er að beina út frá hjólinu
    • Standara

    Reiðhjólahjálmur

    - Hvaða gagn er að hjólreiðahjálmum?
    Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms kemur ekki í veg fyrir slysin en dregur úr alvarleika þeirra og minnkar líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar enda eru höfuð þeirra minni og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru.

    Veljið hjálm af kostgæfni. Góður hjálmur uppfyllir þessar kröfur:

    • er prófaður af viðurkenndri stofnun og merktur með CE-merki
    • verndar enni, hnakka, gagnaugu og koll
    • passar vel, situr þétt á höfðinu, rennur ekki aftur á hnakka
    • hindrar hvorki sjón né dregur úr heyrn
    • er mjúkur næst höfðinu
    • er léttur og með loftopum
    • er með stillanlegt hökuband og spennu sem auðvelt er að opna og loka. Spennan á að vera til hliðar en ekki undir hökunni.
    • er auðveldur í notkun og létt að þrífa.

    Rétt notkun getur skipt sköpum:

    • hjálmurinn skal sitja rétt, - ekki of aftarlega
    • hjálmurinn skal sitja þétt svo hann hvorki detti af né skekkist þegar á reynir
    • böndin eiga að vera rétt stillt. Aftara bandið skal stillt á móti fremra bandi, þannig að eyrað lendi í miðju V-forminu sem böndin mynda.
    • hvorki má líma merki á hjálminn né mála hann, þá getur höggþolið minnkað
    • hjálminn má aðeins hreinsa með vatni og sápu, - ekki með uppleysandi efnum, ss. þynni, bensíni o.s.frv.
    • hjálminn á ekki að nota í leiktækjum.

    Hér má finna bækling sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Umferðarstofa og Ríkislögreglustjóri gáfu út um hjólreiðar.

    Mega hjólreiðamenn hjóla á gangstéttum?

    Samkvæmt umferðarlögum er heimilt að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum. Þegar nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hættu skal hjólreiðamaður gefa hljóðmerki. Sums staðar er notkun reiðhjóla bönnuð á gangstéttum og er þá vakin athygli á því með viðeigandi skiltum.

    Með því að smella hér er hægt að horfa á fræðslumyndband um hjólreiðar.

  • Kostir hjólreiða
    • Hjólreiðar til og frá vinnu og skóla er frábær leið til að ná daglegum skammti af hreyfing sem Embætti landlæknis mælir með eða um 30 mínútur á dag fyrir fullorðna og 60 mínútur á dag fyrir börn.                              
    • Hjólreiðar spyrna við hreyfingarleysi og offitu.
    • Daglegar hjólreiðar lækka tíðni vöðva- og liðamótasjúkdóma, krabbameins, kransæðasjúkdóma, sykursýkis og þunglyndis, og lengir lífið um mörg ár.
    • Hjólreiðar geta sparað einstaklingum, vinnustöðum og samfélaginu verulegar fjárhæðir vegna lægri tíðni alvarlegra sjúkdóma, slysa og fækkunar veikindadaga. Auk þess að lækka eldsneytiskostnað, bílastæðagjöld o.fl.
    • Reiðhjól eru mun ódýrara í rekstri en til dæmis einkabíll númer tvö.
    • Minni olíuþorsti dregur úr viðskiptahalla og olíustríðum.
    • Engin loftmengun, hverfandi hávaðamengun og reiðhjól krefjast mun minna pláss.
    • Hjólreiðamenn anda að sér minni mengun en bílstjórar, jafnvel á akbrautum (skv. ESB rannsókn).
    • Með aukinni hjólreiðaiðkun mun umferðarþungi á akbrautum minnka og bílaumferð verður greiðari.
    • Í Kaupmannahöfn hjóla rúmlega 30% í vinnu –  og svipað margir í  Oulu í norður Finnlandi. Þetta er gerlegt.
    • Útsýnið frá hjólinu er frábært. Við þurfum heldur ekki finna stærðarinnar stæði til að stoppa og spjalla.
    • Auknar hjólreiðar gera samfélagið okkar skemmtilegra, fallegra, rólegra og barnvænna.

  • Hjólafærni

    Fyrirlestrar og námskeið

    1. Ástandsvottun Dr. Bæk.
    Dr. Bæk mætir með farandskoðunarstöðina sína og ástandsskoðar hjólin. Pumpar, smyr og skoðar bremsur og gíra. Hvert hjól fær sitt ástandsvottorð. Líka gott tækifæri til þess að spyrja hin ráðagóða doktor. Vinsælt fyrir vinnustaði og vorhátíðir alls konar.
    120 mín. 1 Dr. Bæk á 22.000 kr., 2 Dr. Bæk á 38.000 kr., 8.000 hver tími umfram það pr. doktor.

    2. Leiðsögn Dr. Bæk.
    Dr. Bæk mætir með tæki og tól og leiðbeinir um helstu vorverk hjólreiðamannsins með sýnikennslu og óformlegum fyrirlestri við hjólið. Sýndar eru þrif og stillingar á stelli, bremsum og gírum og spurningum svarað. Þátttakendur geta mætt með sín eigin hjól og geta fengið leiðsögn í að gera hlutina sjálfir eða þá ástandsvottorð um heilsu hjólsins frá doktornum.
    120 mín. 1 Dr. Bæk á 22.000 kr., 2 Dr. Bæk á 38.000 kr., 8.000 hver tími umfram það.

    3. Fyrirlestur um samgönguhjólreiðar.
    Um 45 mín. hádegisfyrirlestur um samgönguhjólreiðar og hindurvitni hjólreiða, samvinnu í umferðinni, hjólaleiðir, aðbúnað fyrir hjól og fjölbreytni í samgöngum. Kostar 22.000 kr.

    4. Hjólum og verum klár.
    Fyrirlestur um samgönguhjólreiðar og námskeið í hjólaviðgerðum á eftir; sprungið dekk, bremsur og gírar. Ein kvöldstund sem hefst með fyrirlestri. Síðan er kaffi og loks sýna tveir fagmenn og kenna dekkjaviðgerðir og einfalt viðhald á bremsum og gírum.
    180 mín. á 49.500 kr. m.v. tvo kennara.

    5. Kennsla í samgönguhjólreiðum á vettvangi.
    Fámenn einkakennsla, 2 – 4 í hóp, þar sem hjólað er undir leiðsögn hjólafærnikennara á stígum og á götum. Kennsla í samgönguhjólreiðum hentar öllum sem vilja auka öryggi sitt á hjólinu og í umferðinni. Hentar vinnustöðum, fjölskyldum og vinahópum.
    90 mín. kennslustund kostar 14.000 kr. sem skiptist á þáttakendur, það er 3.500-7.000 kr./mann eftir fjölda.

    6. Læra að hjóla.
    Hjólafærni kennir hjólreiðar frá grunni börnum og fullorðnum. Það geta allir lært að hjóla. Kennsla er samkvæmt samkomulagi. Fámenn einkakennsla, 1-2 í hóp, þar sem kennt er að hjóla í þægilegu umhverfi.
    Verði er stillt í hóf og er skv. samkomulagi.

    Allar nánari upplýsingar veitir Sesselja Traustadóttir s: 864-2776.

    Heimasíða: www.hjolafaerni.is

  • Umferðaröryggi hjólreiðamanna

    Leiðbeiningar LHM fyrir hjólandi á stígum og gangstéttum með blandaðri umferð

    1.      Sýnum öðrum ávallt tillitsemi og aðgát.

    2.      Gangandi vegfarendur hafa forgang.

    3.      Stillum hraðanum í hóf á stígunum þeir eru oftast hannaðir fyrir hæga gangandi umferð með blindhornum og kröppum beygjum.

    4.      Höfum almennt í huga hægri regluna - höldum okkur til hægri og förum framúr vinstra megin.

    5.      Förum varlega framúr öðrum og gefum tímanlega kurteislegt hljóðmerki með bjöllu.

    6.      Víkjum til hægri fyrir þeim sem vilja komast framúr þegar það er öruggt.

    7.      Högum hraða ávallt miðað við aðstæður og sýn fram á stíg.

    8.      Notum góð ljós þegar rökkvar og gætum þess að vera sýnileg.

    9.      Lítum aftur og gætum að umferð og gefum skýr merki með höndum ef við á áður en við beygjum, breytum stöðu á stíg eða hægjum á ferð.

    10.  Veitum ökutækjum sérstaka aðgát þegar stígur liggur yfir götu.

    Leiðbeiningar LHM fyrir hjólandi á götum með 50 km hraða eða minna.

    Fylgjum ávallt umferðarlögum. Sýnum öðrum ávallt tillitsemi og aðgát. Notum góð ljós þegar rökkvar og gætum þess að vera sýnileg.

    2.      Höldum okkur að lágmarki um 1 metra frá hægri kanti eða kyrrstæðum bifreiðum.

    3.      Fylgjum umferðarstraumnum og breytum ekki um stefnu öðrum að óvörum.

    4.      Gefum skýr merki með höndum ef við á áður en við beygjum, breytum stöðu á akrein eða hægjum á ferð.

    5.      Við eftirfarandi aðstæður ætti hjólandi við flestar kringumstæður að taka víkjandi stöðu á akbraut, sem er um 1 meter hægra megin við umferðarstraum en varla nær akbrautarbrún en um 1 meter:

    ·         þegar nægilegt pláss er fyrir akstur bíls og reiðhjóls hlið við hlið,

    ·         þegar langt er milli gatnamóta eða innkeyrslna,

    ·         til að hleypa bílum framúr.

    6.      Við eftirfarandi kringumstæður ættu hjólandi þó að taka ríkjandi stöðu á miðri akrein:

    ·         þegar ekki er nægilegt pláss fyrir bíl að fara framúr, s.s. í þrengingum,

    ·         við gatnamót, í beygjum og í hringtorgum,

    ·         þegar farið er framhjá bílum sem gætu óvænt ekið í veg fyrir hjólandi svo sem við innkeyrslur og bílastæði.

    7.      Lítum aftur og gætum að umferð áður en:

    ·         ríkjandi staða er tekin á akrein,

    ·         áður en skipt er um akrein,

    ·         áður en beygt er til vinstri eða hægri.

    8.      Fara skal fram úr vinstra megin að öllu jöfnu. Reiðhjólum er leyfilegt að fara framúr vélknúnum ökutækjum hægra megin en það þarf að gerast með varúð.

    9.      Gæta skal að löngum ökutækjum, varasamt er að vera hægra megin við þau ef mögulegt er að þau beygi til hægri.

                   10.  Hjólandi á akbraut ber að veita umferð gangandi og hjólandi forgang á gangstétt eða gangstíg.
  • Farið af stað

    Hnakkhæð og staða.

    Auðveldast er að stilla hæðina á hnakknum með því að setjast á hann og styðja sig upp við vegg.
    Þegar fótleggirnir eru alveg beinir átt þú að geta hvílt hælana á fótstigunum í neðstu stöðu.

    Stöðuna er einnig hægt að skoða á meðan þú situr á hjólinu. Stilltu fótstigið lárétt og leggðu fótinn á það. Haltu snæri með hangandi lóði upp að hnénu framanverðu. Lóðið á koma niður nákvæmlega á miðju fótstigsins og ef það gerir það er staða þín rétt, ella þarf að færa hnakkinn fram eða til baka þar til rétt staða næst. Þegar maður hjólar aftur á móti er best að vera með petalinn undir tábergi.

    Sjá líka vefsíðan  "Stellið stillt"  með teikningum hjá ÍFHK.

    Taktur og ákefð

    Eitt af markmiðum með hjólaþjálfun er að þjálfa hjarta- og æðakerfið, þ.e.a.s. úthaldsþjálfun. Þess vegna er mikilvægt að snúa fótstigunum eins hratt og þú getur (þ.e. sá fjöldi hringja sem fótstigið fer á mínútu) sem skilar þér því að þú getur hjólað lengra án þess að  verða þreytt/-ur í fótunum. Margir hafa hjólið þannig „gírað” þegar þeir hjóla að fótstigin fara 60 hringi eða færri á mínútu. Það er of lítið. Það er hins vegar mælt með því að þú hjólir frekar í lágum gír og haldir þannig hraða að fótstigin fari um 80 –100 hringi á mínútu. Þetta  þýðir ekki að þú farir hraðar heldur að þú þurfir að snúa hraðar til að halda sama hraða og þú myndir annars gera með 60 hringjum á mínútu. Í byrjun mun þetta reynast þér erfitt, en smá saman uppgötvar þú að þú getur hjólað miklu lengra án þess að verða þreytt/ur um leið og þú styrkist. Aukinn snúningshraði minnkar jafnframt líkur á álagsmeiðslum í hnjám.
Heim
Innskráning
Innskráning með Facebook
Gleymt lykilorð?
Nýskráning
Nýskráning
  • Staðan
    • Sveitarfélög
    • Kílómetrakeppni
    • Vinnustaður 800 ofl. starfsmenn
    • Vinnustaður 400 - 799 starfsmenn
    • Vinnustaður 150 - 399 starfsmenn
    • Vinnustaður 70 - 149 starfsmenn
    • Vinnustaður 30 - 69 starfsmenn
    • Vinnustaður 10 - 29 starfsmenn
    • Vinnustaður 3 - 9 starfsmenn
  • Úrslit
    • Úrslit 2012
    • Úrslit 2011
    • Úrslit 2010
    • Úrslit 2009
    • Úrslit 2008
    • Úrslit 2007
    • Úrslit 2006
    • Úrslit 2005
    • Úrslit 2004
    • Úrslit 2003
  • Gott að vita
    • Hvernig skrái ég mig til leiks?
    • Reglur
    • Viðburðir
    • Efni til að prenta út
  • Um Hjólað
    • Tölfræði fyrri ára
    • Fréttir
    • Reynslusögur
    • Myndasafn
    • Spurning dagsins 2012
    • Spurning dagsins 2011
    • Spurning dagsins 2010
Efst á síðu
  • Þú ert hér:
  • Forsíða
  • Gott að vita

Mest skoðað

  • Gleymt lykilorð
  • Nýr notandi
  • Staðan
  • Hafa samband við okkur

ÍSÍ - Íþrótta- og ólympíusamband Íslands
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi